Morgunblaðið - 18.05.2017, Page 25
síðasta þegar ég heimsótti þig á
spítalanum voru móttökurnar
hlýjar og glaðlegar og þú tókst að-
stæðum með rólyndi og reisn. Það
er svo leitt að hugsa til þess að þú
verðir ekki hluti af lífi okkar
Hauks næstu áratugina. Ég man
enn þá stundu þegar ég áttaði mig
á því að börnin okkar Hauks
myndu eiga þriðja afann. Ég
minntist á það við Hauk og það var
líkt og hann hefði aldrei heyrt
neitt augljósara. Í mynd minni af
framtíðar fjölskylduboðum og
barnaafmælum varst þú mættur,
glaður og kátur. Jafnvel með
myndavél á lofti. Ég vildi óska
þess að þú hefðir fengið meiri tíma
og ég hefði fengið að kynnast þér
betur.
Hvíl í friði.
Ylfa Rún.
Snemma á öldinni kynntumst
við Eyþór við græna borðið og
tókum marga slagina saman
næstu árin og fórum á hin ýmsu
bridgemót. Það var gott að spila
við hann, hann var ákveðinn og
geðgóður og mikill húmoristi. En
hann hafði einn galla, hann hlýddi
ekki alltaf makker, sagði að það
væri stundum ekki best að gera
það. Eflaust er það rétt á einhverj-
um gráum svæðum en kannski er
það líka með betri afsökunum þeg-
ar maður gleymir sér.
Hann var líka nágranni minn til
margra ára við Elliðaárdalinn og
kom stundum í kaffi á sólpallinn
og dró mig eitt sinn í margra
klukkutíma hjólreiðatúr alla leið
út að Gróttu og til baka, það var
góður dagur.
Á okkar heimili sóttist hann í
ráð í sambandi við tölvur og ljós-
myndun en fékk stundum í bónus
ráð til þess að finna sér lífsföru-
naut. En hann sagðist eiga nokkr-
ar þýskar vinkonur á Bridgebase,
þar sem hann spilaði reglulega
bridge á netinu, og spjallaði oft við
þær, og þar með var það mál út-
rætt.
Sumir vilja ferðast einir lífsins
veg og sumir ferðast einir lífsins
veg, þótt þeir vilji það ekki.
Eyþór var vandaður og góður
maður sem fór allt of fljótt, rétt
rúmlega sextugur.
Blessuð sé minning hans.
Að sigra heiminn er eins og að spila á
spil.
með spekingslegum svip og taka í nefið,
(Og allt með glöðu geði
er gjarnan sett að veði.)
Og þó þú tapir, það gerir ekkert til
því það var nefnilega vitlaust gefið.
(Steinn Steinarr)
Sigrún.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2017
Atvinnuauglýsingar
Vélavörður
Vísir hf. óskar eftir að fastráða vélavörð sem
getur leyst af yfirvélstjóra á Kristínu Gk 457.
Kristín er línuveiðiskip með beitningarvél.
Nánari upplýsingar gefur skipstjóri í síma
856-5730 eða á heimasíðu Vísis
www.visirhf.is.
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri, sem hér segir
Rjúpnasalir 12, Kópavogur, fnr. 226-8371 , þingl. eig. Friðbjörg
Arnþórsdóttir, gerðarbeiðandiTollstjóri, mánudaginn 22. maí nk. kl.
11:00.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
17. maí 2017
Tilkynningar
Í THE HIGH COURT OF JUSTICE Nr. CR-2016-006525
CHANCERY DIVISION
COMPANIES COURT
Í MÁLI ER VARÐAR
BOSWORTH RUN-OFF LIMITED
og Í MÁLI ER VARÐAR
BRAMPTON INSURANCE COMPANY LIMITED
og Í MÁLI ER VARÐAR
KNAPTON INSURANCE LIMITED
og Í MÁLI ER VARÐAR
MARLON INSURANCE COMPANY LIMITED
og Í MÁLI ER VARÐAR
MERCANTILE INDEMNITY COMPANY LIMITED
og Í MÁLI ER VARÐAR
UNIONAMERICA INSURANCE COMPANY LIMITED
og Í MÁLI ER VARÐAR
RIVER THAMES INSURANCE COMPANY LIMITED
og
Í MÁLI ER VARÐAR
VII. HLUTA
LAGA UM FJÁRMÁLAÞJÓNUSTU OG -MARKAÐI FRÁ 2000
HÉR MEÐ TILKYNNIST að í samræmi við 114. gr. laga um fjármálaþjónustu og -markaði
2000 („lög um fjármálaþjónustu“) kvað dómstóllinn High Court of Justice í Englandi og
Wales upp úrskurð hinn 7. apríl 2017 samkvæmt 111. og 112. gr. laga um fjármálaþjónustu
sem heimilaði áætlun („áætlunin“) sem fól í sér framsal vátryggingastarfsemi (sem tekur til
vátrygginga, eigna og skulda) Bosworth Run-Off Limited, Brampton Insurance Company
Limited, Knapton Insurance Limited, Marlon Insurance Company Limited, Mercantile
Indemnity Company Limited og Unionamerica Insurance Company Limited (framseljendur)
til River Thames Insurance Company Limited (framsalshafi).
Á meðal þess sem framsalið tekur til eru allar vátryggingar sem hver framseljandi hefur selt (og
ef við á, hefur tekið yfir með yfirfærslu vátryggingastofns) svo og allar eignir þeirra og skuldir.
Vátryggingartaki sem er með vátryggingarskírteini sem fellur undir framsalið samkvæmt
áætluninni og er staðfesting samnings um frumtryggingu þar sem annað EES-ríki en
Bretland er það ríki þar sem áhættan er staðsett, getur nýtt sér rétt sinn til að segja
vátryggingunni upp innan 21 dags frá birtingardegi þessarar tilkynningar eða þess annars
tímabils sem kveðið er á um í lögum viðkomandi ríkis.
Framsal vátryggingastarfsemi samkvæmt áætluninni tók gildi kl. 23.59 hinn 7. apríl 2017.
Hafir þú einherjar spurningar varðandi efni þessarar tilkynningar getur þú haft samband við
Berwin Leighton Paisner LLP aðAdelaide House, London Bridge, London, EC4R 9HA, Bretlandi.
Netfang: ProjectRiver.Transfer@blplaw.com Sími: +44 (0) 20 3400 3329 Tilv.: GQUI/OSAU
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9, gönguhópur 2 kl. 10.15, vatns-
leikfimi í Vesturbæjarlaug kl. 10.50, myndlist kl. 13. prjónakaffi kl. 13,
jóga kl. 18.
Árskógar 4 Smíðar og útskurður með leiðbeinanda kl. 9-16, helgi-
stund Seljakirkju kl. 10.30-11, handavinna með leiðbeinanda kl. 12.30-
16.30, myndlist með Elsu kl. 14.15-18.
Boðinn Brids og kanasta kl. 13.
Dalbraut 18-20 Bókabíllinn kl. 11.30.
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Upplestur kl. 10.15, botsía kl. 13.30.
kaffiveitingar kl. 14.30. Nánari upplýsingar í síma 411-2550. Verið öll
velkomin.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Bókband kl. 9-12, postulínsmálun kl. 9-
12, brids, frjáls spilamennska frá kl. 13-16.30, handavinna kl. 13.30-16,
prjónaklúbbur kl. 13.30-14. Verið velkomin á Vitatorg, Lindargötu 59,
síminn er 411-9450.
Garðabær Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl.
9.30-16. Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara í síma 617-
1503. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá kl. 14-15.45. Stólajóga í
Jónshúsi kl. 11. Qi-gong í Sjálandsskóla kl. 9.10. Karlaleikfimi í Sjá-
landsskóla kl. 13 og botsía í Sjálandsskóla kl. 13.45. Handavinnuhorn í
Jónshúsi kl. 13.
Gerðuberg 3-5 Opin handavinnustofa kl. 8.30-16, samverustund kl.
10.30-11.30, perlusaumur kl. 13-16, bútasaumur kl. 13-16, myndlist kl.
13-16.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.45 leikfimi, kl. 10.50 jóga, kl. 13
hreyfi- og jafnvægisæfingar, kl. 14 hreyfi- og jafnvægisæfingar.
Gullsmári Handavinna kl. 9, jóga kl. 9.30, ganga kl. 10, handavinna
og brids kl. 13, jóga kl. 18, hárgreiðslustofa á staðnum, velkomin!
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9,
opin handavinna kl. 9–14, hjúkrunarfræðingur kl. 9-10.30, jóga kl.
10.10-11.10, hádegismatur kl. 11.30, söngstund kl. 13.30, gítarspil og
allir syngja með. Kaffi kl. 14.30.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og
spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, opin vinnustofa frá
kl. 9, morgunleikfimi kl. 9.45, botsía kl. 10, matur kl. 11.30, Spiluð
félagsvist kl. 13.15, kaffisala í hléi.s
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnuð kl. 8.50, við hringborðið kl.
8.50, leikfimin með Guðnýju kl. 10, lífssöguhópur kl. 10.50, Selmu-
hópur kl. 13, sönghópur Hæðargarðs með Sigrúnu kl. 13.30, línudans
með Ingu kl. 15-16, síðdegiskaffi kl. 14.30. Á morgun föstudag er bíó í
Hæðargarði, allir velkomnir, nánar í síma 411-2790.
Korpúlfar Sundleikfimi kl. 7.30 í Grafarvogssundlaug, pútt á Korp-
úlfsstöðum kl. 10 og Sverrirskaffi á eftir, síðasta pútt vetrarins, mæt-
um því öll, tölvunámskeið kl. 10 í Borgum og kyrrðarstund kl. 12.20,
Skákhópur Korpúlfa mun tefla frá kl. 13 í Borgum, skákstjóri er Hlynur
Smári.
Selið Sléttuvegi Selið er opið í dag kl. 10-16, upp úr kl. 10 er boðið
upp á kaffi og gaman að koma í spjall og kíkja í blöðin, hádegisverður
kl. 11.30-12.30, kaffi og meðlæti selt á vægu verði kl. 14.30-15.30. Allir
eru hjartanlega velkomnir í Selið. Nánari upplýsingar hjá Maríu í síma
568-2586.
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 07.15, Billjard Selinu kl.
10.00, kaffispjall í króknum kl. 10.30, Jóga salnum Skólabraut kl. 11.00.
karlakaffi í safnaðarheimili kirkjunnar kl. 14.00. Ath, handverkssýning
félags og tómstundastarfs eldri borgara verður opnuð fimmtudaginn
25. maí á degi eldri borgara/uppstigningadag. Móttaka á munum á
sýninguna stendur yfir.
Stangarhylur 4, Zumba Gold námskeið kl. 10.30 leiðbeinandiTanya.
Ferð í Reykjanes við Ísafjarðardjúp 26.–28. júní, 3ja daga ferð þar sem
náttúruperlur Vestfjarða verða skoðaðar m.a. Vatnsfjörður, Snæfjalla-
strönd, Unaðsdalur o.fl. Gisting á Hótel Reykjanesi. Uppl. og skráning
í s. 588-2111.
Smáauglýsingar
Bækur
Bækur til sölu
Reykjavíkurbiblía 1859, gott
band, V-Skaftfellingar 1-4 m.k.,
Huckleberry Finn 1884, 1. útg. í
Englandi, Henderson 1818, 1.
útg., Stundatal, Jón Thorlacius,
1855, Lestrarbók handa alþýðu á
Íslandi 1874, Sáðmenn, Steinar
Sigurjónsson, Dýra- og steina-
fræði, Benedikt Gröndal, 1878
gott band., Fornyrði Lögbókar
1854, Almenn jarðafræði og
landskipan, Gunnlaugur Odds-
son, Om Islands Geologi, Helgi
Péturs, 1905, Fornmannasögur
1-12 gott band, Bréf til Láru,
1. útg., Svartar fjaðrir 1. útg.
Upplýsingar í síma
898 9475.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Ýmislegt
Aðalfundur
Aðalfundur Sálarrannsóknarfélags
Íslands verður haldin sunnudaginn
24. maí kl. 18:00 í húsakynnum
félagins að Hamraborg 1, Kópavogi.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundastörf
samkvæmt lögum félagsins.
Stjórn Sálarrannsókanrfélags
Íslands
Bílar
Sjö manna dökkblár Mitsubishi
Montero árgerð 2005 innfluttur frá
Bandaríkjunum - ekinn 107 þús mílur
(172 þús km). Er með svörtu leðri að
innan auk DVD spilara, með skjá í
loftinu. Fjarstart innbyggt í fjarstýr-
ingu - ómetanlegt að vetri til. Búið að
skipta um tímareim. Fjögur nagladekk
fylgja. Verð 990.000 kr.
Uppl. í síma 690-7525.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
Húsviðhald
VIÐHALD
FASTEIGNA
Lítil sem stór verk
Tímavinna eða tilboð
℡
544 4444
777 3600
jaidnadarmenn.is
johann@2b.is
JÁ
Allir iðnaðarmenn
á einum stað
píparar, múrarar, smiðir,
málarar, rafvirkjar
þakmenn og flísarar.
Hreinsa
þakrennur
ryðbletta þök og tek
að mér ýmis smærri
verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Þjónustuauglýsingar
Fáðu Tilboð hjá söluráðgjafa
í síma 569 1390
eða á augl@mbl.is
hennar sitjandi við útvarpið með
prjóna í hendi.
Sem barn fékk ég oft að fara
með ömmu upp í sumarbústað og
eyða með þeim helginni í róleg-
heitum. Þá var mikið spjallað, spil-
að og slappað af í pottinum. Amma
var ótrúlega skemmtileg kona og
við nöfnur nutum okkar vel í sam-
veru hvor við aðra, þetta voru góð-
ar stundir og í dag dýrmætar
minningar.
Elsku amma mín, takk fyrir all-
ar góðu stundirnar og minning-
arnar, hvíldu í friði. Þín,
Vilborg.
Amma kær, ert horfin okkur hér,
en hlýjar bjartar minningar streyma
um hjörtu þau er heitast unnu þér,
og hafa mest að þakka, muna og geyma.
Þú varst amma yndisleg og góð,
og allt hið besta gafst þú hverju sinni,
þinn trausti faðmur okkur opinn stóð,
og ungar sálir vafðir elsku þinni.
Þú gættir okkar, glöð við undum hjá,
þær góðu stundir blessun, amma kæra.
Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá
í hljóðri sorg og ástarþakkir færa..
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Við kveðjum þig, amma, með
söknuð í hjarta,
Bryndís Ýrr Pálsdóttir, Krist-
björg Pálsdóttir og Kristín
Andrea Pálsdóttir.