Fréttablaðið - 08.12.2017, Qupperneq 8
Kynntu þér
málið á olis.is
FRÁ:
TIL:
Vildarpunktasöfnurum Olís býðst nú
einstakt Vildarpunktatilboð á
borgarferðum með Icelandair.
Frá kl. 12 á hádegi 3. maí til kl. 12 á hádegi 4. maí
OLÍS
Ferðatímabil: 15. sept. – 15. des.
Þú bætir við 16.115 kr. (skattar og gjöld)
Vildarpunktar
Icelandair
Vildarpunktasöfnurum Olís og ÓB
býðst nú einstakt Hraðtilboð til
fjögurra borga með Icelandair.
FRÁ:
TIL:
STOK
KHÓ
LMS
OLÍS
Frá kl. 12 á hádegi 8. des. til kl. 12 á hádegi 9. des.
GILDIR Í 24
STUNDIR
Ferðatímabil: 11. jan.–25. mars 2018
Báðar leiðir frá
18.000 kr.
Aðra leið frá
8.900 kr.
Nýr Ford Kuga Titanium Eco Boost
183 hö. - Sjálfskiptur 4x4 - Leðurinnrétting - Panorama sóllúga - Álfelgur
Bluetooth - Bakkskynjari - Hiti í framsætum, stýri, framrúðu og speglum
Rafdrifið og hæðarstillanlegt bílstjórasæti - Kastarar í stuðara
Litir: Svartur, hvítur og silfur.
Nývirði með þessum búnaði ca. 5.990 þús.
Okkar verð 4.690 þús.
ÞJÓNUSTA „Við gætum þurft að byrja
á núlli,“ segir veitingamaðurinn
Róbert Ólafsson, eigandi eins vin-
sælasta veitingastaðar landsins,
Forréttabarsins, sem er til húsa við
Nýlendugötu 14. Til stendur að
ráðast í endurbætur á húsinu sem
myndu hafa í för með sér að loka
þyrfti veitingastaðnum um hríð.
Forréttabarinn er í þriðja sæti yfir
bestu veitingastaði landsins á vef-
síðunni TripAdvisor. Staðurinn fær
þar 4,5 stjörnur af fimm mögulegum.
Jens Sandholt, annar eigenda húss-
ins, segir að hugur eigendanna standi
til að gera húsið upp frá grunni, í
þeim anda sem það var byggt. „Húsið
er orðið afar illa farið og þarfnast
algjörrar endurnýjunar,“ segir hann
við Fréttablaðið. Um sé að ræða gam-
alt iðnaðarhús sem sé óeinangrað að
hluta.
Hann segir fyrirséð að viðgerðir
verði kostnaðarsamar en eigendur
binda vonir við að borgin heimili
þeim að reka gistiþjónustu í húsinu.
Hann tekur þó skýrt fram að ekkert
sé í hendi hvað það varðar. „Þetta
verður okkur dýrt, þetta hús, enda
hefur því ekkert verið haldið við. Við
þurfum að hafa einhverja starfsemi í
húsinu sem getur staðið undir endur-
byggingu,“ segir hann.
Samband íslenskra myndlistar-
manna, SÍM, leigir húsið en sá leigu-
samningur rennur út í sumar. Í kjöl-
farið standi til að hefja framkvæmdir.
Allt bendir því til þess að sambandið
þurfi að finna starfseminni nýtt hús-
næði.
Vilji bæði eigenda hússins og
Forréttabarsins stendur til þess að
Forréttabarinn verði áfram á jarð-
hæðinni að framkvæmdum loknum.
Róbert segir að fjölgun gesta hafi
verið viðvarandi öll þau fjögur ár
sem hann hafi átt staðinn. Hann segir
að þrátt fyrir mikinn straum ferða-
manna sé meirihluti gesta Íslending-
ar. Róbert segir við Fréttablaðið að ef
samningar náist um leigu muni For-
réttabarinn fá mikla andlitslyftingu.
Aðspurður segir hann ekkert
liggja fyrir um hvernig starfsmanna-
málum verði háttað, enda sé margt
enn óljóst, en hann óttist að þurfa að
byrja frá grunni í þeim efnum.
Jens segir að framkvæmdir við
húsið, fáist fyrir þeim samþykki, gætu
tekið um það bil eitt ár. Hann tekur
þó fram að veitingastaðurinn þyrfti
ekki að vera lokaður allan þann tíma.
baldurg@frettabladid.is
Vinsælu veitingahúsi
verður lokað um stund
Fyrirhugað er að ráðast í endurbætur á iðnaðarhúsinu við Nýlendugötu 14. Loka
þarf Forréttabarnum, einum vinsælasta veitingastað landsins, meðan á fram-
kvæmdum stendur. Markmiðið er að hann verði opnaður aftur á sama stað.
Róbert Ólafsson, eigandi Forréttabarsins. Mynd/neil John SMith
8 . d e S e m b e r 2 0 1 7 F Ö S T U d A G U r8 F r é T T i r ∙ F r é T T A b L A ð i ð
0
8
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
6
E
-7
B
A
4
1
E
6
E
-7
A
6
8
1
E
6
E
-7
9
2
C
1
E
6
E
-7
7
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
5
6
s
_
7
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K