Fréttablaðið - 08.12.2017, Síða 8

Fréttablaðið - 08.12.2017, Síða 8
Kynntu þér málið á olis.is FRÁ: TIL: Vildarpunktasöfnurum Olís býðst nú einstakt Vildarpunktatilboð á borgarferðum með Icelandair. Frá kl. 12 á hádegi 3. maí til kl. 12 á hádegi 4. maí OLÍS Ferðatímabil: 15. sept. – 15. des. Þú bætir við 16.115 kr. (skattar og gjöld) Vildarpunktar Icelandair Vildarpunktasöfnurum Olís og ÓB býðst nú einstakt Hraðtilboð til fjögurra borga með Icelandair. FRÁ: TIL: STOK KHÓ LMS OLÍS Frá kl. 12 á hádegi 8. des. til kl. 12 á hádegi 9. des. GILDIR Í 24 STUNDIR Ferðatímabil: 11. jan.–25. mars 2018 Báðar leiðir frá 18.000 kr. Aðra leið frá 8.900 kr. Nýr Ford Kuga Titanium Eco Boost 183 hö. - Sjálfskiptur 4x4 - Leðurinnrétting - Panorama sóllúga - Álfelgur Bluetooth - Bakkskynjari - Hiti í framsætum, stýri, framrúðu og speglum Rafdrifið og hæðarstillanlegt bílstjórasæti - Kastarar í stuðara Litir: Svartur, hvítur og silfur. Nývirði með þessum búnaði ca. 5.990 þús. Okkar verð 4.690 þús. ÞJÓNUSTA „Við gætum þurft að byrja á núlli,“ segir veitingamaðurinn Róbert Ólafsson, eigandi eins vin- sælasta veitingastaðar landsins, Forréttabarsins, sem er til húsa við Nýlendugötu 14. Til stendur að ráðast í endurbætur á húsinu sem myndu hafa í för með sér að loka þyrfti veitingastaðnum um hríð. Forréttabarinn er í þriðja sæti yfir bestu veitingastaði landsins á vef- síðunni TripAdvisor. Staðurinn fær þar 4,5 stjörnur af fimm mögulegum. Jens Sandholt, annar eigenda húss- ins, segir að hugur eigendanna standi til að gera húsið upp frá grunni, í þeim anda sem það var byggt. „Húsið er orðið afar illa farið og þarfnast algjörrar endurnýjunar,“ segir hann við Fréttablaðið. Um sé að ræða gam- alt iðnaðarhús sem sé óeinangrað að hluta. Hann segir fyrirséð að viðgerðir verði kostnaðarsamar en eigendur binda vonir við að borgin heimili þeim að reka gistiþjónustu í húsinu. Hann tekur þó skýrt fram að ekkert sé í hendi hvað það varðar. „Þetta verður okkur dýrt, þetta hús, enda hefur því ekkert verið haldið við. Við þurfum að hafa einhverja starfsemi í húsinu sem getur staðið undir endur- byggingu,“ segir hann. Samband íslenskra myndlistar- manna, SÍM, leigir húsið en sá leigu- samningur rennur út í sumar. Í kjöl- farið standi til að hefja framkvæmdir. Allt bendir því til þess að sambandið þurfi að finna starfseminni nýtt hús- næði. Vilji bæði eigenda hússins og Forréttabarsins stendur til þess að Forréttabarinn verði áfram á jarð- hæðinni að framkvæmdum loknum. Róbert segir að fjölgun gesta hafi verið viðvarandi öll þau fjögur ár sem hann hafi átt staðinn. Hann segir að þrátt fyrir mikinn straum ferða- manna sé meirihluti gesta Íslending- ar. Róbert segir við Fréttablaðið að ef samningar náist um leigu muni For- réttabarinn fá mikla andlitslyftingu. Aðspurður segir hann ekkert liggja fyrir um hvernig starfsmanna- málum verði háttað, enda sé margt enn óljóst, en hann óttist að þurfa að byrja frá grunni í þeim efnum. Jens segir að framkvæmdir við húsið, fáist fyrir þeim samþykki, gætu tekið um það bil eitt ár. Hann tekur þó fram að veitingastaðurinn þyrfti ekki að vera lokaður allan þann tíma. baldurg@frettabladid.is Vinsælu veitingahúsi verður lokað um stund Fyrirhugað er að ráðast í endurbætur á iðnaðarhúsinu við Nýlendugötu 14. Loka þarf Forréttabarnum, einum vinsælasta veitingastað landsins, meðan á fram- kvæmdum stendur. Markmiðið er að hann verði opnaður aftur á sama stað. Róbert Ólafsson, eigandi Forréttabarsins. Mynd/neil John SMith 8 . d e S e m b e r 2 0 1 7 F Ö S T U d A G U r8 F r é T T i r ∙ F r é T T A b L A ð i ð 0 8 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :3 1 F B 0 5 6 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 6 E -7 B A 4 1 E 6 E -7 A 6 8 1 E 6 E -7 9 2 C 1 E 6 E -7 7 F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 5 6 s _ 7 _ 1 2 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.