Morgunblaðið - 19.05.2017, Page 24

Morgunblaðið - 19.05.2017, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2017 AREX | Nýbýlavegi 8 (Portið) | Sími 860 55 65 | kamadogrill.is Kamado grill KAMADO grill Fyrir kröfuhörðustu grillarana Hægt að panta á kamadogrill.is *á meðan birgðir endast Sumartilboð Verð frá 68.900,- með yfirbreiðslu* Kamado grill eru einstök þegar þú vilt ná fram því besta í matargerðinni. Möguleikarnir eru endalausir hvort sem þú ætlar að reykja, baka, grilla eða steikja. kamadogrill.is kamadogrill.is H já Parketverksmiðjunni í Síðumúla er ekki aðeins hægt að fá úrval af fallegu parketi heldur selur versl- unin einnig efni til pallagerðar og ut- anhússklæðningar. Er um að ræða síberíu-lerki í hæsta gæðaflokki sem unnið hefur verið í timburverk- smiðju Parketverksmiðjunnar í Litháen. Þetta sama lerki notar Park- etverksmiðjan sem veggklæðningu í einingahús sem fyrirtækið fram- leiðir í Litháen og eru einkum seld til Noregs en eru líka fáanleg hér á landi. Ævar Gíslason, fram- kvæmdastjóri og eigandi Park- etverksmiðjunnar segir að lerkið sé einn besti viðurinn sem nota má í palla. „Helsti kostur lerkisins er að ekki þarf að bera reglulega á pallinn og sparar það bæði vinnu og efn- iskostnað. Margir geta hugsað sér skemmtilegri hluti að gera á fal- legum sumardögum en að dytta að pallinum.“ Síberíulerkið er merkilegt tré og inniheldur efni sem virka eins og náttúruleg fúavörn. Þegar fjalirnar veðrast fá þær á sig fallegan silf- urgráan lit og hentar lerkið í nánast hvað sem er. Spurður um tískuna í pallasmíði segir Ævar að íslenskir kaupendur kjósi frekar breiðari fjalirnar. „Það má velja um alls konar breiddir og þykktir en breiðu borðin gefa stíl- hreint útlit. Sumum þykir líka gott að nota rásaðar fjalir í gólfið á pall- inum, bæði útlitsins vegna og ekki Eins og að bæta við nýrri stofu Jafnvel bara 30 fermetra pallur bætir töluverðum gólffleti við heimilið. Æv- ar hjá Parketverksmiðj- unni segir nú til dags oft hugað að útliti pallsins um leið og hús eru teikn- uð, og reynt að skapa tengingu á milli inni- og útirýmisins. Morgunblaðið/Árni Sæberg Undibúið „Hönnunin verður m.a. að taka tillit til vindáttar og stöðu sólar. Pallurinn þarf að vera lagaður að aðstæðum á hverjum stað,“ segir Ævar. Fjárfesting Glæsilegur pallur getur aukið verðmæti fasteignar. Metnaður Skyggni og bekkir skapa ótal möguleika fyrir sælustundir. Úthugsað Hirslur og klefar geta komið í góðar þarfir úti á pallinum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.