Fréttablaðið - 08.12.2017, Blaðsíða 10
Við hljótum að hafa
vit á því hvað við
erum að borða eða á að fara
að mata okkur í framtíðinni
og fáum við þá skömmtunar-
seðla?
Helgi Vilhjálms-
son, eigandi Góu
Mér vitanlega hefur
ekki verið sýnt fram
á bein tengsl sykurneyslu við
sykursýki.
Finnur Geirsson,
forstjóri Nóa
Síríus
Verslun „Er þetta stóra vanda-
málið í dag og rétt forgangsröðun,
að ég tali nú ekki um þegar heim-
ilislaust fólk sefur í tjöldum? Við
hljótum að hafa vit á því hvað við
erum að borða eða á að fara að
mata okkur í framtíðinni og fáum
við þá skömmtunarseðla?“ spyr
Helgi Vilhjálmsson, oftast kenndur
við sælgætisframleiðandann Góu,
sem líkt og stjórnendur Nóa Síríus
og Freyju gagnrýnir harðlega hug-
mynd Svandísar Svavarsdóttur heil-
brigðisráðherra um endurupptöku
sykurskatts.
Ráðherrann staðfesti í samtali við
Fréttablaðið á mánudag að hún væri
opin fyrir endurupptöku skattsins.
Vísaði Svandís þar í stjórnar-
sáttmála nýrrar ríkisstjórnar og
áherslu hennar á forvarnir og lýð-
heilsu. Katrín Jakobsdóttir forsæt-
isráðherra hefur talað fyrir því að
skatturinn verði lagður á að nýju og
sagt hann bestu leiðina til að draga
úr sykurneyslu. Þá sagði Sigríður
Kristín Hrafnkelsdóttir, formaður
Félags lýðheilsufræðinga, í fréttinni
að minnka þurfi neyslu sykurs í ljósi
algengis lífsstílstengda sjúkdómsins
sykursýki 2.
„Mér vitanlega hefur ekki verið
sýnt fram á bein tengsl sykurneyslu
við sykursýki, eins og hefur mátt
skilja af nýlegri umfjöllun um málið,
og því ansi hæpið að skattleggja
sykur út frá þeirri ástæðu. Þar að
auki er nauðsynlegt að það komi
fram, að ólíkt því sem margir trúa
þá hefur sykurneysla dregist saman
um 20 prósent frá aldamótum. Það
er því eðlilegt að leitað sé annarra
orsaka fyrir offituvandanum sem
hefur vaxið á sama tíma,“ segir
Finnur Geirsson, forstjóri Nóa Sír-
íus.
„Það er ábyggilegt að einhverjir
kunni sér ekki hóf í neyslu á sykur-
vörum og því mælum við ekki með,
nema síður sé. Okkur finnst ein-
faldlega ósanngjarnt að taka einn
fæðuflokk út, án rökstuðnings, og
kenna honum einum um það sem
miður fer í heilsufarsmálum. Síðan
er það önnur umræða hver séu áhrif
sykurskatts á neyslu sykraðra vara.
Rannsóknarniðurstöður eru mjög
misvísandi í þessum efnum, en ég
hef tekið eftir því að þeir sem trúa
því statt og stöðugt að sykur sé nán-
ast eitur sem beri að forðast eins og
heitan eldinn eru gjarnir á að trúa
því líka að skatturinn muni hafa til-
ætluð áhrif,“ segir Finnur.
Ævar Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Freyju í Kópavogi,
segir sykurskattinn sem lagður
var á í mars 2013 og aflagður í lok
desember ári síðar hafa haft lítil sem
engin áhrif á neysluna.
„Ég skil vel að menn vilji stemma
stigu við sykrinum en þetta er ekki
rétta leiðin og ekki eins og þetta var
gert síðast sem var algjörlega mis-
lukkað að öllu leyti og einungis gert
til að íþyngja fyrirtækjum,“ segir
Ævar. haraldur@frettabladid.is
Sælgætisrisar fordæma
áformin um sykurskatt
Sælgætisframleiðendur gagnrýna hugmynd heilbrigðisráðherra um endurupp-
töku sykurskatts. Helgi í Góu spyr hvort eigi þá að deila út skömmtunarseðlum
og forstjóri Nóa Síríus segir ósanngjarnt ef taka eigi einn fæðuflokk fyrir.
Lýðheilsufræðingar vilja sykurskatt á sælgæti og telja hann draga úr sykurneyslu. FréttabLaðið/ViLheLm
Kynntu þér
málið á olis.is
FRÁ:
TIL:
Vildarpunktasöfnurum Olís býðst nú
einstakt Vildarpunktatilboð á
borgarferðum með Icelandair.
Frá kl. 12 á hádegi 3. maí til kl. 12 á hádegi 4. maí
OLÍS
Ferðatímabil: 15. sept. – 15. des.
Þú bætir við 16.115 kr. (skattar og gjöld)
Vildarpunktar
Icelandair
Vildarpunktasöfnurum Olís og ÓB
býðst nú einstakt Hraðtilboð til
fjögurra borga með Icelandair.
FRÁ:
TIL:
KØB
EN
Í
Frá kl. 12 á hádegi 8. des. til kl. 12 á hádegi 9. des.
GILDIR Í 24
STUNDIR
Ferðatímabil: 10. jan.–7. feb. 2018
Báðar leiðir frá
18.000 kr.
Aðra leið frá
8.900 kr.
stjórnsýsla Ekki hefur verið
ákveðið hvernig ákvæði stjórnar-
sáttmálans um aðgerðir í fíkniefna-
málum verða útfærðar. Þar segir að
snúa þurfi af braut harðra refsinga
fyrir neyslu fíkniefna „en styrkja
aðgerðir gegn fíkniefnasölum, inn-
flutningi og framleiðslu fíkniefna.
Tryggja þarf fíklum viðunandi með-
ferðarúrræði með samvinnu dóms-,
félags- og heilbrigðiskerfis.“
Sigríður Andersen segir að dóms-
málaráðuneytið eigi fulltrúa í hóp
sem heilbrigðisráðherra skipaði
og hefur það hlutverk að fjalla um
skaða minnkandi aðgerðir í fíkni-
efnamálum
Páll Winkel, forstöðumaður
Fangelsismálastofnunar, segist
sammála þeirri stefnu sem kveðið
er á um í stjórnarsáttmálanum. „Ég
held að það sé mjög mikilvægt að
greina á milli þeirra sem eru komnir
í afbrot vegna þess að þeir ráða ekki
við fíkn og hins vegar þeirra sem
stunda skipulagða glæpastarfsemi
og koma öðru fólki í þá aðstöðu að
fremja afbrot vegna fíknar,“ segir
hann.
Páll segist yfirhöfuð vera mót-
fallinn þyngri refsingum. „Enda er
ekki talað beinlínis um það þarna.
Heldur er verið að vísa til öflugri
löggæslu,“ segir hann og segist
fremur vera talsmaður öflugri lög-
gæslu og betri fangelsa. – jhh
Öflugri gæslu en ekki herða refsingar
Páll Winkel. FréttabLaðið/anton brink
8 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F Ö s t u d a G u r10 F r é t t i r ∙ F r é t t a b l a ð i ð
0
8
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
6
E
-7
6
B
4
1
E
6
E
-7
5
7
8
1
E
6
E
-7
4
3
C
1
E
6
E
-7
3
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
5
6
s
_
7
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K