Morgunblaðið - 19.05.2017, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2017
Rafhitun
Ryðfríir neysluvatnshitarar, hitöld (element),
hitastillar, hitastýringar, rafhitarar til húshitunar
og flest annað til rafhitunar.
Við hjá Rafhitun erum sérfræðingar í öllu sem við
kemur rafhitun. Við bjóðum einungis úrvals tæki
sem hafa sannað sig með áralangri reynslu.
Rafhitarar fyrir heita potta
Kaplahrauni 19 • Hafnarfirði • Sími: 565 3265 • ww.rafhitun.is
íslensk
framleiðsla
í 25 ár
Hiti í bústaðinn
Viðhaldið alls ekki flókið
Að ýmsu þarf að huga þegar fjárfest er í heitum potti. Er t.d. hægt að
fara ódýrustu leiðina og kaupa einfalda plastskel með niðurfalli, og fylla
með hitaveituvatni, eða eignast fullkominn rafdrifinn heitan pott með
nuddi og öllu tilheyrandi. Ólíkar tegundir potta hafa bæði sína kosti og
galla og bendir Halldór á að mörgum þyki t.d. alveg ómissandi að geta
fengið kröftugt nudd í pottinum en aðrir eru aðeins að leita að þægileg-
um stað til að láta fara vel um sig í heitu vatni. Rafmagnspottarnir geti
hentað þeim sem vilja nota pottinn oftar, en heitavatnsskeljarnar gætu
verið betri kostur á þeim stöðum þar sem potturinn er lítið notaður.
„Heitur potutr er ekki það sama og heitur pottur“, segir Halldór.
„Margir spyrja hvort mikill munur sé á rekstrarkostnaðinum, en yf-
irleitt er hvorki dýrt né flókið að eiga hvort heldur er, rafmagns- eða
heitavatnspott. Í tilviki rafmagnspottanna þarf ekki að skipta um vatnið
í pottinum nema tvisvar til fjórum sinnum á ári, og bæta ögn af mjúkum
klór út í eftir notkun og hefur klórinn þá hreinsað vatnið og gufað upp
næst þegar potturinn er notaður.“
Eitt sem Íslendingar ættu að gæta sérstaklega að er að potturinn sé
nægilega djúpur. Íslendingar eru hávaxinn þjóðflokkur og sjaldan mik-
ill hiti í lofti. Geta því herðarnar orðið kaldar ef þær komast ekki ofan í
heitt vatnið. Halldór segir dýpt sætanna ekki vandamál í nuddpottunum
frá Sundance Spas. „Sjálfur er ég 188 cm á hæð og þegar ég sit í mínum
potti flýtur vatnið vel yfir axlirnar og fer vel um jafnt hávaxna sem lág-
vaxna.“
Svo eru sumir sem óttast að heitur pottur geti verið slysagildra. Hall-
dór segir alla pottana frá Tengi vera með loki. „Lokið á nýju pottunum
er úr slitsterkara efni sem heldur líka hitanum betur í pottinum. Á lok-
unum eru smellur svo að börn og dýr eiga ekki að komast í pottinn í
leyfisleysi, og heldur ekki hætta á að lokið fjúki af í roki. Er hægt að
læsa lokinu föstu og þá tryggt að aðeins þeir sem eiga að nota pottinn
geti fjarlægt lokið.“
og fleira smálegt. „Pottarnir eru líka
orðnir þannig úr garði gerðir að
tengja má þá við þráðlausa netið og
fjarstýra í gegnum snjallsímaforrit.
Ef leiðin liggur t.d. upp í bústað er
hægt að ræsa heita pottinn áður en
lagt er af stað úr bænum, kveikja á
öllum dælum og ljósum og hækka
hitastigið svo að potturinn verði tilbú-
inn á réttum tíma.“
Hreinsibúnaðurinn hefur einnig
batnað og segir Halldór að nýjustu
nuddpottar Sundance séu búnir svo-
kallaðri Clearray-tækni sem notar út-
fjólubláa geisla til að drepa 99,9% af
öllum örverum í vatninu. Eykur sam-
spil nýrrar hringrásardælu og síunar
hreinsigetuna sjöfalt á við sambæri-
lega potta frá öðrum framleieðndum.
„Clearray-hreinsibúnaðurinn þarf að-
eins lágmarks viðhald og mælt er
með að skipta um útfjólubláu ljósa-
peruna einu sinni á ári.“
Flestir pottarnir sem Tengi selur
eru í kringum 2 x 2 metrar að stærð
og rúma á bilinu 4-6 fullorðna. Skelj-
arnar eru mótaðar á ýmsa vegu enda
vilja sumir pott með legubekk á með-
an aðrir vilja hafa sæti fyrir sem
flesta. „Í nuddpottum Sundance Spas
er hvert sæti hannað sem nuddstöð
fyrir ákveðinn vöðvahóp og ákveðna
tegund af nuddi. Getur notandinn síð-
an fært sig á milli sæta til að fá nudd
allt frá herðum niður í iljar,“ segir
hann. „Til að auka enn meira á slök-
unina getur potturinn boðið upp á
ilmmeðferð, ljósa- og tónlistar-
meðferð sem gera alveg út af við
streituna.“
Sólbrúnn í apríl
Heitur pottur getur ekki aðeins end-
urnært líkama og sál heldur eykur
hann notagildi garðsins. Ef hitastigið
úti leyfir ekki beinlínis að vera létt-
klæddur utandyra þá er potturinn
alltaf heitur og notalegur. „Fyrir
skemmstu dreif ég mig í pottinn einn
góðviðrisdag í apríl, og lét fara vel um
mig í sólinni. Þegar ég kom aftur til
vinnu tveimur dögum síðar héldu
vinnufélagarnir að ég hefði skroppið
á sólarströnd því ég hafði tekið svo
mikinn lit,“ segir hann. „Potturinn er
notaður á öllum árstímum, og jafnvel
hefur gerst að skotist er í nuddpott-
inn klukkan 4 á aðfangadag til að
slaka á og eiga gæðastund saman áð-
ur en jólin ganga í garð.“ ai@mbl.is
Stáss Flottur nuddpottur úti á palli getur fljótt orðið að miðpunkti heimilisins og sannkallaður sælureitur.
Huggulegheit Sumir nota nuddpottinn til að skrúfa frá sjarmanum. Þá má plássið ekki vanta.
Lögun Hægt er að velja ýmsar útfærslur. Hvert sæti nuddar ákveðna vöðva.
Þegar efnt er til garðveislu er gaman að geta fyllt ílát með
klaka og drykkjum. Þeir sem eru í leit að kæliboxi sem ræður
við allra villtustu veislurnar ættu að skoða nýjustu vöruna frá
OtterBox.
OtterBox er þekktast fyrir að framleiða vatns- og höggheld
snjallsíma- og spjaldtölvuhulstur. Hafa hönnuðir fyrirtæk-
isins núna beitt þekkingu sinni til að gera nautsterkt kælibox
sem á að þola hér um bil hvað sem er. Einangrunin á að duga
til að halda ís frosnum í allt að 14 daga, og er meira að segja
búið að gera prófanir til að ganga úr skugga um að skóg-
arbirnir geti ekki opnað boxið.
Má kaupa sniðuga aukahluti eins og skurðarbretti sem fest
er á brún kæliboxins, drykkjarmálahaldara, og box til að
skipuleggja kælihólfið betur. ai@mbl.is
Kælibox fyrir þá kröfuhörðu
Læsing Bangsi kemst ekki í boxið. Styrkur Stundum dugar ekkert minna en ódrepandi kælibox.