Morgunblaðið - 18.05.2017, Síða 31

Morgunblaðið - 18.05.2017, Síða 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2017 Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is „Ég hef lesið ævisögur hans og finnst hann magnað skáld sem lifði mögn- uðu lífi,“ segir Sigurður Bragason tónskáld um Jón Arason Hólabiskup sem hálshöggvinn var í Skálholti árið 1550. Í tilefni þrjátíu ára afmælis Ár- bæjarkirkju hefur Sigurður samið nýtt tónverk eftir ljóðum Jóns. Kór Árbæjarkirkju og Kammerkór Rey- kajvíkur munu flytja verkið í kirkj- unni í kvöld og ber það titilinn Einn lagrænn píslargrátur. Þetta er annað tónverkið sem frumflutt er eftir Sig- urð á þessu ári en fyrir tveimur mán- uðum var verkið Passía Krists flutt eftir hann í Langholtskirkju af tvö hundruð og fimmtíu manna kór og fjórum einsöngvurum. „Þetta er búið að vera mikil vinna en skemmtileg,“ segir Sigurður sem vann að báðum verkunum samtímis. „Undirbúningurinn hefur gengið vel en þetta hefur verið mjög erfiður tími því ég var að klára hitt verkið fyrir tveimur mánuðum og var síðan einnig byrjaður á þessu verki. Hitt verkið var mjög ólíkt þessu – það var miklu nútímalegra og ómstríðara. Ég hélt að þetta næðist aldrei. En með mikilli vinnu langt fram á nætur tókst mér að ljúka við hvort tveggja. Síðan hafa æfingarnar verið alveg stans- lausar í marga mánuði á þessum tveimur verkum.“ „Man ekki eftir að hafa samið svona lagrænt verk áður“ Sigurður er tónskáld, kórstjóri og söngvari með langan feril að baki. Hann hefur stjórnað Árnes- ingakórnum í Reykjavík, Kór Kvennaskólans í Reykjavík, Kamm- erkór Nýja tónlistarskólans og nú Kammerkórnum í Reykjavík. Sem söngvari hefur hann flutt verk eftir mörg helstu skáld tónlistarsögunnar og hlotið lof fyrir einsöngstónleika, m.a. í Royal Concertgebouw í Amst- erdam, einleikssal Carnegie Hall í New York, John F. Kennedy Center for the Performing Arts í Wash- ington DC, Wigmore Hall íLondon, Klettakirkjunni í Helsinki og Edvard Munch safninu í Osló.„Það er gaman að geta haldið þessu áfram þegar maður er kominn á sjötugsaldur,“ segir Sigurður. „Maður sér til hvernig tíminn vinn- ur með manni.“ Að ósk Krisztinu Kallo Szklenár organista átti nýja verkinu að svipa til fyrra verks Sig- urðar, Ave Maríu sem samin var eftir texta Valdimars Lárussonar. „Ég ákvað að fara eftir því og semja virki- lega lagrænt verk með rætur í popp- tónlist allt eins og í kirkjulegri tón- list,“ segir Sigurður. „Ræturnar koma hljómrænt séð frá þessum hlut- um. Ég man ekki eftir að hafa samið svona lagrænt verk áður. Þetta var mjög gaman. Maður var nánast að semja lög sem allir gætu sungið.“ „Eitt merkasta skáld Íslendinga“ „Þar sem verkið verður líka flutt í Skálholti hef ég haft svolítinn áhuga á Jóni Arasyni,“ segir Sigurður. „Það var magnað hvernig hann var tekinn af lífi í Skálholti þegar kaþólskan var lögð af, hversu dramatískt þetta var allt saman og hvernig mótmælendur hér fyrr tóku dramatískar ákvarðanir um að taka þessa menn af lífi eins og í Evrópu. Þetta voru gífurlega óhugn- anlegir hlutir. Erasmus hafði lagt til að þessi breyting á kirkjunni yrði ró- leg og í samræmi við allt og með vilja páfans og allra, að smám saman myndi kirkjan þróast, sem hún gerði auðvitað ekki. Þetta var ótrúlega dramatískur tími. Mér finnst þetta mjög spennandi tímar og gaman að geta flutt þessi verk eftir þetta frá- bæra skáld. Hann var á sínum tíma eitt merkasta skáld Íslendinga.“ Verk Sigurðar er byggt á Kross- vísum, Davíðsdiktum og Píslargráti Jóns. Verkið verður flutt klukkan átta í Árbæjarkirkju í kvöld áheyrendum að kostnaðarlausu og síðan aftur í Skál- holtskirkju 20. maí klukkan fjögur. Tónskáldið Sigurður Bragason samdi tónverk við ljóð Jóns Arasonar sem flutt verður í Árbæjarkirkju í kvöld. Lagrænir hljómar í Árbæjarkirkju  Tónleikar haldnir í tilefni þrjátíu ára afmælis kirkjunnar  Nýtt verk Sigurðar Bragasonar flutt eftir ljóði Jóns Arasonar Önnur úthlutun ársins úr Hönn- unarsjóði fór fram í gær. Alls var 22 milljónum króna úthlutað í almenna styrki og 1,5 milljónum í ferðastyrki. Samtals bárust 82 umsóknir um 166 milljónir, en hægt var að sækja um styrk í fjórum flokkum. Sex verkefni hlutu hæstan styrk eða 2 milljónir króna hvert. Þetta eru: STEiNUNN fyrir Haute Cout- ure Iceland; Hildur Björk Yeoman fyrir markaðssetningu í Bandaríkj- unum; Katrín Alda Rafnsdóttir fyrir KALDA; KRADS fyrir Nordiske veje, MAGNEA fyrir áframhaldandi markaðssókn erlendis og Erla Sól- veig Óskarsdóttir fyrir Mokka- húsgögn. Eitt verkefni hlaut styrk upp á 1,5 milljónir, það er Hugdetta fyrir 1+1+1. Sjö verkefni hlutu eina milljón í styrk. Þetta eru: Kjartan Óskarsson fyrir Halo mirror; Kolbrún Vaka Helgadóttir, Karna Sigurðardóttir og Sebastian Ziegler fyrir heimild- armynd um Hönnunarmars; GENKI Instruments fyrir markaðs- setningu á Wave; Telma Garð- arsdóttir fyrir Mói; Sonja Bent og Elín Hrund Þorgeirsdóttir fyrir Nordic angan – ilmbanki íslenskra jurta; Margrét Jónsdóttir fyrir Su- per black – sýningu á Norður- bryggju og Björn Loki Björnsson og Elsa Jónsdóttir fyrir Stúdíó kleina. 23,5 milljónum úthlutað í hönnun  17 verkefni styrkt og 15 ferðastyrkir Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Gleði Styrkþegar voru að vonum ánægðir með niðurstöðu úthlutunar úr Hönnunarsjóði þetta árið. Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is Elly (Nýja sviðið) Fim 18/5 kl. 20:00 30. sýn Fös 2/6 kl. 20:00 44. sýn Fös 9/6 kl. 20:00 50. sýn Fös 19/5 kl. 20:00 31. sýn Lau 3/6 kl. 20:00 45. sýn Lau 10/6 kl. 20:00 51. sýn Lau 20/5 kl. 20:00 32. sýn Þri 6/6 kl. 20:00 aukas. Sun 11/6 kl. 20:00 52. sýn Sun 21/5 kl. 20:00 33. sýn Mið 7/6 kl. 20:00 48. sýn Mið 14/6 kl. 20:00 53. sýn Fim 1/6 kl. 20:00 43. sýn Fim 8/6 kl. 20:00 49. sýn Fim 15/6 kl. 20:00 54. sýn Opnar kl. 18:30, frjálst sætaval. Panta verður veitingar með dags fyrirvara. Úti að aka (Stóra svið) Fim 18/5 kl. 20:00 31. sýn Lau 20/5 kl. 20:00 32. sýn. Síðustu sýningar leikársins! MAMMA MIA! (Stóra sviðið) Fös 19/5 kl. 20:00 170 s. Sun 28/5 kl. 20:00 177 s. Fös 9/6 kl. 20:00 184 s. Lau 20/5 kl. 13:00 171 s. Mið 31/5 kl. 20:00 178 s. Lau 10/6 kl. 20:00 185 s. Sun 21/5 kl. 20:00 172 s. Fim 1/6 kl. 20:00 179 s. Sun 11/6 kl. 20:00 186 s. Mið 24/5 kl. 20:00 173 s. Fös 2/6 kl. 20:00 180 s. Mið 14/6 kl. 20:00 Sing-along Fim 25/5 kl. 20:00 174 s. Lau 3/6 kl. 20:00 181 s. Fim 15/6 kl. 20:00 188 s. Fös 26/5 kl. 20:00 175 s. Mið 7/6 kl. 20:00 Sing-along Lau 27/5 kl. 20:00 176 s. Fim 8/6 kl. 20:00 183 s. Allra síðustu sýningar komnar í sölu! Blái hnötturinn (Stóra sviðið) Sun 21/5 kl. 13:00 aukas. Fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra Snæs Magnasonar RVKDTR- THE SHOW (Litla svið) Fim 18/5 kl. 20:00 3. sýn. Lau 20/5 kl. 20:00 4. sýn. Lau 3/6 kl. 20:00 5. sýn. Reykjavíkurdætur taka yfir Litla sviðið og láta gamminn geisa. Elly - haustið 2017 (Stóra sviðið) Fim 31/8 kl. 20:00 1. sýn Fim 7/9 kl. 20:00 4. sýn Sun 10/9 kl. 20:00 7. sýn Fös 1/9 kl. 20:00 2. sýn Fös 8/9 kl. 20:00 5. sýn Fim 14/9 kl. 20:00 8. sýn Lau 2/9 kl. 20:00 3. sýn Lau 9/9 kl. 20:00 6. sýn Fös 15/9 kl. 20:00 9. sýn Sýningar í haust komnar í sölu. Fjarskaland (Stóra sviðið) Sun 21/5 kl. 13:00 Sun 28/5 kl. 13:00 Sun 11/6 kl. 13:00 Nýtt íslenskt barnaleikrit eftir Góa! Húsið (Stóra sviðið) Lau 20/5 kl. 19:30 Fim 1/6 kl. 20:00 Lau 27/5 kl. 19:30 Lau 10/6 kl. 19:30 Frumuppfærsla á áður ósýndu verki eins helsta leikskálds Íslendinga. Tímaþjófurinn (Kassinn) Fim 18/5 kl. 19:30 20.sýn Lau 20/5 kl. 19:30 19.sýn Fim 1/6 kl. 19:30 23.sýn Fös 19/5 kl. 19:30 21.sýn Fös 26/5 kl. 19:30 22.sýn Einstakt verk um ástina ■ um óslökkvandi þrá, höfnun og missi Maður sem heitir Ove (Kassinn) Sun 21/5 kl. 19:30 Sun 28/5 kl. 19:30 Lokasýning Siggi Sigurjóns og Bjarni Haukur sameina krafta sína í bráðfyndnum einleik! Álfahöllin (Stóra sviðið) Fim 18/5 kl. 19:30 10.sýn Fös 19/5 kl. 19:30 11.sýn Ný sýning eftir Þorleif Örn Arnarsson! Gísli á Uppsölum (Kúlan) Lau 20/5 kl. 17:00 17.sýn Sun 21/5 kl. 17:00 18.sýn Einstakt leikverk um einstakan mann í uppfærslu Kómedíuleikhússins. Naktir í nátturunni (None) Fim 15/6 kl. 19:30 ÁHUGASÝNING ÁRSINS leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.