Morgunblaðið - 18.05.2017, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 18.05.2017, Blaðsíða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2017 alvöru grillaður kjúklingur Grensásvegi 5 I Reykjavík I Sími 588 8585 Opið alla daga kl. 11-22 Þorgerður Anna Gunnarsdóttir thorgerdur@mbl.is „Sýningin fjallar svolítið um Ís- land en á sama tíma fjallar hún um hverfulleikann í lífinu og til- verunni. Manneskjan er alltaf að byggja og eyða og það gerir nátt- úran líka,“ segir Sigurgeir Sigur- jónsson sem opnar ljósmynda- sýningu í Grófarsal Ljósmynda- safns Reykjavíkur á laugardag. Sýningin heitir Metamorphosis/ Umbreyting og er byggð á sam- nefndri ljósmyndabók sem kemur út samhliða sýningunni. Sigurgeir fæddist í Reykjavík árið 1948. Hann lærði ljósmyndun hérlendis á árunum 1965-1969 en hélt í framhaldinu til Stokkhólms í ljósmyndaskóla Christer Ström- holm, þar sem hann stundaði framhaldsnám á árunum 1970- 1971. Síðar nam hann ljósmyndun í San Diego í Kaliforníu á árunum 1980-1981. Sigurgeir býr nú og starfar í Reykjavík og hafa verk hans birst í fjölda bóka. Þar ber helst að nefna nokkrar vinsælustu ljós- myndabækur um Ísland og Íslend- inga sem gefnar hafa verið út: Ís- land – landið hlýja í norðri frá 1994, Amazing Iceland frá 1998, Lost in Iceland frá 2002 og The Little big book about Iceland frá 2009. Sigurgeir segist hafa byrjað að undirbúa sýninguna fyrir ári þeg- ar honum bauðst að sýna á safninu og ákvað að nota efni sem hann var að vinna að á þeim tíma. Landslag og myndhverfingar Sigurgeir segir sýninguna vera eina heild og að hver veggur segi sína sögu. Hann bætir því við að myndirnar sendi ímyndunaraflið á flug. „Hægt er að búa til svo mikið með því að standa fyrir framan svona myndir og ímynda sér hvað var,“ segir Sigurgeir. Að hans sögn snýst sýningin að miklu leyti um landslag og mynd- hverfingar. „Stór partur af sýningunni er um niðurrifið á Hverfisgötu 42. Ég fylgdist vel með ferlinu þegar hús- ið var rifið í fyrrasumar, en vinnu- stofan mín er einmitt í sömu götu svo ég labbaði bara yfir götuna til að mynda framkvæmdirnar,“ segir hann. Sigurgeir kveður þetta þó ekki vera neina gagnrýni á nið- urrif hússins heldur einungis snú- ast um myndhverfingu og lands- lagið sem hægt er að sjá í öllum myndunum. Litur getur truflað Sigurgeir segir allar myndir sýningarinnar vera í lit, en að inn af sýningunni sjálfri sé lítið skot með skyggnumyndasýningu í svarthvítu sem hann kallar „Lítill heimur“. „Þar eru myndir alls staðar að úr heiminum, aðallega af börnum og ungviði. Þetta er dálítil and- stæða þess sem er frammi, þar sem allt er í lit, svolítið „vulgar“ og yfirdrifið. Svo fer fólk inn í þetta litla skot og fer í heimsferð,“ segir Sigurgeir um skyggnusýn- inguna. Hann segist velja að hafa mynd- ir í lit eða svarthvítu eftir því hvað passi verkefninu. „Myndirnar utan úr heimi eru til dæmis teknar í lit en þær eru svo víða að úr heim- inum að mér fannst það vera of mikið högg að hafa þær í lit svo ég setti þær allar í svarthvítt. Þá renna þær betur saman. Stundum vill maður losna við litinn því hann er að trufla mann,“ segir Sig- urgeir. Heimsmyndirnar úr skyggnu- sýningunni segir Sigurgeir hafa verið teknar yfir 15 ára tímabil, en allar myndir sýningarinnar voru svo teknar á árunum 2015 og 2016, nema loftmyndirnar sem eru u.þ.b. 10 árum eldri. Sýning Sigurgeirs mun, eins og áður sagði, hefjast á laugardaginn 20. maí og verða op- in til 10. september. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Landslag Ljósmynd Sigurgeirs af niðurrifi Hverfisgötu 42. Manneskjan alltaf að byggja og eyða  Ljósmyndasýningin Metamorphosis/Umbreyting eftir Sigurgeir Sigþórsson verður opnuð í Ljós- myndasafni Reykjavíkur  Fylgdist með ferlinu og myndaði þegar húsið við Hverfisgötu 42 var rifið Samsett Ljósmynd Sigurgeirs af fjalli í Álftafirði og þurrkhjalli. Umbreyting Sigurgeir Sigþórsson á sýningu sinni í Ljósmyndasafni Reykjavíkur sem verður opnuð á laugardaginn. Kvenmannshöfuð úr bronsi frá 1913 eftir listamanninn Constantin Brancusi seldist nýverið á uppboði í uppboðshúsinu Christie’s í New York. Frá þessu er greint á vef New York Times.Verkið heitir „La Muse Endormie“ og seldist fyrir 57.4 milljónir bandaríkjadala sem samsvara rúmum 5,8 milljörðum ís- lenskra króna. Þetta er hæsta verð sem fengist hefur fyrir verk frá listamanninum á uppboði. Verkið er eitt sex bronseftirmynda skúlp- túrs úr hvítum marmara sem Róm- anski listamaðurinn gerði á ár- unum 1909-1910. Marmaraskúlptúrinn má finna á Hirshhorn Museum and Sculpture Garden í Washington D.C. í Banda- ríkjunum. Verkið Egglaga höfuð eftir listamanninn Constantin Brancusi frá 1913. Höfuð seldist á 5,8 milljarða króna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.