Fréttablaðið - 08.12.2017, Page 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 8 9 . t ö l u b l a ð 1 7 . á r g a n g u r F ö s t u d a g u r 8 . d e s e M b e r 2 0 1 7
FrÍtt
Fréttablaðið í dag
skoðun Svandís Svavarsdóttir
fjallar um heilbrigðismál. 16
sport Arnór Ingvi tók ákvörð-
unina með HM í huga. 20
Menning #metoo
byltingin
heldur innreið
sína í Borgar-
leikhúsið á
sunnudag-
inn. 30
lÍFið Jóla-
tónleikar
Bó í tölum.
38
plús sér-
blað
l Fólk
*Samkvæmt prent-
miðlakönnun Gallup
apríl-júní 2015
Askasleikir
S T Y R K TA R F É L A G
L A M A Ð R A O G F AT L A Ð R A
Sölutímabil
6. – 20. desember
GJAFA
KORT
BORGARLEIKHÚSSINS
GJÖF SEM
LIFNAR VIÐ
568 8000 • BORGARLEIKHUS.IS
Samsung Galaxy S8
og Samsung Note
150 GB og þráðlaus heyrnartól
að verðmæti 34.990 kr. fylgja
HeilbrigðisMál Rúmlega helm-
ingsaukning hefur átt sér stað í
ávísunum kódeinlyfja hér á landi frá
árinu 2005. Verkefnastjóri lyfjamála
hjá Landlæknisembættinu segir að
læknar ættu að hugsa sig vel um
áður en slíkum lyfjum er ávísað.
„Meðan aðrar þjóðir hafa dregið
saman notkun á slíkum lyfjum þá
hefur notkunin verið að aukast hjá
okkur,“ segir Ólafur B. Einarsson,
verkefnastjóri hjá Landlækni.
Munurinn er sérstaklega mikill
sé litið til ávísana til þeirra sem eru
eldri en fimmtíu ára. Sé sá aldurs-
hópur á Íslandi borinn saman við
Svíþjóð kemur í ljós að allt að þre-
falt fleiri skömmtum er ávísað hér
á landi.
„Við vitum að þegar fólk er komið
á þennan aldur geta komið upp
ýmis verkjavandamál. Það er samt
ekkert sem bendir til þess að það
séu fleiri slík vandamál hér á landi
heldur en annars staðar. Í raun
vitum við ekki hvað býr að baki,“
segir hann.
Ólafur segir að í eftirliti Land-
læknisembættis með lyfjaávísunum
sjáist greinilega að það séu margir
einstaklingar sem fara á milli lækna
til að verða sér úti um verkjalyf.
„Margir nýta sér það til dæmis að
tannlæknar, sem mega ávísa slíkum
lyfjum, eru ekki tengdir sjúkraskrár-
kerfi sem aðrir læknar hafa aðgang
að. Þá eru þeir ekki oft að skoða
lyfjagagnagrunninn.“
Þá segir hann að einnig sé það
tiltölulega lítill hópur lækna sem
ávísar lyfjum í stórum stíl. Embætt-
ið sendi árlega tugi bréfa og svipti
lækna leyfi til að ávísa ávanabind-
andi lyfjum. Einnig séu dæmi um
að menn hafi verið sviptir lækna-
leyfinu vegna þessa.
„Þetta er yfirgripsmikið verkefni.
Sem stendur erum við að endur-
nýja leiðbeiningar um ávísanir lyfja
til að ýta við læknum til að koma
málunum í betri farveg hér á landi,“
segir Ólafur. – jóe
Sprenging orðið í ávísun kódeinlyfja
Allt að þrefalt fleiri skömmtum kódeinlyfja er ávísað til eldra fólks hér á landi en í nágrannaríkjum. Dæmi eru um að einstaklingar nýti
sér slæleg vinnubrögð lækna til að verða sér úti um lyf. Læknar hafa verið sviptir læknaleyfinu fyrir að ávísa of miklu af lyfjum.
HeilbrigðisMál „Mér vitanlega
hefur ekki verið sýnt fram á bein
tengsl sykurneyslu við sykursýki,
eins og hefur mátt skilja af nýlegri
umfjöllun um málið,“ segir Finnur
Geirsson, forstjóri Nóa Síríus. Hann
segir sykurneyslu hafa minnkað um
20% frá aldamótum. – hg / sjá síðu 10
Neysla á sykri
dregist saman
uMHverFisMál Á hverjum degi
berast Góða hirðinum fimm fullir
gámar af nytjahlutum. Tvo þeirra
þarf að senda til baka í förgun eða
endurvinnslu. Ástæðan er aukin
velmegun og breytt neyslumynstur
þjóðarinnar. – la / sjá síðu 6
Tveir gámar
sendir í burtu
Ólafur B.
Einarsson
Þeirri ákvörðun Donalds Trump Bandaríkjaforseta að færa sendiráð landsins í Ísrael frá Tel Avív til Jerúsalem var harðlega mótmælt á Vesturbakkanum, og víðar um veröld, í gær. Þjóðar-
leiðtogar hafa haft það á orði að verið sé að kveikja í púðurtunnu. Leiðtogi Hamas-samtakanna hefur kallað eftir því að Palestínumenn grípi til aðgerða í dag. Sjá síðu 12 FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
0
8
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
6
E
-3
B
7
4
1
E
6
E
-3
A
3
8
1
E
6
E
-3
8
F
C
1
E
6
E
-3
7
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
5
6
s
_
7
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K