Fréttablaðið - 08.12.2017, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 08.12.2017, Blaðsíða 6
Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is Kammersveit Reykjavíkur Jólatónleikar Ítalskt barokk Harpa Norðurljós 10. desember 2017 kl. 17:00 www.kammersveit.is / harpa.is Mennta- og MenningarMálaráðuneytið Við komum því til skila Opnunartími pósthúsanna á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri 9:00-19:00 11:00–17:00 13:00–17:00 mið.–fös. laugardagur sunnudagur 6.–8. desember 9. desember 10. desember Þú getur póstlagt jólakortin og jólapakkana þegar þér hentar. Allar nánari upplýsingar um opnunartíma pósthúsanna er að finna á postur.is/jol. Kærleikar í dýragarði Það virðast vera miklir kærleikar milli þessa unga gíraffa sem býr í dýragarðinum í Debrecen í Ungverjalandi og dýrahirðisins. Gíraffinn kom fyrir sjónir gesta dýragarðsins í fyrsta skipti í gær. Fréttablaðið/EPa SAMFÉLAG „Við vitum alveg að við getum selt geisladiska og DVD- myndir og við seljum bækur, en magnið sem berst í Góða hirðinn er langt umfram sölugetu okkur og eftirspurn,“ segir Ragna Ingi- björg Halldórsdóttir, deildarstjóri umhverfis- og fræðsludeildar Sorpu. Vikulega berast Góða hirðinum 25 gámar fullir af nytjahlutum. Af hverjum fimm, sem berast daglega, þarf að senda tvo til baka í förgun eða endurvinnslu. Samkvæmt Sorpu er þetta að nokkru leyti vegna breyttrar hegð- unar neytenda, en einnig má gera ráð fyrir að velmegun og aukinn kaup- máttur ýti undir neyslu. Ragna segir einig fleiri þætti, eins og tilkomu Costco, hafa áhrif. „Svo eru rafrænir miðlar og fólk er farið að lesa minna bækur. Það notar Spot ify eða aðra miðla til að hlusta á tónlist. Umhverfi okkar hefur breyst þó nokkuð,“ segir Ragna. Hún telur einnig að sölusíður eins og Bland og söluhópar á Facebook hafi áhrif. „Ef það hefur ekki selst eftir x langan tíma á þessum miðlum, og fólk losnar ekki við það með þessum hætti, þá er niðurstaðan að gefa það í Góða hirðinn.“ Samkvæmt frétt á heimasíðu Sorpu er bæði verslunin og umferð um einstakar endurvinnslustöðvar komin að þolmörkum og er Góði hirðirinn því hættur að geta tekið við öllum nothæfum hlutum sem berast í nytjagámana á endurvinnslustöðv- unum. Til að bregðast við þessu hafa starfsmenn Góða hirðisins til dæmis verið sendir á stærstu endurvinnslu- stöðvarnar um helgar. Það eru stöðvarnar sem eru á Sævarhöfða, í Ánanaustum og á Dalvegi. Þar leið- beina þeir fólki um hvað eigi heima í nytjagámunum og hvað ekki. Með þessu móti hefur náðst að minnka það magn sem kemur til búðarinnar og ekki er hægt að selja. En það getur fylgt því mikill kostnaður að senda hluti aftur til annaðhvort förgunar eða endurvinnslu. Ragna segir markaðinn endur- spegla vel ástandið í þjóðfélaginu hverju sinni. „Þetta breytist frá ári til árs. Núna höfum við séð svolítið af rúmum og rúmdýnum. En þetta fer svolítið eftir því hvað er í gangi í þjóðfélaginu. Svo hafa verið að koma skjáir þegar fólk hefur verið að nýta sér tilboðin á „Black Friday“ og þess háttar dögum. Það kemur svolítið í gegnum markaðinn [Góða hirðinn, innsk. blaðamanns] hvað er í gangi í þjóðfélaginu.“ lovisaa@frettabladid.is Aldrei meiri úrgangur Úrgangur sem berst til endurvinnslustöðva hefur aldrei verið meiri. Aukning til endurvinnslustöðva, sem hefur verið í kringum 15 prósent ár hvert síðastliðin þrjú ár, er orðin veruleg áskorun fyrir nytjamarkað Sorpu, Góða hirðinn. ragna ingibjörg Halldórsdóttir 8 . d e S e M b e r 2 0 1 7 F Ö S T U d A G U r6 F r É T T i r ∙ F r É T T A b L A ð i ð 0 8 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :3 1 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K _ N Y .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 6 E -6 7 E 4 1 E 6 E -6 6 A 8 1 E 6 E -6 5 6 C 1 E 6 E -6 4 3 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 5 6 s _ 7 _ 1 2 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.