Morgunblaðið - 19.05.2017, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 19.05.2017, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2017 www.kvarnir.is 20 ÁRA 1996 2016 Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Álfhellu 9 | 221 Hafnarfirði sími 564 6070 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is Eigum úrval af álhjóla- og veggjapöllumÁlhjóla og veggjapallar Sorpkvarnir íeldhúsvaska Álstigar og tröppur fyrir iðnaðarmenn Íslensk framleiðsla í 32 ár Tröppur frá Þ eir sem fjárfest hafa í heit- um potti geta vitnað um hvað þessi litla viðbót við heimilið getur breytt miklu. Í heita pottinum gerast skemmtilegir hlutir; þar má leyfa streitunni að líða úr líkamanum, eiga í innilegum samræðum við ætt- ingja og vini, eða einfaldlega njóta þess að láta sólina skína á kroppinn í góða veðrinu. Halldór R. Vilbergsson er þjón- ustustjóri hjá Tengi en fyrirtækið hefur um árabil flutt inn vandaða raf- magns-nudpotta frá bandaríska framleiðandanum Sundance Spas. Halldór segir söluna ganga ágætlega og úrvalið gott. „Sölutímabil heitra potta er að ganga í garð um þessar mundir og eigum við von á nýrri sendingu innan skamms.“ Framleiðendurnir leita stöðugt leiða til að bæta hjá sér heitu pottana, og segir Halldór að í tilviki nuddpott- anna frá Sundance Spas sé orðið rétt- ara að tala um munaðarnuddstöð en nuddpott. „Greinilegasta framþróun- in undanfarin ár hefur verið í hönnun nuddstútanna. Er nuddið orðið kraft- meira en áður og hefur líka tekist að framkalla hreyfingu í vatnsbununni svo að tilfinningin fyrir vöðvana er orðin enn líkari því að hendurnar á vönum nuddara vinni á líkamanum.“ Afþreying og kælir Hafa Sundance og fleiri framleið- endur líka verið iðnir við að bæta alls kyns tækni við pottana og má t.d. panta nuddpotta með innbyggðum hljómflutningstækjum, ljósakerfi, litlum kæli og hirslu fyrir handklæði Hægt að kveikja á pottinum í gegnum snjallsímann Nuddpottarnir frá Sundance Spas verða sífellt fullkomnari. Hægt er að velja sniðugan aukabúnað á borð við hljómkerfi, ljósakerfi eða lítinn kæli. Halldór Vilbergsson hjá Tengi notar sinn nuddpott allan ársins hring. Samvera Í nuddpottinum gefst tækifæri til að ræða málin og rækta sambandið við vini og ættingja, samhliða góðu nuddi. Potturinn lengir líka sumarið enda heitur og notalegur allt árið um kring. Morgunblaðið/Ófeigur Dekur Halldór og konan hans nota nuddpottinn mikið og þykir ljúft að liggja þar í makindum og hlusta á útvarpið. Nuddið og hitinn gera heilsunni gott. Umhirða Sundance pottarnir hreinsa sig hér um bil sjálfir og viðhaldi í lágmarki.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.