Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.12.2017, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 08.12.2017, Qupperneq 10
Við hljótum að hafa vit á því hvað við erum að borða eða á að fara að mata okkur í framtíðinni og fáum við þá skömmtunar- seðla? Helgi Vilhjálms- son, eigandi Góu Mér vitanlega hefur ekki verið sýnt fram á bein tengsl sykurneyslu við sykursýki. Finnur Geirsson, forstjóri Nóa Síríus Verslun „Er þetta stóra vanda- málið í dag og rétt forgangsröðun, að ég tali nú ekki um þegar heim- ilislaust fólk sefur í tjöldum? Við hljótum að hafa vit á því hvað við erum að borða eða á að fara að mata okkur í framtíðinni og fáum við þá skömmtunarseðla?“ spyr Helgi Vilhjálmsson, oftast kenndur við sælgætisframleiðandann Góu, sem líkt og stjórnendur Nóa Síríus og Freyju gagnrýnir harðlega hug- mynd Svandísar Svavarsdóttur heil- brigðisráðherra um endurupptöku sykurskatts. Ráðherrann staðfesti í samtali við Fréttablaðið á mánudag að hún væri opin fyrir endurupptöku skattsins. Vísaði Svandís þar í stjórnar- sáttmála nýrrar ríkisstjórnar og áherslu hennar á forvarnir og lýð- heilsu. Katrín Jakobsdóttir forsæt- isráðherra hefur talað fyrir því að skatturinn verði lagður á að nýju og sagt hann bestu leiðina til að draga úr sykurneyslu. Þá sagði Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir, formaður Félags lýðheilsufræðinga, í fréttinni að minnka þurfi neyslu sykurs í ljósi algengis lífsstílstengda sjúkdómsins sykursýki 2. „Mér vitanlega hefur ekki verið sýnt fram á bein tengsl sykurneyslu við sykursýki, eins og hefur mátt skilja af nýlegri umfjöllun um málið, og því ansi hæpið að skattleggja sykur út frá þeirri ástæðu. Þar að auki er nauðsynlegt að það komi fram, að ólíkt því sem margir trúa þá hefur sykurneysla dregist saman um 20 prósent frá aldamótum. Það er því eðlilegt að leitað sé annarra orsaka fyrir offituvandanum sem hefur vaxið á sama tíma,“ segir Finnur Geirsson, forstjóri Nóa Sír- íus. „Það er ábyggilegt að einhverjir kunni sér ekki hóf í neyslu á sykur- vörum og því mælum við ekki með, nema síður sé. Okkur finnst ein- faldlega ósanngjarnt að taka einn fæðuflokk út, án rökstuðnings, og kenna honum einum um það sem miður fer í heilsufarsmálum. Síðan er það önnur umræða hver séu áhrif sykurskatts á neyslu sykraðra vara. Rannsóknarniðurstöður eru mjög misvísandi í þessum efnum, en ég hef tekið eftir því að þeir sem trúa því statt og stöðugt að sykur sé nán- ast eitur sem beri að forðast eins og heitan eldinn eru gjarnir á að trúa því líka að skatturinn muni hafa til- ætluð áhrif,“ segir Finnur. Ævar Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Freyju í Kópavogi, segir sykurskattinn sem lagður var á í mars 2013 og aflagður í lok desember ári síðar hafa haft lítil sem engin áhrif á neysluna. „Ég skil vel að menn vilji stemma stigu við sykrinum en þetta er ekki rétta leiðin og ekki eins og þetta var gert síðast sem var algjörlega mis- lukkað að öllu leyti og einungis gert til að íþyngja fyrirtækjum,“ segir Ævar. haraldur@frettabladid.is Sælgætisrisar fordæma áformin um sykurskatt Sælgætisframleiðendur gagnrýna hugmynd heilbrigðisráðherra um endurupp- töku sykurskatts. Helgi í Góu spyr hvort eigi þá að deila út skömmtunarseðlum og forstjóri Nóa Síríus segir ósanngjarnt ef taka eigi einn fæðuflokk fyrir. Lýðheilsufræðingar vilja sykurskatt á sælgæti og telja hann draga úr sykurneyslu. FréttabLaðið/ViLheLm Kynntu þér málið á olis.is FRÁ: TIL: Vildarpunktasöfnurum Olís býðst nú einstakt Vildarpunktatilboð á borgarferðum með Icelandair. Frá kl. 12 á hádegi 3. maí til kl. 12 á hádegi 4. maí OLÍS Ferðatímabil: 15. sept. – 15. des. Þú bætir við 16.115 kr. (skattar og gjöld) Vildarpunktar Icelandair Vildarpunktasöfnurum Olís og ÓB býðst nú einstakt Hraðtilboð til fjögurra borga með Icelandair. FRÁ: TIL: KØB EN Í Frá kl. 12 á hádegi 8. des. til kl. 12 á hádegi 9. des. GILDIR Í 24 STUNDIR Ferðatímabil: 10. jan.–7. feb. 2018 Báðar leiðir frá 18.000 kr. Aðra leið frá 8.900 kr. stjórnsýsla Ekki hefur verið ákveðið hvernig ákvæði stjórnar- sáttmálans um aðgerðir í fíkniefna- málum verða útfærðar. Þar segir að snúa þurfi af braut harðra refsinga fyrir neyslu fíkniefna „en styrkja aðgerðir gegn fíkniefnasölum, inn- flutningi og framleiðslu fíkniefna. Tryggja þarf fíklum viðunandi með- ferðarúrræði með samvinnu dóms-, félags- og heilbrigðiskerfis.“ Sigríður Andersen segir að dóms- málaráðuneytið eigi fulltrúa í hóp sem heilbrigðisráðherra skipaði og hefur það hlutverk að fjalla um skaða minnkandi aðgerðir í fíkni- efnamálum Páll Winkel, forstöðumaður Fangelsismálastofnunar, segist sammála þeirri stefnu sem kveðið er á um í stjórnarsáttmálanum. „Ég held að það sé mjög mikilvægt að greina á milli þeirra sem eru komnir í afbrot vegna þess að þeir ráða ekki við fíkn og hins vegar þeirra sem stunda skipulagða glæpastarfsemi og koma öðru fólki í þá aðstöðu að fremja afbrot vegna fíknar,“ segir hann. Páll segist yfirhöfuð vera mót- fallinn þyngri refsingum. „Enda er ekki talað beinlínis um það þarna. Heldur er verið að vísa til öflugri löggæslu,“ segir hann og segist fremur vera talsmaður öflugri lög- gæslu og betri fangelsa. – jhh Öflugri gæslu en ekki herða refsingar Páll Winkel. FréttabLaðið/anton brink 8 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F Ö s t u d a G u r10 F r é t t i r ∙ F r é t t a b l a ð i ð 0 8 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :3 1 F B 0 5 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 6 E -7 6 B 4 1 E 6 E -7 5 7 8 1 E 6 E -7 4 3 C 1 E 6 E -7 3 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 5 6 s _ 7 _ 1 2 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.