Morgunblaðið - 18.05.2017, Page 8

Morgunblaðið - 18.05.2017, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2017 Undirbúningur svokallaðrarborgarlínu er kominn ótrú- lega langt miðað við það að umræð- ur um hana hafa varla farið fram. Fjölmiðlar fjalla varla um málið, sem þó mun í það minnsta kosta tugi milljarða króna. Þetta áhugaleysi er gagnrýnivert þegar svo miklir fjárhags- legir hagsmunir skattgreiðenda eru í húfi, en er því mið- ur allt of algengt.    Og enginn skyldi fara í graf-götur um að borgarlínan verð- ur ekki lögð nema fyrir skattfé. Hún mun aldrei bera sig. Og hún verður ekki heldur lögð fyrir þá skatta sem þegar eru innheimtir, til að leggja línuna þarf skattahækk- anir eða nýja skatta.    Í Morgunblaðinu í gær gagnrýndiKjartan Magnússon borg- arfulltrúi þau áform. Hann benti á að undir forystu Samfylking- arinnar í borgarstjórn hefðu skatt- ar verið hækkaðir mikið, meðal annars hefði útsvarið farið úr leyfi- legu lágmarki upp í hámarks- útsvar.    Kjartan bætti við: „Nú vill meiri-hlutinn leggja á nýjar álögur. Hann getur ekki hækkað útsvarið og það er orðið erfitt að sækja við- bótartekjur með álagningu fast- eignagjalda. Þá er fundin upp ný leið til að leggja á skatta og fundið upp fínt orð eins og innviðagjald.“    Mikilvægt er að borgarfulltrúarog aðrir kjörnir fulltrúar Reykvíkinga og annarra íbúa höf- uðborgarsvæðisins tjái sig með skýrum hætti um þessar fyrirhug- uðu framkvæmdir og þær skatta- hækkanir sem þeim tengjast. Kjós- endur verða að vita hvar fulltrúar þeirra standa. Kjartan Magnússon Fínt orð um skattahækkanir STAKSTEINAR Matvælastofnun (MAST) hefur svipt bónda á Suðurlandi öllum kindum sínum, um fimmtán talsins. Í til- kynningu frá stofnuninni segir að ástæða sviptingarinnar sé sinnuleysi umráðamanns en um er að ræða frí- stundabónda. Gunnar Þorkelsson, héraðs- dýralæknir á Suðurlandi, segir að búfjáreftirlitsmaður í vettvangsferð hafi gert athugasemdir við aðbúnað dýranna og umhirðu. Nauðsynlegt sé að vitja sauðfjár daglega, sér- staklega þegar á sauðburði stendur, en úttekt leiddi í ljós að því var ekki framfylgt. Í kjölfarið var eigand- anum gert að bæta ráð sitt og hon- um gefinn knappur frestur til þess. Því var ekki sinnt og hefur dýrunum þess vegna verið komið fyrir í umsjá tilsjónarmanna þar til sauðburði lýk- ur og féð heldur til fjalla. Gunnar segir óvíst hvað verður um það næsta vetur. Hann segir mál sem þessi sem betur fer ekki algeng, en þó komi þau alltaf upp af og til. Auk vörslusviptingar er stofnuninni heimilt að beita fjársektum en til þess hafi ekki komið að þessu sinni. agunnar@mbl.is Frístunda- bóndi svipt- ur kindum  Sinnuleysi í sauð- burði orsök sviptingar Fyrsta skemmtiferðaskip sumars- ins, Celebrity Eclipse, kom til hafn- ar á Akureyri um síðustu helgi og með því tæplega 3.000 farþegar. Fór mikill fjöldi farþeganna austur í Mý- vatnssveit með rútum meðan skipið lá við bryggju. Talning ferðamanna við eina vin- sælustu náttúruperlu Mývatns- sveitar gefur til kynna að skipakom- unum fylgi aukaálag á viðkvæm svæði, að því er fram kemur í frétt á heimasíðu Umhverfisstofnunar. Í apríl voru settir upp teljarar til að mæla umferð gangandi manna. Samkvæmt teljara í Dimmuborgum varð aðsóknarsprenging þar sama dag og farþegarnir úr skemmti- ferðaskipinu voru á faraldsfæti. Um 1.000 gestir sóttu Dimmuborgir um hádegisbilið síðastliðinn laugardag samkvæmt teljaranum, margföld sú umferð sem er þar að jafnaði dag hvern á þessum árstíma. Í fréttinni er haft eftir Davíð Örv- ari Hanssyni, sérfræðingi hjá Um- hverfisstofnun í Mývatnssveit, að slíkur fjöldi á svo skömmum tíma valdi töluverðu álagi. Hann segir mikilvægt að skipulagning hópferða, ekki síst þegar um er að ræða þús- undir einstaklinga, taki mið af því að dreifa komum yfir sem lengstan tíma. Það bæti bæði upplifun gesta af náttúruperlum og dragi úr álagi á náttúrugæði. sisi@mbl.is Þúsund manns í Dimmuborgum  Farþegar skemmtiferðaskips  Nýi teljarinn kom að góðum notum Morgunblaðið/Golli Dimmuborgir Vinsæll staður. HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI Hágæða vinnuföt í miklu úrvali Sérmerkjum fyrir fyrirtæki Verkfæri og festingar Mikið úrval af öryggisvörum Nú fástSnickers vinnuföt í Veður víða um heim 17.5., kl. 18.00 Reykjavík 7 rigning Bolungarvík 4 súld Akureyri 4 skýjað Nuuk 2 alskýjað Þórshöfn 9 rigning Ósló 15 léttskýjað Kaupmannahöfn 19 heiðskírt Stokkhólmur 13 skýjað Helsinki 12 skýjað Lúxemborg 27 heiðskírt Brussel 28 heiðskírt Dublin 15 skúrir Glasgow 15 skýjað London 14 rigning París 27 heiðskírt Amsterdam 27 heiðskírt Hamborg 25 heiðskírt Berlín 25 heiðskírt Vín 22 heiðskírt Moskva 8 skúrir Algarve 25 heiðskírt Madríd 27 heiðskírt Barcelona 24 heiðskírt Mallorca 24 heiðskírt Róm 25 skýjað Aþena 16 súld Winnipeg 6 alskýjað Montreal 22 skýjað New York 26 léttskýjað Chicago 27 skýjað Orlando 31 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 18. maí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 4:02 22:48 ÍSAFJÖRÐUR 3:39 23:20 SIGLUFJÖRÐUR 3:21 23:04 DJÚPIVOGUR 3:25 22:24

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.