Morgunblaðið - 16.05.2017, Side 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 2017
Leið íslenska rappsins afjaðrinum inn í megin-strauminn hefur veriðglannalega hröð síðustu
misseri. Svo hröð reyndar að það
hefur verið umtalsvert djarfari
ákvörðun hjá Kristínu Eysteins-
dóttur að rétta Reykjavíkurdætum
hljóðnema og skilyrðislaus afnot af
Litla sviðinu þegar hún var tekin,
en núna þegar afraksturinn er bor-
inn fram.
Margt mælir með að rapp eigi
heima í vopnabúri leikhússins.
Leikhúsið á að vera vettvangur
orðsins, en sá hluti genamengis
þess hefur verið bældur og jaðar-
settur undanfarna áratugi, leynt og
ljóst. Kannski er hægt að smygla
skáldskapnum aftur inn á sviðs-
miðjuna með þessari flaumkenndu
og litskrúðugu rímnalist, nú þegar
sífellt fleiri eru læsir á fagurfræði
hennar. Margir horfa vonaraugum
vestur um haf, þar sem slegist er
um miðana á hiphop-söngleikinn
Hamilton á Broadway. Í Bretlandi
er The Hip Hop Shakespeare
Company átta ára gamalt batterí.
Það er hugsað öllu smærra í
Borgarleikhúsinu, sem vonlegt er.
Raunar finnst mér að það hefði
þurft mun nánari samgang milli
rappsins, laganna sem dæturnar
flytja í sýningunni og annars efnis
sýningarinnar. Einhverskonar sam-
bræðslu, tilraun til að nýta hinn
mjög svo leikræna efnivið tónlist-
arinnar á forsendum leikhússins.
Að opna dyr. Kannski var þetta
reynt en niðurstaðan orðið þessi.
Að hafa skilin skýr, að láta
skiptast á tónlist og talað mál og
láta innihaldið kallast á gegnum
lokaðar dyrnar.
Það skapast hratt skemmtileg
spenna milli þessara sviða. Ýkt og
yfirgengilegt sjálfsöryggi er inn-
byggt í rappið. Hetjulegri tónlist
hefur ekki heyrst síðan hár-metal
féll úr tísku. Sumarliði hans Bjart-
mars Guðlaugssonar hefði líka
fundið sig í afstöðunni. Sá/sú sem
hefur orðið liggur sjaldnast á
þeirri skoðun sinni að hann/hún sé
mest og best í listinni og lífinu en
ekki síður í því að njóta lífsins og
hrifsa til sín það sem þarf til þess.
Rappari tekur sitt pláss í heim-
inum með tilþrifum.
Merking þess að konur taki sér
slíka stöðu er þrátt fyrir allt enn
gerólík þeirri sem verður til þegar
karlar byrja að tala um eigið
ágæti, velgengni og greddu. Í
þessa staðreynd sækja Reykjavík-
urdætur slagkraft sinn. Og fá allan
sinn mótbyr. Sem verður mikil-
vægur hluti af sama slagkrafti.
Mótbyrinn er síðan í stóru hlut-
verki milli laga. Bæði vandinn við
að gera sig gildandi og njóta sann-
mælis í karlstýrðum heimum
rapps, tónlistar og menningar, en
líka hið almenna og sjálfsmyndar-
slítandi álag sem fylgir nútímalífi
ungra kvenna. Konur eru á útivelli
í rappinu. Rapparar í leikhúsinu.
Þessar andstæður eru ágætt
eldsneyti. Atriðin eru hinsvegar
missterk og vilja svolítið fölna við
hliðina á kröftugu og ágengu rapp-
inu. Áberandi bestur er fyrsti hlut-
inn, þar sem dæturnar sviðsetja
spjallþátt og bjóða í hann valda-
körlum menningar- og fjölmiðlalífs-
ins, sem gengur misvel að dylja þá
löngun sína að halda sínu og verja
dyr kallaklúbbsins. Aldeilis mylj-
andi snjallar skopmyndir (frekar
en beinlínis eftirhermur) af leik-
stjóranum Þorleifi Erni Arnarssyni
og Unnsteini Manúel í Retro Stef-
son, sem í meðförum sýningarinnar
eru vissulega allir af vilja gerðir til
að „gefa“ konum tækifæri, en …
það er alltaf eitthvað en. Fleiri
áberandi karlar gera sig svo líka
breiða og atriðinu lýkur með ákaf-
lega táknrænni og morðfyndinni
gæðastund drengjanna.
Hin hliðin á þeim peningi var
svo innlit Borgarleikhússtýrunnar,
Kristínar Eysteinsdóttur, í lokin,
þar sem hún eys lofi yfir sýning-
una og frammistöðu stúlknanna.
Þar lekur smá af yfirgengilegu
sjálfsáliti rapparans loksins undir
dyrnar inn í vanmetakenndar-
herbergið baksviðs. Sem er gott og
skemmtilegt.
Önnur atriði flugu ekki eins hátt.
Játningar um öryggisleysi, erfið-
leika við að tengjast öðrum,
áhyggjur af hvert stefnir, óþol
gagnvart mótsagnakenndum kröf-
um heimsins – allt eru þetta efni
sem liggja beint við og þurfa
snjallari útfærsluhugmyndir, heild-
stæðari hugsun eða dýpri meðferð
til að hreyfa við áhorfandanum,
sem er alveg örugglega ekki að
heyra þessar fréttir í fyrsta sinn.
Einlægnin og nálægðin er sterk,
en það þarf meira. Sérstaklega þar
sem krafturinn í tónlistaratrið-
unum og orðavefnaði rímnanna
skapar mótvægi sem nánast drekk-
ir leikatriðunum.
Dæturnar eru allar sannfærandi
á sviði og ná áreynsluleysinu sem
þarf til að vera sannfærandi í ein-
lægninni og búa yfir sannfæringu
og krafti fyrir tónlistaratriðin. Sýn-
ingin er lipurlega sviðsett af Kol-
finnu Nikulásdóttur, með hæfilega
afslappaðri umferðarstjórn sem er
alveg við það að verða að óreiðu í
rappatriðunum en skýr og nákvæm
þess á milli. Viðtalsatriðin eru líka
vel útfærð og hæfilega langt geng-
ið í að „ná“ viðmælendum þátta-
stjórnandans án þess að detta inn í
klisjur eftirhermulistarinnar.
Útlit sýningarinnar er vel
heppnað hjá Jóhönnu Rakel Jónas-
dóttur. Hvíti liturinn allsráðandi í
leikmynd og búningum og glitrandi
gerviglys vísar smekklega í rapp-
araklisju „blingsins“. Ég er al-
mennt ekki hlynntur því að leik-
myndir taki sér forystuhlutverk í
að miðla merkingu leiksýninga en
trommusettið sem trónir stolt á
Litla sviðinu var frábær hugmynd.
Ég hefði verið til í meiri ögrun í
þessari sýningu. Meiri listræna
áhættu, fjölbreyttari aðkomu
rappsins. Það sem fyrir áhorfendur
er borið er alveg ágætt, sumt vel
það. Annað dálítið bragðdauft, sem
kom á óvart.
Borgarleikhúsið
RVKDTR – THE SHOW bbbnn
Eftir Kolfinnu Nikulásdóttur, Jóhönnu
Rakel Jónasdóttur, Sigurlaugu Söru
Gunnarsdóttur, Steinunni Jónsdóttur,
Þuru Stínu, Solveigu Pálsdóttur, Stein-
eyju Skúladóttur, Sölku Valsdóttur og
Þuríði Blæ Jóhannsdóttur. Leikstjórn:
Kolfinna Nikulásdóttir. Leikmynd og
búningar: Jóhanna Rakel Jónasdóttir.
Hljóðmynd og tónlistarstjórar: Salka
Valsdóttir og Baldvin Magnússon.
Sviðshreyfingar: Kolfinna Nikulásdóttir,
Steinunn Jónsdóttir, Sigurlaug Sara
Gunnarsdóttir og Jóhanna Rakel Jón-
asdóttir. Ljósahönnun: Juliette Louste.
Myndbandsgerð: Elmar Þórarinsson.
Frumsýning á Litla sviði Borgarleik-
hússins 11. maí 2017.
ÞORGEIR
TRYGGVASON
LEIKLIST
Kraftur „Dæturnar eru allar sannfærandi á
sviði og ná áreynsluleysinu sem þarf til að
vera sannfærandi í einlægninni og búa yfir
sannfæringu og krafti fyrir tónlistaratriðin.“
Á útivelli
Íslenska þungarokksveitin HAM
mun hita upp kollega sína í þýsku
þungarokksveitinni Rammstein á
tónleikum þeirrar síðarnefndu í
Kórnum í Kópavogi á laugardag-
inn, að sögn skipuleggjanda tón-
leikanna, Þorsteins Stephensen.
HAM hitaði einnig upp fyrir
Rammstein á margfrægum tvenn-
um tónleikum þýsku sveitarinnar í
Laugardalshöll árið 2015.
Breiðskífa er væntanlega frá
HAM í næsta mánuði og á tón-
leikum Rammstein mun HAM
leika nokkur glæný lög af henni í
bland við gömul. Þá er von á nýrri
smáskífu af plötu HAM í dag og
verður nafn plötunnar einnig opin-
berað. Eitt lag af plötunni hefur
ómað í útvarpi í nokkrar vikur,
„Vestur-Berlín“, og má af því
heyra að hljómsveitin er í feiki-
góðu formi.
Uppselt er á tónleika Ramm-
stein í Kórnum núna á laugardag-
inn.
HAM hitar aftur upp fyrir Rammstein
Morgunblaðið/Sigurjón Guðjónsson
HAM! Óttarr Proppé í ham með HAM á
tónleikum í Laugardalshöll árið 2006.
Eyjasandi 2, 850 Hella - Víkurhvarfi 6, 203 Kópavogi, sími 488 9000 - samverk.is
GLERHANDRIÐ
Mælum, framleiðum, útvegum festingar og setjum upp.
ÞEKKING - GÆÐI - ÞJÓNUSTA
SÉRSMÍÐUM ÚR GLERI
BÍÓ
áþriðjudögum í Laugarásbíó
750
á allarmyndir, allan daginn!
Ath! Gildir ekki á
íslenskarmyndir
kr.
FRÍ
ÁFYLL
ING
Á GOS
I
Í HLÉI
SÝND KL. 5.30SÝND KL. 7.40SÝND KL. 10
SÝND KL. 6, 8, 10 SÝND KL. 5.30, 8, 10.20