Fréttablaðið - 08.12.2017, Side 4
Hússtjórnarskólinn í Reykjavík
Laugardaginn 9.desember 2017 verður opið hús í Hússtjórnarskólanum
í Reykjavík Sólvallagötu 12, kl. 13:30-17:00
Sýning verður á handavinnu nemenda. Sala á kaffi, heitu súkkulaði og
kökum. Seljum einnig lagkökur, kleinur og ýmsar sultur.
Allir velkomnir.
Erum að skrá inn nemendur fyrir vorönn 2018
Eldsvoði Ekki er hægt að finna út
hvað varð til þess að Bátasmiðjan
Seigur á Akureyri brann í lok maí
mánaðar. Hefur því rannsókn á
upptökum brunans verið hætt.
Bátasmiðjan brann til kaldra kola
aðfaranótt 31. maí síðastliðins. Um
altjón var að ræða og brann allt sem
brunnið gat innanhúss. Slökkviliðs
menn voru langt fram eftir morgni
að störfum á vettvangi.
Allt tiltækt slökkvilið var kallað út
þessa nótt og barðist það við eldinn
í húsinu sem var um 2.000 fermetrar
að stærð. Þegar mest var voru um
15 slökkviliðsmenn á vettvangi auk
lögreglumanna sem lokuðu götum
í kring. Allur tækjakostur slökkvi
liðsins var einnig nýttur. Tjónið af
völdum eldsins hleypur á hund
ruðum milljóna króna.
Í byrjun árs kom einnig upp eldur
í bátasmiðjunni. Þá var hægt að
komast á vettvang áður en eldurinn
breiddi úr sér.
Samkvæmt heimildum Frétta
Óljóst hvað olli stórbruna í bátasmiðju
Kópavogur Bæjarráð Kópavogs
samþykkti í gær fyrir sitt leyti að
gömlu bæjarskrifstofur sveitar
félagsins verði seldar á 1.050 millj
ónir króna. Tveir bæjarfulltrúar
minnihlutans greiddu atkvæði gegn
tillögunni og sagði annar þeirra að
verið væri að bjóða til veislu þar sem
leikreglurnar væru óskýrar. Bæjar
stjórinn undrast þá niðurstöðu.
„Hér er um mikla fjárhagslega
hagsmuni að ræða fyrir Kópa
vogsbæ. Verðið sem fæst fyrir fast
eignirnar er helmingi hærra heldur
en það verð sem lagt var til grund
vallar á sínum tíma og menn efuðust
um að fengist fyrir fasteignirnar,“
segir bæjarstjórinn Ármann Kr.
Ólafsson.
Bæjarráðið samþykkti með þrem
ur atkvæðum gegn tveimur tilboð
fasteignaþróunarfélagsins Stólpa ehf.
í Fannborg 2, 4, og 6 í Hamraborg.
Þrír bæjarfulltrúar og bæjarstjórinn
lýstu ánægju sinni með tilboðið enda
hefði umhverfið í kringum Hamra
borg tekið miklum og jákvæðum
breytingum á undanförnum árum.
Skipulag í tengslum við hana muni
taka mið af húsnæðisskýrslu Kópa
vogsbæjar sem unnin hafi verið í
pólitískri sátt allra flokka og taki á
áhyggjum minnihlutans. Undirstrik
uðu þau að skipulagsvaldið væri enn
hjá bænum og að endanlegur samn
ingur myndi koma til afgreiðslu
bæjarráðs og bæjarstjórnar.
„Það er gríðarlega mikilvægt fyrir
Kópavogsbúa að mörkuð sé skýr
framtíðarstefna um uppbyggingu á
svæðinu. Það liggur ekki fyrir hvert
endanlegt byggingamagn verður og
það á eftir að ráðast í miklar viðræð
ur á milli þessa einkaaðila og bæjar
yfirvalda og ég hefði talið að fyrir
ætti að liggja einhver sýn til framtíð
ar hvernig byggja skuli upp á þessum
reit,“ segir Birkir Jón Jónsson, bæjar
fulltrúi Framsóknarflokks. Birkir
greiddi atkvæði gegn tillögunni eins
og Kristín Sævarsdóttir, bæjarfulltrúi
Samfylkingarinnar.
„Við lögðum það til um mitt þetta
ár að farið yrði í hugmyndasam
keppni þar sem menn myndu skoða
framtíðarskipulag Fannborgar
svæðisins í heild sinni. Nauðsynlegt
væri í raun og veru að bæjarstjórnin
hefði mjög skýra framtíðarsýn um
uppbyggingu á svæðinu en ekki að
einkaaðilar móti hana,“ segir Birkir
Jón.
„Við lítum á þetta sem tækifæri
til að breyta Hamraborginni þann
ig að þetta verði alvöru svæði. Það
þýðir auðvitað meira byggingamagn
en við erum ekki að lofa því enda
er þetta alltaf háð skipulagi. Þarna
verður ekkert gert nema bæjarstjórn
samþykki tiltekið skipulag,“ segir
Ármann.
Kauptilboðið fer fyrir bæjar
stjórn á þriðjudag. Bæjarskrifstof
urnar voru fluttar úr Fannborg á
fyrstu mánuðum ársins. Heilmiklar
deilur komu upp í bæjarstjórninni
þegar flytja átti þær í nýtt húsnæði
Norður turnsins við Smáralind. Stóð
til að bærinn keypti húsnæðið en
fallið var frá þeim áformum.
haraldur@frettabladid.is
Tókust á um milljarðs króna
sölu gamla ráðhúss Kópavogs
Meirihluti bæjarráðs Kópavogs vill að kauptilboð í gömlu bæjarskrifstofurnar verði samþykkt. Fær rétt
rúman milljarð króna fyrir fasteignirnar þrjár í Hamraborg. Minnihlutinn segir of mörgu ósvarað varðandi
uppbyggingu á reitnum. Vilja hugmyndasamkeppni um framtíðarskipulag á svæðinu í heild sinni.
Eins og sjá má gjöreyðilagðist allt í brunanum. Fréttablaðið/auðunn
aKurEyri Bæjarráð Akureyrar ákvað
á fundi sínum í gær að áfrýja dómi
Héraðsdóms Norðurlands eystra í
máli gegn Snorra Óskarssyni, fyrrver
andi grunnskólakennara bæjarins.
Snorri segir málið hið undarlegasta.
Snorra var vikið úr starfi sem
grunnskólakennari í Brekkuskóla
á Akureyri í júlí árið 2012 vegna
ummæla sem hann hafði uppi um
samkynhneigð á eigin vefsvæði.
Töldu bæjaryfirvöld skoðanir hans
og skrif um samkynhneigð vera þess
valdandi að hann gæti ekki starfað
lengur við barnakennslu. Uppsögn
Snorra hefur verið dæmd ólögmæt
í ráðuneytinu og hjá dómstólum.
Héraðsdómur dæmdi uppsögnina í
síðasta mánuði og dæmdi Snorra 6,5
milljónir króna í bætur. Formanni
bæjarráðs finnst þessi upphæð of há.
„Við fengum á fundinn álit lög
fræðings sem taldi rétt að áfrýja. Það
er mikilvægt að svona mál fari alla
leið í dómskerfinu. Ég veit svo sem
ekki að hvaða niðurstöðu Hæsti
réttur muni komast en okkur finnst
bæturnar í þessu máli heldur hærri
en við reiknuðum með og fordæmi
eru um,“ segir Guðmundur Baldvin
Guðmundsson, formaður bæjarráðs.
Snorri segir þetta mál ótrúlegt.
„Ég hef unnið málið á öllum stigum
til þessa. Ég vil heldur láta dæma
mér litlar bætur en að semja um
þær við bæinn,“ segir Snorri. „Þetta
er bænum til ósóma að vera dæmdur
ítrekað fyrir handvömm í þessu máli
og hafa verið með niðrum sig frá
upphafi. Ég er hins vegar auðvitað
tilbúinn að fyrirgefa, en það er með
fyrirgefninguna að henni verður að
fylgja iðrun,“ bætir Snorri við og seg
ist geta beðið fyrir fyrirgefningunni,
því þeir viti eigi hvað þeir gjöra. – sa
Bæjarráð Akureyrar vísar máli Snorra Óskarssonar til Hæstaréttar
Snorri Óskarsson grunnskólakennari
ásamt Einari Gauti lögmanni í dómi.
Fréttablaðið/auðunn
blaðsins er líklegt að eldur hafi
kraumað í nokkurn tíma áður en
hans varð vart því þegar slökkviliðs
menn komu á vettvang var húsið
orðið alelda.
Bátasmiðjan Seigur hét áður báta
smiðjan Seigla. Það fyrirtæki var
tekið til gjaldþrotaskipta haustið
2016. – sa
Bátasmiðjan brann til
kaldra kola aðfaranótt
31. maí. Slökkviliðsmenn
voru langt fram eftir morgni
að störfum á vettvangi.
Guðmundur
baldvin
Guðmundsson
Þarna verður ekkert
gert nema bæjar-
stjórn samþykki tiltekið
skipulag.
Ármann Kr. Ólafs-
son, bæjarstjóri
Kópavogs
Það liggur ekki fyrir
hvert endanlegt
byggingamagn verður og það
á eftir að ráðast í miklar
viðræður á milli þessa
einkaaðila og bæjaryfirvalda.
Birkir Jón Jónsson,
bæjarfulltrúi
bæjarráð samþykkti með þremur atkvæðum gegn tveimur tilboð fasteigna-
þróunarfélagsins Stólpa ehf. í Fannborg 2, 4, og 6. Fréttablaðið/Ernir
dýr Haförninn, sem veiðimaðurinn
Snorri Rafnsson gómaði á dögunum,
verður fluttur í Húsdýragarðinn í
Laugardal í dag, föstudag. Frá þessu
greinir Snorri á samfélagsmiðlinum
Snapchat. Örninn, líklega ungur
karlfugl, hefur verið í umsjá Snorra
í rúma viku en hann var mjög veik
burða þegar hann náðist. Snorri fór
með fuglinn í reiðskemmu skammt
frá Ólafsvík, þar sem hann býr, á
miðvikudag en örninn hóf sig ekki
til flugs, eins og vonir höfðu staðið
til um. Hann mun að sögn þurfa á
frekari endurhæfingu að halda, áður
en honum verður sleppt. – bg
Örninn fer í
Laugardalinn
dómsmál Hæstiréttur hefur staðfest
dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli
gegn Malín Brand. Hún var, ásamt
systur sinni Hlín Einarsdóttur, dæmd
til 12 mánaða fangelsisvistar í héraði.
Sakarefnið var tilraun til fjárkúgunar
gegn Sigmundi Davíð Gunnlaugs
syni, þáverandi forsætisráðherra, í
apríl 2015. Malín áfrýjaði dómnum
til Hæstaréttar en Hlín ekki. Syst
urnar þurfa að greiða samtals um 10
milljónir króna í lögfræði og máls
og sakarkostnað en þar á meðal eru
1,3 milljónir króna sem þær þurfa að
greiða fyrrverandi samstarfsmanni
Hlínar í skaðabætur. Í tilviki beggja
eru níu mánuðir af tólf skilorðs
bundnir. – bg
Dómurinn yfir
Malín staðfestur
Malín brand fyrir héraðsdómi.
Fréttablaðið/GVa
8 . d E s E m b E r 2 0 1 7 F Ö s T u d a g u r4 F r é T T i r ∙ F r é T T a b l a ð i ð
0
8
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
6
E
-5
4
2
4
1
E
6
E
-5
2
E
8
1
E
6
E
-5
1
A
C
1
E
6
E
-5
0
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
7
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K