Morgunblaðið - 18.05.2017, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2017
Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70
hitataekni@hitataekni.is
hitataekni.is
ótorlokar
ir allar stærðir kerfa.
tum einnig boðið mótorloka
llar algengustu gerðir loka
frá öðrum framleiðendum.
Gæðamótorlokar
frá Sviss
M
fyr
Ge
á a
LLA-308
PRO álstigi
2,27-5,05 m
17.
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Tröppur og stigar
LFD 90AL70x33x100 cm
9.990
3x rep
99
LLA-211
PRO álstigi/trappa
2x11 þrep
16.990
Áltrappa 4 þrep 4.940
5 þrep 6.390
Áltrappa 3 þrep
3.990
Í ÖLLUMSTÆRÐUMOG GERÐUM
Elín Friðriksdóttir,
húsfreyja og hússtjórn-
arkennari á Laugum í
Suður-Þingeyjarsýslu,
er látin á 94 aldursári.
Elín var fædd á
Miklabæ í Blönduhlíð í
Skagafirði, en ólst upp
á Sunnuhvoli í sömu
sveit og var elst þrett-
án barna Friðriks
Kristjáns Hallgríms-
sonar og Unu H. Sig-
urðardóttur.
Elín var gagnfræð-
ingur frá Héraðsskól-
anum á Laugum í
Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu,
tók svo húsmæðrakennarapróf frá
Húsmæðrakennaraskóla Íslands ár-
ið 1948 og stundaði m.a. framhalds-
nám í hússtjórnar- og hótelfræðum í
Kaupmannahöfn.
Elín bjó og starfaði
á Laugum, þar sem
hún rak Sumarhótelið
á Laugum ásamt
manni sínum Óskari
Ágústssyni íþrótta-
kennara og kenndi við
Húsmæðraskólann á
Laugum. Óskar lést
árið 2011 á 91. aldurs-
ári. Elín og Óskar
bjuggu síðari búskap-
arár sín á Kvisthaga í
Reykjavík, en fluttu
svo í Sunnuhlíð í Kópa-
vogi.
Börn þeirra eru Ágúst Óskarsson,
Hermann Óskarsson, Knútur Ósk-
arsson og Una María Óskarsdóttir.
Afkomendur Elínar eru á fjórða tug-
inn.
Andlát
Elín Friðriksdóttir
Nýi Magni var í reglubundnu viðhaldi í Slippnum við
gömlu höfnina í Reykjavík. Tæp 11 ár eru síðan bát-
urinn fékk nafn sitt við hátíðlega athöfn á sjómanna-
deginum á Miðbakka árið 2006. Báturinn var keyptur
frá skipasmíðastöðinni Damen í Hollandi líkt og drátt-
arbátarnir Haki og Jötunn.
Báturinn er fimmti í röðinni með sama nafni en fyrsti
Magni var keyptur fyrir Reykjavíkurhöfn árið 1928,
notaður frá Þýskalandi. Nýi Magni hefur togkraft allt
að 39,5 tonnum en til samanburðar hafði öflugasti bát-
ur hafnarinnar til þessa 17 tonna togkraft.
aronthordur@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fimmti Magni
í viðhaldinu
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Runólfur Ágústsson, framkvæmda-
stjóri Fluglestarinnar – þróunar-
félags, segir að í sumar muni skýrast
hvort og þá með hvaða hætti fyrir-
huguð fluglest muni tengjast leiða-
kerfi fyrirhugaðrar borgarlínu á
höfuðborgarsvæðinu. Málið sé unnið
í samráði við Samtök sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu (SSH).
Fluglestin yrði ofanjarðar frá
Keflavíkurflugvelli til Straumsvíkur
og svo neðanjarðar að endastöð á
höfuðborgarsvæðinu. Á korti hér til
hliðar má sjá mögulega legu hennar.
Runólfur segir rætt um að tengja
verkefnið við borgarlínuna.
Endastöð verði á BSÍ-reitnum
„Við erum þessa dagana að ræða
við þá sem standa að borgarlínu-
verkefninu um tengipunkta og
snertifleti. Við höfum unnið út frá
því í samráði við Reykjavíkurborg að
endastöðin verði á BSÍ-reitnum og
að ein millistöð sé í suðurhluta
höfuðborgarsvæðisins. Það skiptir
máli að hún sé afar vel tengd við al-
menningssamgöngur, þar með talið
borgarlínu.
Við fáum á næstu vikum vonandi
niðurstöður greiningarvinnu sem al-
þjóðlegt verkfræðifyrirtæki, Tracte-
bel, hefur unnið fyrir okkur. Þar er-
um við m.a. að skoða heppilega
staðsetningu á þessari millistöð og
aðra valkosti fyrir endastöð.“
Runólfur segir spurningakönnun
meðal innlendra og erlendra flugfar-
þega benda til að það borgi sig ekki
að hafa endastöð í Straumsvík.
Millistöð í Kringlunni?
Notkunin verði ekki nógu mikil til
að svara kostnaði. Ásamt BSÍ-reitn-
um séu Kringlan og Smáralind nú
álitnar mögulegar endastöðvar. Þá
sé horft til þess að hafa millistöð í
Hafnarfirði, á Vífilsstöðum, í Smára-
lind eða í Kringlu. Millistöðin verði
tengd við almenningssamgöngur.
„Það er lykilatriði að tæpur helm-
ingur af þeim farþegum, sem við ger-
um ráð fyrir, er aðrir farþegar en
flugfarþegar. Þeir eru að ferðast til
og frá vinnu og í öðrum erindagjörð-
um. Það er mjög mikið atriði fyrir
okkur að tengja þetta atriði vel við
borgarlínuna. Og reyndar aðrar al-
menningssamgöngur.“
Á kortinu hér til hliðar má sjá hug-
myndir að legu lestarganga fyrir
fluglestina á höfuðborgarsvæðinu.
Þessar leiðir voru markaðar til að
greina jarðfræðilegar forsendur
gangagerðarinnar.
Runólfur segir leiðir 3 og 4 hafa
verið taldar óhagkvæmar. Það sé
m.a. vegna þess að þær liggi undir
sjó að hluta. Verkfræðilegir ráðgjaf-
ar hafi komist að þessum niðurstöð-
um. Ræðir þar um Verkfræðistofuna
Eflu, Tractebel og fleiri erlend fyrir-
tæki. Meðal þeirra er Per Aarsleff
AS í Danmörku, sem er stærsti hlut-
hafinn í Fluglestinni – þróunarfélagi.
Dýpið reyndist of mikið
„Út frá verkfræðilegum forsend-
um er dýpið í þessum leiðum of mik-
ið. Leið 4 er til dæmis að töluverðum
hluta undir sjó og út frá öryggiskröf-
um fylgja því vandræði varðandi
neyðarútganga. Það yrði erfitt í
framkvæmd. Leið 3 liggur m.a. undir
Fossvoginn. Það kemur í ljós að
brekkan [eftir að komið er yfir Foss-
voginn] yrði of brött að endastöðinni
[á BSÍ-reitnum]. Það falla því flest
vötn til þess Dýrafjarðar sem leið 1
er. Hún liggur um Smáralind, Vífils-
staði og Kringluna. Það sem mælir
með henni eru betri tengingar við út-
hverfin,“ segir Runólfur.
Hann segir fleiri en eina millistöð
koma til greina fyrir fluglestina. Sé
ein millistöð sé ferðatími frá Kefla-
víkurflugvelli innan við 20 mínútur.
Fluglestin þoli lengri ferðatíma.
Spurningakannanir bendi til þess.
Skoða millistöðvar fyrir fluglestina
Leið 1 er nú talin fýsilegust Á næstu vikum skýrist
hvort og þá hvernig kerfið verður tengt við borgarlínuna
Möguleg lega lestarganga
á höfuðborgarsvæðinu
REYKJAVÍK
KÓPAVOGUR
GARÐABÆR
HAFNARFJÖRÐUR
Heimild: Verkfræðistofan EFLA
Kársnes
Álftanes
Öskjuhlíð
Mjódd
Vífilsstaðir
Vatnsmýri
Hamra-
borg
Kringlan
Smára-
lind
Hvaleyrar-
holt
Straumsvík
LEIÐ 1
LEIÐ3
LEIÐ 4
LEIÐ 2
Nýi kjarasamningurinn sem Verka-
lýðsfélag Akraness og Elkem Isl-
and gerðu sl. föstudag er mjög góð-
ur og í anda samnings starfsmanna
Norðuráls, að mati formanns fé-
lagsins en samningurinn hefur nú
verið kynntur starfsmönnum. Á
vefsíðu VFLA eru tekin dæmi þar
sem segir t.d. að ofngæslumenn
hækki um 9% í heildarlaunum á
fyrsta ári samningsins. „Heild-
arlaun ofngæslumanns með 10 ára
starfsreynslu voru fyrir samning-
inn fyrir utan desember- og orlofs-
uppbætur 517.609 kr. en fara upp í
564.988 kr. sem er tæplega 50.000
kr. hækkun á mánaðarlaunum eða
eins og áður sagði 9,15%,“ segir
þar. Þá var bónuskerfið lagfært en
það getur gefið að hámarki 10,5%.
Orlofs- og desemberuppbætur
hækka umtalsvert og hækka um
11,3% á fyrsta ári. Þá var samið um
starfstengt nám í svokölluðum El-
kem-skóla.
Umtalsverðar hækk-
anir hjá Elkem