Morgunblaðið - 19.05.2017, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 19.05.2017, Qupperneq 29
þó heimilisbíllinn sé þungur. Þeir sem fylgjast vel með fram- kvæmdum í íslenskum görðum veita því eflaust athygli um þessar mundir að garðarnir virðast verða veglegri með hverju sumrinu, og virðist meira í þá lagt þegar betur árar í efnahag þjóðarinnar. Ás- björn segir greinilegt að við- skiptavinir BM Vallár kosti meiru til nú en oft áður, og birtist það m.a. í því að litaðar hellur seljast betur. „Þegar hagur fólks vænkast þá selst meira af lituðum hellum og um þessar mundir vilja t.d. margir setja dökkar hellur í inn- keyrsluna og á pallinn.“ Hiti og lýsing Að búa til glæsilega innkeyrslu og fallegan garð kostar sitt, og oft þarf að vega vandlega og meta hvar má spara og hverju má breyta án þess að bitni á heild- armyndinni. Ásbjörn ráðleggur að hitalögnunum sé þó ekki sleppt og líka hugað vandlega að lýsingunni. „Langflestir láta setja hitalögn undir hellurnar enda aukakostn- aðurinn ekki það mikill borið sam- an við heildarkostnaðinn af að t.d. leggja nýja innkeyrslu,“ segir hann. „Vönduð lýsing gerir líka mikið fyrir útlit heimilisins og notagildi garðsins. Þróunin í lýs- ingarheiminum hefur verið hröð og orðið mun auðveldara að koma fyr- ir fallegri lýsingu bæði í heimreið- inni, á pallasvæðinu og hér og þar í garðinum. Er þróunin í garða- hönnun þannig að útilýsing er æ meira notuð.“ai@mbl.is Rætur Í lundinum við söluskrifstofur BM Vallár er hægt að fá innblástur. Hönnuðirnir þar búa að mikilli reynslu. FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2017 MORGUNBLAÐIÐ 29 Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt Sinn er siður í landi hverju og hafa t.d. glöggir áhugamenn um falleg heimili veitt því athygli að í Noregi er vaninn að fólk leggi mikla áherslu á að hafa fullfrágenginn garð en láti innra byrði heimilsins mæta afgangi ef peningarnir eru af skornum skammti. Á Íslandi virðist þessu öf- ugt farið: mest áhersla er lögð á að ganga frá og innrétta fallega að inn- an en skilja heimreiðina og garðinn eftir ókláruð þangað til nægilegt svigrúm skapast í fjárhagnum til að ráðast í framkvæmdir. Ásbjörn segir ekki gaman að sjá falleg hús með ófrágenginn garð. „Það vantar einhvern punkt yfir „i- ið“, og eins og húsið sé ekki full- klárað. Skemmir líka ásýnd götunnar ef inn á milli eru heimili þar sem garðurinn er ekki kominn í lag og möl og sandur í innkeyrslunni.“ Segir Ásbjörn að áherslurnar virð- ist þó vera að breytast og t.d. reyni verktakar oft að skila húsum þannig frá sér að garðurinn og heimreiðin séu að stórum hluta frágengin og aðkoman snyrtileg. „Það eykur líka greinilega verðgildi eignarinnar og gerir hana söluvænlegri ef búið er að gera garðinn fallegan og helluleggja að inngangi og bílskúr.“ Snyrtileg aðkoma skiptir máli Tími Einn stór kostur við hellurnar er að þær kalla ekki á mikið viðhald. Öðruvísi Óreguleg hellulögn leyfir mosanum og grasinu að koma fram. Stíll Brugðið á leik með form og liti, svart á hvítu. Úrval Ólík hús kalla á mismunandi tegundir af hellum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.