Morgunblaðið - 19.05.2017, Page 16

Morgunblaðið - 19.05.2017, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2017 Í sumar verða liðin 50 ár frá því að Gróðrarstöðin Mörk í Foss- vogsdal var stofnuð. Sigríður Helga Sigurðardóttir og maður hennar Guðmundur Vernharðsson, Mummi, keyptu reksturinn árið 2000 af stofnendunum, þeim Mörthu C. Björnsson og Pétri N. Ólafssyni. „Mummi hafði þá starfað hjá þeim frá 16 ára aldri og grunar mig að Martha og Pétur hafi viljað selja okkur fyrirtækið því þau vissu að gróðrarstöðin myndi vera í góðum höndum. Að reka gróðr- arstöð er nefnilega ekki eins og annar rekstur, og kallar á að hafa næma tilfinningu fyrir plöntunum og ákveðið innsæi,“ segir Sigríður. Er óhætt að kalla Guðmund og Sigríði samrýmd hjón en þau deila ástríðu fyrir öllu sem viðkemur blómum, trjám og garðrækt. „Göngutúrarnir okkar snúast um að spá og spekúlera í plöntum og greinabyggingu, og skoða fallega garða,“ segir Sigríður en bæði eru þau garðyrkjumenntuð. Stór blóm í sterkum litum Garðar landsmanna taka breyt- ingum í takt við tísku og tíðaranda. Þá hefur aukið skjól og batnandi veðurfar gert mögulegt að rækta plöntur sem áður gátu ekki þrifist í íslenskum görðum. Spurð um vin- sælustu blómin þetta sumarið seg- ir Sigríður að hortensían sé að koma mjög sterkt inn. „Hún er ægifögur jurt með fallega og stóra blómknúppa, fáanleg í nokkrum litum og stendur lengi í blóma. Sólbrúðurin heillar líka marga með sinn djúpa bláleita lit. Einnig á ég von að hengibrúðarauga og dalía muni sjást í mörgum görðum í ár.“ En hvað ræður því hvaða blóm eru vinsælust hverju sinni? Sigríð- ur segir að til séu ákveðnar kenn- ingar um að fatatískan hafi áhrif á blómatískuna og gæti það passað því að bláir og bleikir litir eru áberandi í tískuverslununum um þessar mundir og svipaðir litir eft- irsóttir í blómunum. „En umfram allt held ég að blómaflóran á Ís- landi ráðist af því hvaða tegundir þrífast vel og eru blómviljugar við íslenskar aðstæður.“ Segir Sigríður að að þessu leyti sé blómamenningin á Íslandi ólík öðrum löndum, og vilja landsmenn helst ekki planta í garðinn sinn oftar en einu sinni á sumri. „Er- lendis byrjar fólk oft að planta í mars, skiptir svo út í maí, aftur síðsumars og svo jafnvel enn eina ferðina fyrir veturinn. Hinn al- menni íslenski garðræktandi er yf- irleitt bara með eina útplöntun og vill tegundir sem haldast lengi í blóma. Við höfum líka greint það síðustu sumur að fólk sækir meira í fjölærar blómplöntur til að ein- falda garðverkin.“ Gaman er að hafa glæsilegt tré eða runna í garðinum, og getur veitt gott skjól. Sigríður segir að vanda verði valið og finna trénu eða runnanum hentugan stað. „Alaskaöspin á t.d. lítið erindi í venulegan einkagarð, en veitir hins vegar heilmikið skjól á stórum opnum svæðum.“ Víða í þéttbýli er alaskaöspin farin að verða til vandræða og seg- ir Sigríður að megi ekki fordæma þetta fallega tré, sem geti verið gott til síns brúks á réttum stöð- um. Íslendingar eigi alaskaöspinni ýmislegt að þakka. „Foreldrar mínir fæddust fyrir seinna stríð og frá þeim hef ég heyrt hvað fólk var hissa að sjá að trjágrjóður gæti yf- irhöfuð vaxið á Íslandi. Fyrir vikið varð það viðhorf ríkjandi að það mætti helst ekki hagga við alas- kaöspinni eða öðrum trjám. Í dag hefur þetta viðhorf breyst og fólk er orðið óhræddara við að grisja burtu tré og breyta til í garð- inum.“ ai@mbl.is Stór blóm með sterka liti Sigríður hjá Gróðrarstöð- inni Mörk segir að kenn- ingar séu til um að tískan í blómunum haldist í hendur við fatatískuna. Sólbrúður, hortensía og hengibrúðarauga ættu að prýða marga garða í sumar. Klassík Hvít blóm virðast alltaf í tísku enda passa þau vel við nánast hvað sem er. Morgunblaðið/Golli Samheldin Guðmundur og Sigríður hafa mikið yndi af blómum og eru boðin og búin að veita öllum sem heimsækja Mörk ráðgjöf um allt sem við kemur garðrækt. Eflaust ganga sumir lesendur með þann draum í maganum að fylla garðinn og pallinn af fallegum blómum og trjám, en vita ekki hvar á að byrja og óttast að gera mis- tök. Sigríður segir að vissulega þurfi ákveðna þekkingu til að gera fallegan garð, og þurfi t.d. að huga vandlega að plöntuvalinu og gæta þess að hver planta fái það skjól og birtu sem hún þarf. „En mistökin eru ekki dýr og fólk á ekki að vera hrætt við að prófa sig áfram. Við erum líka boðin og búin að veita leiðsögn, og ræða vandlega við viðskiptavinina um hvers konar garð þau langar til að skapa.“ Til að fá innblástur mælir Sigríð- ur með góðum göngutúr um hverf- ið, eða ferð í grasagarð. „Í grasa- görðunum eru allar plönturnar vandlega merktar og hægt að punkta hjá sér nafnið ef einhver jurtin heillar alveg sérstaklega.“ Minnir Sigríður á að það getur tekið langan tíma að rækta draumagarðinn, og eru fallegustu garðarnir afrakstur margra ára vinnu og aðhlynningar. „Þetta er langhlaup en ekki spretthlaup,“ segir hún. Er líka hægt að þjálfa grænu fingurna þó enginn sé garðurinn, og getur góður blómapottur úti á svölum rúmað falleg blóm og jafn- vel lítil tré. „Ég verð vör við að fólk sem býr í blokkum vill líka nota svalirnar til matjurtaræktunar. Það langar að rækta sitt eigið kál og kryddjurtir, og jafnvel jarðarber. Verður þá bara að gæta þess að skjólið sé gott og nóg af birtu, og muna síðan að vökva reglulega.“ Ekki vera hrædd við að prófa

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.