Morgunblaðið - 16.05.2017, Qupperneq 27
tilvonandi krónprinssessu Dana,
Mary Donaldsson, án þess ég hefði í
upphafi hugmynd um hver hún væri,
þó að hún prýddi flestar forsíður
glanstímarita landsins.“
Guðmundur flutti aftur heim í upp-
hafi góðærisins, árið 2004, um það
leyti sem 100% íbúðalánin komu til
sögunnar. Hann starfaði fyrst á ný-
stofnaðri skrifstofu Microsoft á Ís-
landi, var forstöðumaður hjá Skýrr
þangað til hann dreif sig í framhalds-
nám korteri fyrir hrunið, 2008:
„Lokaverkefni mitt í því námi vann
ég fyrir Rannsóknarnefnd Alþingis
sem þá rannsakaði orsakir fyrir falli
bankanna í hruninu: „Ég rannsakaði
krosseignatengsl í íslensku atvinnu-
lífi og útbjó reiknirit sem gat reiknað
sig gegnum allar eignarhaldsflétt-
urnar. Þetta gerði ég undir góðri
handleiðslu doktor Margrétar
Bjarnadóttur sem þá kenndi við
Stanford-háskóla í Bandaríkjunum.“
Guðmundur hóf síðan störf hjá Ar-
ion banka í ársbyrjun 2010. Þar vann
hann fyrst í nokkurs konar endur-
reisnarteymi sem vann ötullega að
því að endurreisa íslenskt atvinnulíf
með því að sníða fjárhag yfirskuld-
settra fyrirtækja eftir vexti þeirra.
Guðmundur starfar enn hjá Arion
banka og er nú viðskiptastjóri þar á
fyrirtækjasviði.
Guðmundur er virkur í félags-
störfum: „Ég á erfitt með að segja
nei þegar kemur að trúnaðarstörfum
fyrir félög sem ég tengist. Ég sit t.d.
uppi með formennsku í barna- og
unglingaráði hinnar vaxandi knatt-
spyrnudeildar ÍR þar sem sonur
minn stundar knattspyrnu. Ég er
auk þess trúboði hjólreiða, hjóla til
og frá vinnu, næstum alla daga ársins
og hef talað fyrir hjólreiðum innan
vinnustaðarins – svo mikið að það
liggur við að erfitt sé að fá hjóla-
stæði. Ég hef auk þess hjólað tvisvar
hringinn um landið í Wow Cycloth-
on-keppninni með vinnufélögum
mínum.
Áhugamálin eru mýmörg og ég var
á tímabili „alls sports maður“ en
helst ber að nefna skotveiði, hjólreið-
ar og fjallgöngur sem ég stundaði af
kappi um skeið, en hef þó dregið úr
þeim eftir að ég toppaði Hvannadals-
hnjúk fyrir áratug.
Ég hef einnig reynt fyrir mér í kaj-
akróðri, stangveiði og hlaupum að
ógleymdri ljósmyndadellu og stuttri
viðkomu í hundarækt en hef ekki
þorað að prófa golf að neinu ráði
enda held ég að ég hafi ekki aldur til
þess enn þá. En fer kannski að verða
tímabært að skoða það.“
Fjölskylda
Eiginkona Guðmundar er Sara
Björg Sigurðardóttir, f. 27.2. 1977,
stjórnmála- og stjórnsýslufræðingur.
Foreldrar hennar eru hjónin Sig-
urður Leópoldsson, f. 29.6. 1957,
framkvæmdastjóri, og Hafdís Hrönn
Ottósdóttir, f. 9.7. 1957, viðskipta-
fræðingur,
Börn Guðmundar og Söru Bjargar
eru 1) Sigurður Arnar Hansen, f.
8.10. 2008, 2) Bjarndís Olga Hansen,
f. 12.6. 2010, og 3) Leópold Axel Han-
sen, f. 15.1. 2016.
Systkini Guðmundar eru Ólafur
Haukur Hansen, f. 5.1. 1983, blikk-
smiður; Friðrikka Jóhanna Hansen,
f. 13.7. 1986, verkfræðingur; Jóhanna
Hildur Hansen, f. 15.3. 1991, kennari,
og Eiríkur Arnar Hansen, f. 20.5.
1993, rafvirki. Þau eru öll búsett í
Breiðholti.
Foreldrar Guðmundar eru hjónin
Richard Arne Hansen, f. 11.12. 1950,
tæknifræðingur og Bjarney Ólafs-
dóttir, f. 1.4. 1952, hjúkrunarfræð-
ingur.
Úr frændgarði Guðmundar Axels Hansen
Guðmundur
Axel Hansen
Dómhildur Ingibjörg
Gunnlaugsdóttir
húsfreyja á Höfn
Bjarni Guðmundsson
kaupfélagsstjóri á
Höfn og listmálari
Friðrika Bjarnadóttir
húsfr. í Króksfjarðarnesi
Ólafur Eggerts Ólafsson
kaupfélagsstj. og heppstj. í
Króksfjarðarnesi
Bjarney Ólafsdóttir
hjúkrunarfræðingur í Rvík
Bjarney S. Ólafsdóttir
húsfreyja á Valshamri
Ólafur Elías Þórðarson
b. á Valshamri í Geiradal
Vigdís Anna Gísladóttir
húsfreyja í Rvík
Sigurður Jónsson
rafvirkjam. og borgarfulltr. í Rvík
Jóhanna Sigurðardóttir Hansen
aðstoðarm. tannlæknis í Rvík
Gudmund Axel Hansen
rennismiður og harmo-
nikkuleikari í Rvík
Richard Arne Hansen
tæknifræðingur í Rvík
Jóhanna María Skylv Hansen
húsfreyja í Færeyjum
Anders Hansen
vitavörður í Færeyjum
Veiðimaður Hér er það hreindýr.
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 2017
Björn ríki Þorleifsson, hirð-stjóri, riddari og bóndi áSkarði á Skarðsströnd, var
aðlaður af Kristjáni I. Danakonungi
16.5. 1457.
Björn fæddist um 1408, sonur
Þorleifs Árnasonar sýslumanns og
k.h., Vatnsfjarðar-Kristínar, dóttur
Björns Jórsalafara Einarssonar.
Kona Björns var Ólöf ríka, dóttir
Lofts Guttormssonar riddara.
Björn var harðdrægur og frækinn
og naut virðingar konungs og ann-
arra erlendra mikilmenna. Hann átti
í ýmsum deilum, m.a. við Guðmund
Arason, ríka á Reykhólum, og
ásældist síðar eigur Skálholtsstóls.
Þar var biskupslaust eftir lát Goðs-
vins biskups, en Marcellus, eftir-
maður hans, sat aldrei Skálholt.
Björn varð þó frægastur fyrir að
hefta framgang Englendinga hér á
landi á 15. öld sem oft er nefnd
enska öldin í Íslandssögunni.
Björn var mikið í utanlandsförum
og segir sagan að þau hjón hafi lent í
hrakningum við Orkneyjar þar sem
skoskir sjóræningjar rændu þeim.
Kristján I. Danakonungur er sagður
hafa greitt lausnargjald fyrir þau,
veitt Birni riddaranafnbót, gert
hann að hirðstjóra yfir Íslandi og
falið honum að hefta ólöglega versl-
un Englendinga á Íslandi.
Björn og Ólöf, kona hans, gengu
hart fram í þessari viðleitni, fóru um
landið með sveina sína, gerðu fé
Englendinga upptækt og ráku þá af
landi brott.
Árið 1467 sló í bardaga milli
Björns og manna hans við Englend-
inga frá Lynn, í Rifi á Snæfellsnesi.
Þar var Björn veginn og sjö af
mönnum hans, en sonur hans, Þor-
leifur, sem síðar varð hirðstjóri, var
handtekinn. Fræg eru orð Ólafar er
hún frétti lát Björns: „Eigi skal
gráta Björn bónda heldur leita
hefnda.“ Hún keypti son sinn lausan
og hefndi bónda síns grimmilega.
Víg Björns varð til þess að styrj-
öld braust út milli Englendinga og
Danakonungs. Lauk stríðinu þannig
að Englendingar urðu að lofa að
versla ekki á Íslandi án leyfis.
Merkir Íslendingar
Björn ríki
Þorleifsson
Í Skarðskirkju Altaristafla Ólafar
til minningar um Björn hirðstjóra.
95 ára
Helga Kristinsdóttir
90 ára
Auður Aðalsteinsdóttir
Bjarney Jónsdóttir
Dagbjört G. Stephensen
Hermann Bridde
Hjördís Alda Ólafsdóttir
85 ára
Erla Guðmundsdóttir
Erna Sigurðardóttir
Sigurður Jónsson
80 ára
Guðmundur Kjartan
Ottósson
Helgi Gíslason
75 ára
Arnheiður Jónsdóttir
Ásta Lóa Eggertsdóttir
Guðmunda Alda
Eggertsdóttir
Gunnar Hjörtur
Gunnarsson
Jóhanna Guðjónsdóttir
Kristrún Valdimarsdóttir
Margrét Helga Eiríksdóttir
María Karlsdóttir
Ragnar H. Guðmundsson
70 ára
Dagbjört Friðriksdóttir
Geirlaug Guðmundsdóttir
Gunnar Ingimarsson
Gylfi Örn Guðmundsson
Hans Walter Schmitz
Magni Sigurjón Jónsson
Margrét Ólafsdóttir
Þóra Jakobsdóttir
60 ára
Aðalsteinn Elíasson
Ágúst Birgisson
Ásta Magnea Sigmarsdóttir
Gísli Þorsteinsson
Guðrún Lilja Bjarnadóttir
Helga Haraldsdóttir
Karl Ásgrímur Halldórsson
Ósk Helga Jónsdóttir
Stefán Auðunn Stefánsson
Ursula Siegle
50 ára
Ágústa Særún
Magnúsdóttir
Eyjólfur Már Sigurðsson
Gréta Björk Þorsteinsdóttir
Guðrún Pétursdóttir
Gunnar Friðrik Birgisson
Halldór Brynjólfur Daðason
Haraldur Baldursson
Helga Sigríður
Magnúsdóttir
Hrund Þorvaldsdóttir
Merete Kristiansen Rabölle
Sigríður Dóra
Friðjónsdóttir
Svetlana Alekseyevna
Moroshkina
Trausti Bergland
Traustason
Þórdís Helga Ólafsdóttir
40 ára
Árni Sigurpálsson
Bjarni Knútsson
Ebrahim Bani Esmaeileh
Emelía Bragadóttir
Emilíana Torrini
Guðlaug M. Steinsdóttir
Guðmundur Axel Hansen
Margrét F. Sigurðardóttir
Sigurður Stefán Karlsson
Steingrímur Árnason
Sunna Björk
Símonardóttir
30 ára
Bergur Guðjóns Jónasson
Eva Dögg Ingimarsdóttir
Hildur G. Kristjánsdóttir
Oddur Helgi Óskarsson
Til hamingju með daginn
30 ára Bergur býr í
Reykjavík, lauk MSc-prófi
í hag- og viðskiptafræði
og er starfsmannastjóri
hjá Atlanta.
Maki: Rebekka Skúla-
dóttir, f. 1988, flugfreyja,
hjúkrunarfræðingur og
handboltakona hjá Fram.
Börn: Karíta Hanna, f.
2013, og Bóas Skúli, f.
2015.
Foreldrar: Jónas Þór
Hreinsson, f. 1959, og
Marta Guðjóns, f. 1958.
Bergur Guðjóns
Jónasson
40 ára Margrét ólst upp
á Patreksfirði, býr á Akur-
eyri og er heimavinnandi.
Maki: Fannar Jónínuson
Ólafsson, f. 1971, sjómað-
ur.
Börn: Amelía, f. 1999;
Sigurður, f. 2002, og
Helgi, f. 2010.
Foreldrar: Ólína Ein-
arsdóttir, f. 1958, skrif-
stofumaður, og Sigurður
Páll Pálsson, f. 1955,
verkamaður. Þau búa í
Hafnarfirði.
Margrét Fanney
Sigurðardóttir
40 ára Guðlaug ólst upp í
Lyngholti í Bárðardal, býr
í Reykjavík, lauk prófi sem
heilsunuddari og starfar
hjá Glófa.
Sonur: Steinn Hrannar, f.
2008.
Systur: Freygerður Jó-
hanna, f. 1974, og Þuríður
Jóna, f. 1988.
Foreldrar: Steinn Jóhann
Jónsson, f. 1954, og Sig-
ríður Sveinbjörnsdóttir, f.
1959, bændur í Lyngholti
frá 1979.
Guðlaug M.
Steinsdóttir
hafðu það notalegt
handklæðaofnum
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidjan.is - sími 577 5177
Eigum úrval af