Morgunblaðið - 19.05.2017, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2017
Borvél M12 BPD-202C
Borvél m/höggi, átak 32Nm,
2x2,0Ah rafhlöður og hleðslutæki.
Sett M18SET2T-502W
Kolalaus borvél 60Nm og
fjölnotavél ásamt blöðum,
2x5,0Ah rafhlöður og hleðslutæki
Borvél M12 CPD-602X
Kolalaus m/höggi, átak 44Nm,
2x6,0Ah rafhlöður og hleðslutæki.
Milwaukee bíllinn er mættur aft
Kíktu á dagskrána og sjáðu hvenær bíllinn
verður nálægt þér dagana 9. maí til 30. maí
svo þú getir prófað það nýjasta frá Milwaukee.
Dagskrá í heild sinni áwww.vfs.is
46.900.- 69.900.-
ur
27.900.-
Frábær
tilboð á
Verkfærasalan - Síðumúla 11 - Dalshrauni 13 - 560-8888 - www.vfs.is
Föstudagur
19. maí
Patreksfjörður
Vélsmiðjan Logi
kl. 9-12
Mánudagur
22. maí
Ísafjörður
Vélsmiðjan Þristur
kl. 8-13
Þriðjudagur
23. maí
Sauðárkrókur
Kaupfélag Skagfirðinga
kl. 9-14
Miðvikudagur
24. maí
Siglufjörður
OLÍS
kl. 9-14
Föstudagur
26. maí
Akureyri
Slippfélagið
kl. 10-17
F
átt gerir meira fyrir garðinn
og heimreiðina en falleg
hellulögn. Margir láta sig
dreyma um að búa til róm-
antískan sælureit heimilisins úr
sætum og gamaldags hellum, eða
stílhreina verönd úr nýtískulegum
hellum þar sem má grilla og njóta
lífsins í góða veðrinu.
Ásbjörn Ingi Jóhannesson er
sölustjóri hellna og garðeininga
hjá BM Vallá og segir hann að nóg
sé að gera hjá fyrirtækinu um
þessar mundir og greinilegt að
komin er framkvæmdagleði í
landsmenn. „Fólk hélt áfram að
huga að garðinum eftir hrun, en
tók fyrir minni svæði í einu og for-
gangsraðaði vandlega framkvæmd-
unum umhverfis heimilið. Var t.d.
byrjað á að gera flott fyrir framan
húsið og koma innkeyrslunni í lag
svo að ekki berist möl og önnur
óhreinindi inn í hús. Núna þegar
efnahagur þjóðarinnar hefur batn-
að er algengara að sjá að allur
garðurinn sé tekinn í gegn í einu
lagi.“
Nútímalegar hellur
fyrir nútímaleg hús
Þegar kemur að því að helluleggja
er gott að velja hellur sem falla vel
að útliti hússins og því yfirbragði
sem stendur til að ná fram í garð-
inum. Ef húsið er gamalt og sætt
geta t.d. Óðalssteinn og Forn-
steinn hentað best, en nýtískulegu
húsin með beinu línurnar og
hreinu fletina kalla á stórar og
stílhreinar hellur. „Það er einmitt
út af fjölbreytileika húsa og garða
að við leggjum svona mikla
áherslu á að hafa mikið úrval af
mismunandi hellugerðum, svo að
viðskiptavinirnir geti fundið þá
lausn sem hentar best á hverjum
stað.“
Ásbjörn bendir á að það hafi
ýmsa kosti að helluleggja frekar
en t.d. byggja pall. Hellurnar þurfi
lítið sem ekkert viðhald en reikna
má með að þurfa að bera reglulega
á pallinn. Þá má koma fyrir hita-
lögn undir hellunum og með því
tryggja að aðgengi til og frá heim-
ilinu sé gott á öllum árstímum og
ekki sama þörf á að halda út í
vetrarveðrið með skóflu í hendi
svo að sorphirðufólk, blaðberar og
heimilismeðlimir komist hindr-
unarlaust ferða sinna.
Innanhússhönnuðir hafa bent á
að inni á heimilunum eru stórar og
miklar flísar mjög vinsælar. Þær
veita heimilinu stílhreint útlit og
falla vel að þeirri tísku sem er í
arkitektúr nú til dags. Ásbjörn
segir sömu þróunina eiga sér stað
úti í garði og eru stóru hellurnar
hvað vinsælastar. Framleiðir BM
Vallá hellur sem eru allt að 60x60
cm að stærð. „Þetta er þróun sem
er að eiga sér stað bæði á Íslandi
og erlendis, að fólk sækir í stærri
hellurnar,“ segir hann og bendir á
að stærðin þurfi ekki að rýra burð-
arþol hellnanna og t.d. hægt að fá
þykkari 60x60 hellur sem henta vel
í innkeyrsluna og láta ekki á sjá
Stórar og stílhreinar hellur eru vinsælar
Hellulögn þarf lítið við-
hald og gerir mikið fyrir
ásýnd húsa. Ásbjörn hjá
BM Vallá segir garðana
verða veglegri með
hverju árinu og meira
seljist af lituðum hellum.
Morgunblaðið/Ófeigur
Ending Vandaðar hellur, lagðar af natni, verða bara fallegri með aldrinum.
Þó flesta dreymi um að eiga fal-
legan garð þá eiga ekki allir auðvelt
með að koma hugmyndum sínum á
blað. Hjá BM Vallá starfar teymi
landslagsarkitekta sem taka vel á
móti viðskiptavinum og geta hann-
að garðinn þeim að kostnaðarlausu.
Ásbjörn segir ferlið ekki flókið.
„Fólk þarf að koma með grunn-
teikningu af húsinu og garðinum í
hlutfallinu 1:100, og ljósmyndir sem
sýna vel garðinn og umhverfi húss-
ins. Viðtalið hjá landslagsarkitekt-
inum tekur um hálftíma og er þar
farið yfir ýmsar hugmyndir og
möguleika. Landslagsarkitektinn
gerir síðan í framhaldinu teikningar
sem má breyta og bæta eftir þörf-
um og síðan nýta sem grunninn
fyrir vinnuteikingar,“ útskýrir hann.
„Á teikningunum má bæði fá góða
hugmynd um hvernig garðurinn
mun líta út, og líka áætla kostn-
aðinn við framkvæmdirnar.“
Að leggja hellur, og hvað þá taka
heilan garð algjörlega í gegn, getur
verið vandasamt verk og mælir Ás-
björn með að fólk noti þjónustu
viðurkenndra verktaka. „Við getum
bent á góða verktaka sem við höf-
um reynslu af. Viðskiptavinurinn
hefur síðan samband við verktak-
ann beint og biður um tilboð í verk-
ið.“
Hanna garðinn í sameiningu
Reynsla „Það er einmitt út af fjölbreytileika
húsa og garða að við leggjum svona mikla
áherslu á að hafa mikið úrval af mismun-
andi hellugerðum,“ segir Ásbjörn.