Fréttablaðið - 08.12.2017, Síða 2
Veður
Dregur úr vindi og kólnar. Hæg-
lætisveður og léttskýjað um landið
vestanvert, en enn dálítill strekk-
ingur fyrir austan og él við ströndina.
Frost um allt land. sjá síðu 26
Sveppi og Ingó héldu uppi stuðinu
Mikill fjöldi fólks kom saman á jólahátíð fatlaðra sem haldin var í 35. sinn í gær. Að þessu sinni fór gleðin fram á Hilton Reykjavík Nordica. Margir
af ástsælustu skemmtikröftum þjóðarinnar sáu um að halda uppi stuðinu. Þeirra á meðal voru Ingó Veðurguð og Sveppi. Fréttablaðið/Ernir
Smiðjuvegi 2, Kópavogi - www.grillbudin.is - Sími 554 0400
Grillbúðin
Þráðlaus kjöthitamælir
Stilltu á
tegund og steikingu
Mælirinn lætur þig vita
þegar maturinn er tilbúinn
Fyrir grill og ofna
JÓLATILBOÐ
4.990
VERÐ ÁÐUR 6.990
Opið alla
daga til jóla
Sko
ðið
nýja
vef
vers
lun
ww
w.gr
illbu
din.
is
dýrahald „Hann fékk auðvitað smá
rjómablöndu þegar hann kom heim,
minna mátti það nú ekki vera,“ segir
Heiðdís Snorradóttir sem á þriðjudag
endurheimti köttinn Abú sem gerst
hafði laumufarþegi með bíl nágranna
og horfið.
Fréttablaðið sagði frá ferðum Abús
fyrir mánuði. Þá hafði hann rúmri
viku fyrr laumað sér í bíl nágranna
Heiðdísar í Breiðholti, stokkið úr
honum við Heklu á Laugavegi og
horfið í átt að Hlemmi. Heiðdís hefur
leitað hans mikið síðan.
Á þriðjudag segist Heiðdís hafa
frétt af innleggi á Facebook-síðu
fyrir týnd og fundin dýr. „Blasti við
mér mynd af kisu sem ég hafði ekki
séð lengi. Ég fékk sting í magann því
ég kannaðist við andlitið, greini-
lega hvítur nebbi og hálskragi,“ segir
Heiðdís. Í tilkynningunni hafi komið
fram að kötturinn hefði þá haldið sig
utan við íbúð á Laufásvegi í þrjá daga.
„Hann var um þrjá kílómetra frá þeim
stað þar sem hann týndist uppruna-
lega en mjööög langt frá heimili sínu
og var greinilega rammvilltur.“
Heiðdís segir að þeim sem sá til
Abús hafi sýnst kötturinn vera týndur
miðað við hversu þurfandi hann var.
„Hann var með hann innandyra svo
hann gat passað hann fyrir okkur
þar til við gætum sótt hann. Ég hafði
auðvitað samband við hann og fékk
myndir til baka og þá frekari staðfest-
ingu um að Abú væri í raun fundinn.“
Að sögn Heiðdísar var Abú í ótrú-
lega góðu ásigkomulagi er hann kom
heim. „Hann var bara spengilegur
og grannur en alls ekki illa haldinn.
Hann var dauðþreyttur og virtist
ekkert vera meiddur eða lasinn. Við
höldum að hann hafi í raun bara
flakkað á milli heimila og verið að
betla mat,“ segir Heiðdís.
Abú á systurina Jasmín sem einnig
býr hjá Heiðdísi og unnusta hennar.
Systkinin fundust saman fimm vikna
gömul í pappakassa á víðavangi í
Borgarnesi fyrir fimm árum. „Systir
hans elti hann út um alla íbúð með
nefið ofan í honum, eins og til að
spyrja á kattamáli: Hvar hefur þú verið
allan þennan tíma? Ég saknaði þín.“
Mikil ánægja er því á heimilinu
með heimkomu ævintýrakattarins
Abús. „Maður kemst að því hvað
maður elskar þessa loðbolta mikið
þegar þeir týnast svona í lengri
tíma. Þrautseigari ketti hef ég vart
kynnst, en núna tekur við innitíma-
bil hjá honum þar sem hann lærir að
umgangast okkur aftur og lærir aftur
sína daglegu rútínu.“
gar@frettabladid.is
Náðist loks í skottið á
Abú á Laufásveginum
Kötturinn Abú sem gerðist laumufarþegi í bíl nágranna fyrir sex vikum og hvarf
úr Breiðholti fannst á Laufásvegi. Hann er kominn heim til Jasmínar systur sinn-
ar og eigenda sem tóku týnda syninum fagnandi með rjómablöndu og faðmlagi.
abú heima í faðmi Heiðdísar Snorradóttur eftir óvænta sex vikna útlegð.
Systir hans elti hann
út um alla íbúð með
nefið ofan í honum, eins og
til að spyrja á kattamáli:
Hvar hefur þú verið allan
þennan tíma? Ég saknaði
þín!
Heiðdís Snorradóttir, eigandi Abús
dómsmál „Ég held þetta sé í fyrsta
sinn sem reynt er að byggja sak-
fellingu á gögnum sem fengin hafa
verið með þessum hætti,“ segir
Haukur Örn Birgisson, hæstaréttar-
lögmaður og verjandi Magnúsar
Garðarssonar, fyrrverandi forstjóra
United Silicon, sem er ákærður fyrir
stórfelldan hraðakstur á Reykjanes-
braut í desember á síðasta ári. Sam-
kvæmt gögnum sem lögregla aflaði
frá framleiðanda Tesla-bifreiðar
Magnúsar var henni ekið á allt að
183 km hraða.
Ekki liggja fyrir aðrar upplýsingar
um hraðann sem Magnús ók á í
umrætt sinn en þær sem aflað var
frá framleiðanda og ágreiningur er
um hvort umrædd gögn dugi til sak-
fellingar fyrir hraðakstur. „Þetta er
alveg nýtt af nálinni. Fólk hefur ekki
verið sakfellt hér á landi á grundvelli
gagna af þessu tagi heldur hafa þurft
að koma til miklu staðfastari gögn
eins og til dæmis radarmælingar
lögreglu. Þær liggja ekki fyrir í þessu
máli,“ segir Haukur.
Aðalmeðferð málsins verður fram-
haldið í dag í Héraðsdómi Reykja-
ness og fyrirhugað er að taka skýrslu
af starfsmanni Tesla í gegnum síma,
til að staðfesta gildi gagnanna,
hvernig vinnslu þeirra var háttað og
þess háttar. Ekki liggur fyrir hvort
af því verður vegna ágreinings um
vitnaskyldu viðkomandi og gildi
upplýsinganna fyrir málið. – aá
Erfitt að sanna
hraðaksturinn á
Teslu Magnúsar
Magnús Garðarsson er stofnandi
United Silicon. Fréttablaðið/Eyþór
Kjaramál Niðurstöður úr kosningu
flugvirkja Icelandair um vinnu-
stöðvun munu liggja fyrir í dag.
Fundað verður hjá ríkissáttasemjara
í dag til að reyna að ná sáttum.
„Það liggur ekki fyrir hvenær
vinnustöðvunin myndi hefjast ef
hún verður samþykkt. Það skýrist
þegar niðurstöðurnar koma í ljós,“
segir Gunnar R. Jónsson, varafor-
maður Flugvirkjafélags Íslands.
Rafræn kosning hófst í fyrradag.
Deilan snýr aðeins að flugvirkjum
sem starfa hjá Icelandair. Félagið
hefur boðað til fundar á mánudag
þar sem farið verður yfir stöðu
kjaraviðræðna, úrslit kosningar-
innar og framhaldið verður kynnt.
Deilu flugvirkja og Icelandair var
vísað til sáttasemjara 8. september.
Á borði sáttasemjara er einnig deila
Félags íslenskra atvinnuflugmanna
og Icelandair og deila flugvirkja og
Air Atlanta Icelandic. – jóe
Úrslit kosningar
flugvirkja í dag
8 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F Ö s T u d a G u r2 F r é T T i r ∙ F r é T T a b l a ð i ð
0
8
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
6
E
-4
0
6
4
1
E
6
E
-3
F
2
8
1
E
6
E
-3
D
E
C
1
E
6
E
-3
C
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
5
6
s
_
7
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K