Morgunblaðið - 16.05.2017, Side 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 2017
Áburðardreifarar
Grasið verður grænnameð góðri og jafnri áburðargjöf
ModelWE-B
Rafhlöðuknúinn kastdreifari
Vinnslubreidd allt að 2,5 m
Hentugur fyrir minni garða
ModelWE-330
Áburðardreifari
Vinnslubreidd 41 cm
Rúmtak 15 lítrar
ModelWE-430
Áburðardreifari
Vinnslubreidd 43 cm
Rúmtak 20 lítrar
ÞÓR FH
Akureyri:
Lónsbakka
601 Akureyri
Sími 568-1555
Opnunartími:
Opið alla virka daga
frá kl 8:00 - 18:00
Lokað um helgar
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Vefsíða og
netverslun:
www.thor.is
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er um að gera að ráðast strax
á vandamálið en láta það ekki breiða sig
út yfir allt og alla. Með réttu lagi ættir þú
að koma málum þínum heilum í höfn.
20. apríl - 20. maí
Naut Það eru margir fúsir til þess að
rétta þér hjálparhönd en einhverra hluta
vegna vilt þú ekki þiggja aðstoð. Gerðu
eitthvað til að gera heimili þitt meira að-
laðandi.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Láttu ekki óttann við nýjungar
blinda þig svo að þú sitjir af þér hagstæð
tækifæri. Með lagni og léttri lund hefst
þetta allt.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ert tilbúinn til að finnast þú
æðislegur. Hamingjan felst í því að vera
sáttur við það sem maður hefur.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú munt hitta nýtt fólk. Með opnum
huga geturðu sirkað út hver mun hjálpa
þér og hver tufla þig. Láttu ljós þitt skína,
en þó ekki þannig að skuggi falli á aðra.
Þú gerðir þetta ekki ein/n.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þér verða fengin ný verkefni og
þótt þér lítist hreint ekki á þau við fyrstu
sýn, skaltu hefjast handa ótrauður. Alvar-
an er ágæt, en hún getur einfaldlega orðið
einum um of.
23. sept. - 22. okt.
Vog Sættu þig við það sem er búið og
gert því sektarkenndin er svo sjálfseyð-
andi. Ný sannindi sem þér hafa birst
munu hafa mikil áhrif á val þitt og er það
vel.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Hlýja þín í garð samstarfs-
manna þinna laðar að þér fólk og fær það
til að leita ráða hjá þér. Klappaðu sjálfum
þér á bakið fyrir að þora að íhuga að snúa
baki við því sem þú þekkir.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Stundum breytast hugsanir
manns og svo breytist maður sjálfur. Nú
er heppilegt að ljúka samningaviðræðum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ef þú lítur til baka til síðustu
tíu ára sérðu að margar af óskum þínum
hafa ræst. Sú tilbreyting bara gleður sál-
ina. Snertu ekki sparifé þitt.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Yfirmenn eru ekki alltaf þeir
hæfileikaríkustu eða réttlátustu. Slepptu
takinu og láttu aðra um sig.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú hefur einstakt tækifæri til að
auka tekjur þínar á næstu átta mánuðum.
Ekki gera of mikið úr hlutunum.
Sigurlín Hermannsdóttir kvartaryfir að hún opni ekki svo blað
að ekki sé sagt frá nýjum hættum í
lífinu:
Það deyr allt sem lífsanda dregur
og dreifður er háska sá vegur
því hætta ku stafa
af ömmu og afa
og lakkrís er lífshættulegur.
Síðan bætir Sigurlín við þeirri at-
hugasemd að hún hafi svo sem vitað
að ömmur og afar væru háskaleg
kvikindi en sér hafi orðið svo mikið
um fréttir af lakkrísnum að hún
hafi orðið að ofstuðla línuna!
Ólafur Stefánsson gat ekki orða
bundist, – og hélt ofstuðluninni í
síðustu hendingu!
Það slæmt er ef vondur er vegur,
í Vatninu fiskurinn tregur.
En verst er sú frétt,
– ef fréttin er rétt,
að lakkrís sé launhættulegur.
Helgi R. Einarsson spyr: Er þetta
„lausn vandans?“
Þegar leyndarmál leka,
sem líkar ekki þeim seka,
er ljómandi ráð,
í lengd og bráð,
þá leiðinlegu að reka.
Fréttir bárust af því að verktakar
hefðu farið húsavillt, þegar þeir
rifu þakplötur af húsi í Garðabæ.
Davíð Hjálmar Haraldsson orti:
Heimafólk á Garðabæjargötunum
gengur hvursdags um á sparifötunum
með vellyktandi á vanga, þjó og bakinu.
Vikulega er skipt um járn á þakinu.
Hjálmar Jónsson rifjar upp á
feisbók að einu sinni sem oftar þeg-
ar hann var á leiðinni út í Sauðár-
krókskirkju til að messa fyrr á ár-
um hitti hann Þorberg
Þorsteinsson og spurði frétta. Hann
svaraði:
Kyrrstaðan er mér til meins,
margt er við að glíma.
Presturinn messar alltaf eins
og alltaf á sama tíma.
Þórir Jónsson segir frá því á Leir
að enn sé hann sestur við skráningu
skáldskapar Haraldar Zóphanías-
sonar en Bókaútgáfan Fagrahlíð
gaf út Fléttur með kveðskap hans
árið 1975. Þórir segir, að það sem
hann skrái nú fari á Kvæða- og
vísnasafn Dalvíkurbyggðar, sem
ber nafn Haraldar á óðfræðivefnum
Braga: Þessa snjöllu vísu eftir Har-
ald, „Afturför“ lét Þórir fylgja:
Fljóti skrefi ei fótur nær,
fyrir tefur aldur.
Harmavef í hljóði slær
hryggur sefi og kaldur.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af lakkrís, þakjárni
og messu prestsins
Í klípu
„ÉG HEFÐI EKKI ÁTT AÐ BIÐJA
HANA UM AÐ NÁ Í KAFFI FYRIR
MIG Á LEIÐINNI HINGAÐ.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„EF ÞÚ VILT VITA HVERNIG ÞÚ MUNT
EIGNAST ÞÍNA FYRSTU MILLJÓN MUN ÞAÐ
KOSTA ÞIG ANNAN FIMMHUNDRUÐKALL.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar hún gefur
þér tóman blús.
HVAÐ GET ÉG FÆRT
LÍSU Í AFMÆLISGJÖF?
KANNSKI
BLÓM
TÚNFISK! ÞÚ VEIST
AUGLJÓSLEGA
EKKERT UM KONUR
ÉG MAN ÞAÐ EKKI, EN
GAMALT MÁLTÆKI LÝSIR
ÞVÍ HVERS VEGNA ÞÚ
ÆTTIR AÐ VERA GIFTUR
EINS OG ÉG!
HRÓLFUR!
FARÐU
AÐ MOKA
FLÓRINN!
„SÆL ER
SAMEIGINLEG
EYMD?“ ÞAÐ ER
RÉTT!
Þetta er með erfiðustu spark-vorum sem Víkverji hefur upp-
lifað lengi. Ekki nóg með að KA sé
á toppi efstu deildar hér heima
(þegar þessi orð eru skrifuð) og
Þór á botni næstefstu deildar, held-
ur liggur fyrir að Tottenham
Hotspur mun enda fyrir ofan Ars-
enal í ensku úrvalsdeildinni í fyrsta
skipti í 22 ár.
Ef þú skilur ekki, lesandi góður,
hvaða áhrif þetta hefur á sálarlíf
Víkverja sem heldur bæði með Þór
og Arsenal skaltu hætta strax að
lesa!
x x x
Tilburðir KA-manna á þessu öm-urlega vori eru raunar með
þeim hætti að Víkverji kemst ekki
hjá því að velta því fyrir sér hvort
þeir séu hreinlega reiðubúnir að
endurtaka leikinn frá 1989 og verða
Íslandsmeistarar. Víkverji var á
Akureyrarvellinum þann dag, að
horfa á Þór, þegar tilkynnt var í
kallkerfinu að KA væri Íslands-
meistari í knattspyrnu. Sá gjörn-
ingur átti sér stað sunnan heiða.
Heyra mátti saumnál detta í stúk-
unni og Þórsarar hafa sjaldan
gengið niðurlútari af velli.
Seinustu árin hefur Þór verið
oftar í efstu deild en KA, sem kem-
ur nú upp eftir þrettán ára hlé, án
þess þó að gera atlögu að Íslands-
bikarnum. Ef marka má framgöngu
liðsins í fyrstu leikjunum í vor má
maður þakka fyrir ef það verður
ekki í deild númer þrjú á næsta
sumri. Hvað sem hún nú heitir?
x x x
Arsenal er ekki í svo kröppumdansi í Englandi en flest bend-
ir þó til þess að liðið missi af sæti í
Meistaradeild Evrópu í fyrsta
skipti frá árinu 1997. Og það sem
verra er, Tottenham verður klár-
lega ofar í töflunni í ár í fyrsta
skipti í stjóratíð Arsène Wenger,
sem tók við Arsenal haustið 1996.
Víkverji þekkir býsna marga
stuðningsmenn Tottenham og hefur
alltaf haft jafn gaman af því að
hitta þá að máli um þetta leyti árs
– þangað til núna. Núna er það
með öllu óþolandi.
Verst hvað hann þekkir marga
KA-menn líka! vikverji@mbl.is
Víkverji
Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels, því
að hann hefur vitjað lýðs síns og búið
honum lausn.
(Lúk. 1:68)