Morgunblaðið - 18.05.2017, Page 16

Morgunblaðið - 18.05.2017, Page 16
16 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2017 Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Áratuga reynsla Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Enda Kenny, forsætisráðherra Ír- lands, tilkynnti í gær að hann hygð- ist láta af embætti, eftir að hafa verið sex ár við stjórnvöl írsku rík- isstjórnarinnar. Kenny, sem er 66 ára, verður í forsæti þar til í byrjun júní þegar nýr formaður verður kjörinn í flokki hans, Fine Gael. Tími Kenny í pólitík á enda runninn Lok Enda Kenny, forsætisráðherra Írlands. SVIÐSLJÓS Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Vindar blésu enn hressilega um Do- nald Trump Bandaríkjaforseta í logni og blíðu vestanhafs í gær. Tvennt er nú í brennidepli; fréttir af beiðni hans til forstjóra alríkislögreglunnar, FBI, um að hætta rannsókn á meintum samskiptum fyrrverandi þjóðarör- yggisráðgjafa forsetans við Rússa, og sú staðreynd að hann lét utanrík- isráðherra Rússa á dögunum í té leynilegar upplýsingar um hryðju- verkasamtökin Ríki íslams sem Bandaríkjamönnum höfðu borist frá Ísraelum. Æpandi þögn Trump hefur verið iðinn við að tísta á twitter síðan hann settist í forseta- stólinn en athygli vekur að í gær- kvöldi hafði hann enn ekki tjáð sig persónulega um fréttir af minnisblaði James Comey, forstjóra FBI, frá fundi með forsetanum í febrúar. Tals- menn Trumps hafa þó harðneitað því að fréttirnar séu sannleikanum sam- kvæmar. „Ég vona að þú getir látið þetta falla niður,“ hefur Comey eftir forset- anum í ítarlegu minnisblaði sem dag- blaðið New York Times greindi frá í fyrrakvöld. Þar vísar Comey til sam- tals þeirra forsetans um rannsókn á meintum samskiptum Michael T. Flynn við Rússa. Bandarískir fjölmiðlar segja minn- isblað Comey sýna að Trump hafi reynt að hafa bein áhrif á rannsókn dómsmálaráðuneytisins og FBI á meintum tengslum samstarfsmanna Trumps við Rússlands. Nefndum Flynn var vikið úr starfi þjóðaröryggisráðgjafa eftir að upp komst að hann hafði rætt við Rússa um efnahagslegar refsiaðgerðir Bandaríkjamanna, áður en Trump tók við embætti forseta. Ennfremur kom í ljóst að Flynn laug um sam- skipti sín við sendiherra Rússlands í Bandaríkjunum, Sergey Kislyak. Í gær fór leyniþjónustunefnd öld- ungadeildar Bandaríkjaþings þess á leit við Comey að hann bæri vitni fyrir nefndinni, bæði á opnum fundi og á bak við luktar dyr. Trump rak Comey nýlega úr starfi forstjóra FBI sem kunnugt er. „Við verðum að fá staðreyndirnar fram,“ sagði Paul Ryan, flokksbróður forsetans, leiðtogi repúblikana í full- trúadeild þingsins, í gær. Haft var eft- ir bæði repúblikönum og demókrötum að rannsaka yrði málið ofan í kjölinn. Fram kom að þingið hefur farið fram á öll gögn um fund forsetans og FBI- forstjórans sem kunna að vera fyrir hendi í Hvíta húsinu, þ.á m. hljóð- upptökur. Þingið hefur og óskað eftir upplýsingum frá FBI um öll samskipti Comey við ýmsa embættismenn, m.a. Trump og Obama, fv. forseta. Enn blása vindar hressilega um forsetann í vorlogninu  Samskipti Trumps og forstjóra FBI skoðuð ofan í kjölinn  Enn ekkert tíst AFP Sögulegur fundur Demókratinn Adam Schiff, fulltrúi í leyniþjónustunefnd fulltrúadeildar þingsins, fyrir fund með fjölmiðlum í gær. Aftan við hann ljósmynd af Trump forseta og Lavrov, utanríkisráðherra Rússa, í síðustu viku. Önnur umfangsmikil netárás, mun stærri en árásin sem gerð var á tölvukerfi heimsins í síðustu viku, stendur nú yfir, að sögn sérfræðinga hjá tölvuöryggisfyrirtæki. Fram kemur í frétt frá AFP- fréttaveitunni að nýja árásin, sem nefnd er Adylkuzz, beinist að sömu veikleikunum og WannaCry-árásin. En í stað þess að frysta skrár og krefja eigendur þeirra einskonar lausnargjalds nýtir Adylkuzz-árásin hundruð þúsunda tölva sem talið er að hafi verið smitaðar af veiru sem nota má til að komast yfir netgjald- miðla og færa fé sem þannig verður til yfir á reikninga höfunda tölvu- veirunnar. Sérfræðingar hjá alþjóðlega tölvuöryggisfyrirtækinu Proofpoint hafa orðið varir við þessa nýju árás, að sögn Nicolas Godier, sem starfar hjá fyrirtækinu. Netgjaldmiðar á borð við monero og bitcoin nota tölv- ur sjálfboðaliða, sem fá stundum eitthvað fyrir sinn snúð, til að skrá færslur. Á tölvur þessara notenda herja netglæpamennirnir. Proof- point segir í bloggfærslu að vegna þess að þessi nýi tölvuormur láti lítið fara fyrir sér og tölvunotendur verði lítið varir við hann sé árásin mun ábatasamari fyrir netglæpamenn- ina. Í raun séu fórnarlömb árás- arinnar að styðja árásarmennina fjárhagslega án þess að vita af því. AFP Tölvubúnaður Fullyrt er að ný tölvuárás standi yfir þótt hljótt fari. Önnur netárás sögð vera yfirstandandi Donald Trump lýsti því yfir í gær að meðferð fjölmiðla á honum væri for- dæmalaus. Hann var þá viðstaddur brautskráningu nema úr skóla banda- rísku strandgæslunnar í Connecticut og ávarpaði útskriftarnemana. Forset- inn hvatti þá til að fylgja fordæmi hans og „berjast, berjast, berjast. Aldrei nokkurn tíma að gefast upp. Allt fer vel að lokum,“ sagði forsetinn. „Sjáið bara hvernig ég hef verið meðhöndlaður undanfarið. Sérstaklega af fjölmiðlum. Enginn stjórnmálamaður í sögunni, um það er ég alveg viss, hefur verið meðhöndlaður verr eða af meiri ósann- girni. Slíkt má þó ekki láta hafa áhrif á sig.“ Fordæmalaus ósanngirni TRUMP HVETUR NEMENDUR TIL DÁÐA Donald Trump og Erin Reynolds, nem- andi í strandgæsluskólanum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.