Morgunblaðið - 19.05.2017, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2017
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
295
Vinnuvettlingar
PU-Flex
1.395
Öflugar Volcan
malarskóflur
á frábæru
verði frá 365
Ruslapokar 120L
Ruslapokar 140L
Sterkir 10/50stk
Greinaklippur
frá 595
585
Strákústar
á tannbursta
verði
Garðkló Garðskófla
595
1.995
Öflug
stungu-
skófla
Garðverkfæri í miklu úrvali
frá 1.995
Garðslöngur
í miklu úrvali
Fötur í
miklu úrvali
4.995
Hakar, hrífur, járnkarlar, kínverjar,
sköfur, skröpur, fíflajárn, fötur,
balar, vatnstengi, úðarar,
stauraborar.........
Léttar og góðar hjólbörur
með 100 kg burðargetu
Úðabrúsar
í mörgum stærðum
frá 995
999
Barna-
garðverk-
færi
frá 395
Ruslatínur
frá 295
Sláttuorf
3.999
Þegar Berglind dvaldi í fríi með fjöl-
skyldu sinn í Bandaríkjunum fyrir
nokkrum árum komust þau upp á
lagið með að grilla ferska maískólfa.
Lengi vel var ekki hægt að finna heil-
an ferskan maís í íslenskum versl-
unum en Berglind segir að nú hafi
það breyst og skellir hún gjarnan
nokkrum kólfum í körfuna þegar þeir
eru í boði.
Það er mjög einfalt að grilla fersk-
an maí, en það er mikilvægt að
leggja hann fyrst í bleyti. „Dugar að
setja kólfana í vatnsbað í vaskinum í
a.m.k. 15 mínútur og allt upp í
klukkutíma. Blöðin á maísnum eru
þurr og eldfim en með þessu móti er
ekki hætta á að taki að loga í þeim
þó maísinn fari á grillið.“
Þarf maísinn 15-20 mínútna eldun
á grillinu. Þá eru blöðin tekin af og
kólfarnir bornir fram með smjöri og
salti eða öðru góðu kryddi. Má skella
þeim aftur á grillið örstutt til að fá
fallegar grillrákir og stökkara yf-
irborð.
Talandi um bætt framboð af
grænmeti og ávöxtum, þá er einn af
uppáhaldsforréttum Berglindar
ómótstæðilegur fíkju-réttur. Þegar
efnt er til grillveislu er ágætt að geta
boðið gestum upp á forrétt svo þeir
bíði ekki of lengi með tóman mag-
ann eftir aðalréttinum, og þá upp-
lagt að grilla fíkjuréttinn enda léttur
og ljúffengur. „Fíjkurnar sker ég í
tvennt, set stóran mozarella bita of-
an á hvorn helminginn, og vef inn í
parmaskinku. Fer þetta á grillið
þangað til parmaskinkan er orðin
stökk og útkoman er hreint dásam-
leg, og bæði holl og góð.“
Ómótstæðilegir maískólfar
Hráefni
4 ferskar fíkjur
2 mozzarella-kúlur
8 sneiðar góð hráskinka
falleg og góð salatblöð
gott balsamikedik
8 trépinnar, stuttir
Aðferð
Skerið fíkjurnar í tvennt og mozzarella-kúlurnar
í 4 hluta.
Leggið mozzarella-ostinn og fíkjuna saman,
vefjið góðri hráskinku utan um og stingið tréprjóni
í gegn.
Grillið í nokkrar mínútur á hvorri hlið – hvort
sem er undir heitu grilli í ofni eða á útigrillinu.
Setjið gott salat á disk, leggið fíkjuna yfir og
dreypið nokkrum dropum af góðu balsamik ediki
yfir áður en borið er fram.
Grillaðar ferskar fíkjur með
mozzarella og hráskinku
Brögð Fíkjurnar, ost-
urinn og skinkan eru
eins og sköpuð fyrir
hvort annað.
Hráefni
1 laxflak.
1 sítróna – ríflega helmingur skorinn í
þunnar sneiðar.
1 appelsína – ríflega helmingur skorinn
í þunnar sneiðar.
3-4 msk. gróft skornar ferskar krydd-
jurtir t.d. flatblaðasteinselja, timían,
oreganó.
Sjávarsalt.
Nýmalaður svartur pipar.
olífuolía.
Aðferð
Blandið saman ólífuolíu, safa úr tæp-
lega hálfri sítrónu og tæplega hálfri
appelsínu og penslið laxflakið.
Kryddið með gróft skornum krydd-
jurtum, salti og pipar og látið standa í
15 – 30 mín.
Raðið sítrónu- og appelsínusneiðum
á flakið.
Setjið laxinn á vel heitt grill, snúið
roðinu niður. Laxinn er grillaður allan
tímann á roðhliðinni, honum er ekki
snúið.
Hafið grillið lokað og grillið í 15 – 20
mínútur. Berið fram með dásamlegum
grilluðum aspas og/eða góðu grænu
salati og kartöflum. Biti Lax er hollur matur og einstaklega ljúffengur ef hann fer á grillið.
Grillaður lax með sítrus-ávöxt-
um og ferskum kryddjurtum