Morgunblaðið - 19.05.2017, Side 18

Morgunblaðið - 19.05.2017, Side 18
intýri. Um 160 ávaxtatrjáayrki komu til Nátthaga frá Leifi. Seinni árin hafa bæst við ný harðger yrki frá Norður-Ameríku og fleiri löndum með aðstoð þeirra Sæmundar og Jóns.“ Ólafur Sturla flutti inn fyrstu ávaxtatrén sín frá Finnlandi árið 2008 og hefur verið með miklar tilraunir frá þeim tíma. Hann hefur líka viðað að sér mikilli þekkingu á því hvernig hin ýmsu yrki pluma sig í íslenskri veðráttu. „Niðurstaðan er ánægjuleg,“ segir Á vaxtatré geta vel spjarað sig hér á landi, en þau þurfa skjól. Það þýðir ekk- ert að reyna að rækta þau úti á víðavangi,“ segir Ólaf- ur Sturla. Hann keypti Nátthaga 1987 og byrjaði strax að planta trjám og búa til skjól í nauðbitnum móa, mel og urðarhólum. „Hér var ekkert hús, vatn né rafmagn, ekkert tré þeg- ar ég byrjaði, bara túndrulegt fjallið fyrir ofan og ræktuð tún fyrir neðan og er oft ansi vindasamt enda mikið um vindstrengi frá fjöllunum.“ Hann stofnaði Náttaga Garð- plöntustöð 1990 og býr að góðri þekk- ingu á ávaxtatrjáarækt frá náms- árum sínum í garðyrkjufræðum í Noregi. En Ólafur Sturla hefur auk- inheldur gert töluverðar tilraunir með ávaxtatrjáarækt síðustu tíu árin. „Ég hafði ekki mikla trú á þessu í upphafi en svo byrjaði þessi bylgja,“ segir hann. Eftir að hafa fylgst með þeim Sæmundi Guðmundssyni á Hellu og Jón Þóri Guðmundssyni á Akranesi gera góða hluti í ávaxta- ræktinni hélt Ólafur Sturla til Finn- lands í september 2007 og heimsótti þrjár garðyrkjustöðvar, sem honum hafði verið bent á. Fljót að jafna sig þegar sumarið er gott Í kjölfarið keypti hann ávaxtatré frá Leif Blomqvist sem rekur Blomqvist Planteskole. „Hann er með mikið úr- val sem hann hefur prófað hjá sér,“ segir Ólafur Sturla og bendir á að Blomkvist Planteskole sé á sömu breiddargráðu og Reykjavík. Leifur sé því í ræktun sinni að takast á við marga sömu erfiðleikana og íslenskir garðyrkjuáhugamenn varðandi ýmsa veðurfarsþætti, þó vissulega sé líka annað mjög ólíkt. „Finnski veturinn er miklu kaldari með allt að fjörutíu gráðu frosti og í finnskum skógum verður á sumrin miklu hlýrra, en vor og haust eru oft ansi erfið eins og ger- ist hjá okkur. Ég endaði á að panta mikið frá honum og þannig byrjaði þetta æv- hann. „Það þarf litla hitabreytingu til að trén þrífist miklu betur og það hef- ur sýnt sig að þau eru fljót að jafna sig þegar gott sumar kemur, jafnvel þó að sumrin á undan hafi verið köld og blaut.“ Undanfarin ár hafa líka sýnt Ólafi Sturlu að ekki er þörf á jafn kulda- þolnum rótum fyrir íslenska ræktun og Leifur þarf að nota. Vel megi nota fleiri gerðir af grunnstofnum hér á landi. Ávaxtatrén þrífast best á „sólbaðsstaðnum“ Eigi ávaxtatrén hins vegar að þrífast þá þurfa þau að vera í skjólgóðu rjóðri eða í garði með sól á móti suð- austri, suðri eða suðvestri. Að sögn Ólafs Sturlu dugar þó oft að trén njóti sólar við hálfan daginn, ef aðstæður eru réttar. „Ég hef oft sagt við fólk að maður gróðursetji ávaxtatré á sama stað í garðinum og maður færi sjálfur í sólbað.“ Hann útskýrir að á Íslandi þurfi ávaxtatré allan þann hita sem þau geta fengið. „Ef þau standa í of mikl- um vindi, þá eyða þau of mikilli orku í að verja sig fyrir vindinum og þeim er kalt.“ Fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í ávaxtatrjáarækt er líka best að fara hægt í sakirnar. „Ég ráðlegg öllum byrjendum þegar þeir eru að fá sér t.d. kirsuberja-, plómu- eða peru- tré að byrja bara með eitt tré af hverri tegund,“ segir Ólafur Sturla. Standi hugurinn hins vegar til epla- trjáa þá þurfa trén að vera a.m.k. tvö og sitt af hvoru yrkinu, þ.e. sitt af hvorri eplatrjáategundinni. „Þetta er nauðsynlegt til að þau frjóvgi hvort annað,“ útskýrir hann. Því þó að epla- tré séu tvíkynja, þá þurfi blóm epla- trésins að fá frjó frá blómi af eplatré af öðru yrki. „Eplatré vill ekki frjó úr sjálfu sér, það vill frjó úr annarri sort með annað DNA.“ Þarf stundum að hjálpa býflugunum Alla jafna er það síðan hlutverk bý- flugna að bera frjó milli blómanna og sjá til þess að þau beri ávöxt. Þegar sumrin á Íslandi eru köld og blaut eins og stundum vill verða, þá þarf mannshöndin hins vegar að aðstoða við frjóvgunina. „Þegar svo er þá þurfum við að leika býflugur,“ segir Ólafur Sturla. „Þá velur maður þurr- an dag á meðan allt er í blóma til verksins og tekur lítinn pensil og not- ar hann til að bera frjóið á milli blómanna. Þetta gerir maður með því að dusta varlega í blóm á einu trénu og bera yfir í blóm á hinu trénu og svo koll af kolli fyrir hvert blóm.“ Blómgun sína byggja ávaxtatré Ávaxtatrén þurfa skjól og sólríkt umhverfi Aukin gróðursæld í þéttari byggðakjörnum landsins hefur ýmsa kosti í för með sér, m.a. þann að sá draumur íslenskra garðyrkjuáhugamanna að geta gætt sér á safaríkri plómu eða peru úr eigin garði þarf ekki endilega að vera svo fjarlægur lengur. Að ýmsu þarf þó að huga. Litir Malus Wabiscaw er skrauteplatré með bleik blóm og blómstrar vel. Biti Pirja er eitt fyrsta eplið sem nær fullþroska í þokkalegu sumri. Árangur Vasapäron-pera af einu trjánna hjá Ólafi Sturlu teygir sig til sólar. Metnaður Ólafur Sturla Njálsson opn- aði Nátthaga 1990 og hóf síðan til- raunaræktun með ávaxtatré 2008. 18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2017

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.