Morgunblaðið - 16.05.2017, Side 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 2017
Ég er stödd á Tenerife, við fjölskyldan erum að þjófstarta sumr-inu,“ segir Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir, dagskrár-gerðarmaður á Stöð 2 og matarbloggari, en hún á 28 ára af-
mæli í dag.
„Ég ætla bara að slappa af í dag og reyna að borða eins mikið af
góðum mat og ég kemst yfir. Ef maður hittir á réttu staðina hérna þá
er hægt að fá mjög góðan mat. Ég hef gaman af því að prófa mat
heimamanna, en oft endum við fjölskyldan á því að fá okkur ítalskan
mat, sem öllum finnst góður.“
Eva Laufey er með vikulega matreiðsluþætti á Stöð 2 sem heita Í
eldhúsi Evu og einnig er hún með matarblogg. „Allt sem kemur fram í
sjónvarpsþættinum fer þar inn og ýmislegt fleira sem ég er að dunda
mér við.“
Eva Laufey er einnig í viðskiptafræðinámi í Háskólanum á Bifröst
og mun klára í haust. „Ég er ekki alveg búin að ákveða um hvað loka-
ritgerðin verður en það verður eitthvað tengt samfélagsmiðlum og
bloggi sem tengist vinnunni minni. Ég ætla fyrst að klára BS-ritgerð-
ina áður en ég fer að vinna að næstu matreiðslubókinni minni, en ég
er samt alltaf að hugsa um eitthvað sem gæti orðið gott efni í bók.“
Eiginmaður Evu Laufeyjar er Haraldur Haraldsson, sem vinnur í
sölu- og markaðsdeild hjá Icelandair Cargo. Dóttir þeirra er Ingi-
björg Rósa sem verður þriggja ára í júlí.
Systur Sigrún, Eva Laufey og Edda Hermannsdætur í tilefni af útgáfu
bókarinnar Kökugleði Evu sem kom út í fyrra.
Í fríi frá eldhúsinu
Eva Laufey Kjaran er 28 ára í dag
G
uðmundur Axel Hansen
fæddist í Reykjavík
16.5. 1977 og ólst þar
upp; í Breiðholtinu: „Ég
ólst upp efst í Breiðholt-
inu, undir útvarpsmöstrunum á
Vatnsendahæð. Það var á þeim árum
algjör útjaðar höfuðborgarsvæðisins
og því oft gantast með að við værum
fyrir ofan snjólínu. En kosturinn við
þessar æskulóðir var sá að þar fyrir
ofan var óspillt náttúran og frábært
útivistarsvæði fyrir spræka krakka.“
Guðmundur keppti kornungur í
knattspyrnu með Leikni þó að félagið
væri í öðru póstnúmeri, enda auð-
veldara að hjóla á BMX-hjólinu á
jafnsléttu yfir í 111, heldur en að
hjóla upp í móti efst í Seljahverfið frá
ÍR svæðinu.
Guðmundur var í Seljaskóla,
Verzlunarskóla Íslands, stundaði
nám í verkfræði við Háskóla Íslands
og lauk BSc-prófi þaðan um aldamót-
in. Hann dreif sig síðar í framhalds-
nám í verkfræði skömmu áður en
frumburðurinn fæddist og lauk MSc-
prófi frá HÍ.
Guðmundur starfaði hjá hugbún-
aðarfyrirtækinu Naviation eftir BSc-
prófið og starfaði hjá Microsoft í
Danmörku á árunum 2002-2004: „Þar
deildi ég skrifstofu með þáverandi,
Guðmundur Axel Hansen verkfræðingur – 40 ára
Allir saman komnir í heita pottinum: Sigurður Arnar, Leópold Axel, Sara Björg, Guðmundur og Bjarndís Olga.
Hrungreining og end-
urreisn í Arion banka
Á rjúpnaveiðum Guðmundur og tíkin Ríma hjá Búrfelli við Þjórsárdal.Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða
mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í
einn mánuð.
Hægt er að senda mynd
og texta af slóðinni mbl.
is/islendingar eða á
islendingar@mbl.is
Á „Íslendinga“ síðum
Morgunblaðsins er
meðal annars sagt frá
merkum viðburðum
í lífi fólks, svo sem
hjónavígslum,
barnsfæðingum
eða öðrum
tímamótum.
Hraðþrif
á meðan þú bíður
Hraðþrif opin virka daga frá 8-18,
um helgar frá 10-17. Engar tímapantanir.
Bæjarlind 2, 201 Kópavogur | SÍMI 577-4700 | bilalindin.is
Verð frá 4.300,-
(fólksbíll)
Bíllinn er þrifinn létt
að innan á u.þ.b.
10 mínútum.