Fréttablaðið - 08.12.2017, Blaðsíða 22
Fótbolti Fimm lið frá Englandi
verða í pottinum þegar dregið verð-
ur í 16-liða úrslit Meistaradeildar
Evrópu á mánudaginn.
Manchester-liðin City og United,
Liverpool, Tottenham og Chelsea
eru öll komin í 16-liða úrslit Meist-
aradeildarinnar. Fjögur fyrstnefndu
liðin unnu sinn riðil en Chelsea
lenti í 2. sæti C-riðils á eftir Roma.
Þetta er í fyrsta sinn sem fimm lið
frá sama landinu komast í 16-liða
úrslit Meistaradeildarinnar. Raunar
er þetta bara í annað sinn sem fimm
lið frá sama landi taka þátt í riðla-
keppninni. Spánn átti einnig fimm
fulltrúa á þarsíðasta tímabili.
Gengi ensku liðanna í Meistara-
deildinni undanfarin ár hefur
ekki verið merkilegt. Fimm
ár eru síðan lið frá Eng-
landi (Chelsea) varð
E v r ó p u m e i s t a r i
og síðan þá hafa
aðeins tvö ensk
lið, Chelsea 2014 og Man chester
City 2016, komist í undan úrslit
keppninnar.
Á síðasta tímabili hélt Leicester
City uppi heiðri ensku liðanna með
því að komast í 8-liða
ú r s l i t M e i st a ra -
deildarinnar. City
og Arsenal féllu út í
16-liða úrslitum en
Tottenham komst
ekki upp úr sínum
riðli. Þrír af fimm
fulltrúum Englands
í Meistaradeildinni í
Enska upprisan í Meistaradeildinni
Eftir mögur ár hafa liðin úr ensku úrvalsdeildinni gert góða hluti í Meistaradeild Evrópu í vetur. Öll ensku liðin komust í 16-liða úrslit
og fjögur þeirra unnu sinn riðil. Eftir að hafa ekki komist í 16-liða úrslit í fyrra fékk Tottenham flest stig allra liða í riðlakeppninni í ár.
© GRAPHIC NEWSHeimild: UEFA
Man. Utd., ENG
2016-17: Ekki með
Besti árangur: 3x meistari
Basel, SVI
2016-17: Riðlakeppni
Best: 8-liða 1974
PSG, FRA
2016-17: 16-liða
Best: Undanúrslit 1995
Bayern München, ÞÝS
2016-17: 8-liða
Best: 5x meistari
Roma, ÍTA
2016-17: Ekki með
Best: Úrslit 1984
Chelsea, ENG
2016-17: Ekki með
Best: 1x meistari
Barcelona, SPÁ
2016-17: 8-liða
Best: 5x meistari
Juventus, ÍTA
2016-17: Úrslit
Best: 2x meistari
Liverpool, ENG
2016-17: Ekki með
Best: 5x meistari
Sevilla, SPÁ
2016-17: 16-liða
Best: 8-liða 1958
Man. City, ENG
2016-17: 16-liða
Best: Undanúrslit 2016
Shakhtar Donetsk, ÚKR
2016-17: Ekki með
Best: 8-liða 2011
Besiktas, TYR
2016-17: Riðlakeppni
Best: 8-liða 1987
Porto, POR
2016-17: 16-liða
Best: 2x meistari
Tottenham, ENG
2016-17: Riðlakeppni
Best: Undanúrslit 1962
Real Madrid, SPÁ
2016-17: Meistari
Best: 12x meistari
SIGURVEGARAR RIÐLANNA LIÐIN Í 2. SÆTI RIÐLANNA
Dregið í 16-liða úrslit 11. desember
liðin í 16-liða úrslitum
Meistaradeildarinnar
Tottenham-mennirnir Son
Heung-Min og Dele Alli fagna
marki gegn APOEL í fyrradag.
nOrDicPHOTOS/gETTy
ár voru ekki einu sinni með á síðasta
tímabili.
Ensku liðin töpuðu aðeins
þremur af 30 leikjum sínum í riðla-
keppni Meistaradeildarinnar í ár.
Þar af tapaði City fyrir Shakhtar
Donetsk í þýðingarlausum leik fyrir
Man chester-liðið í fyrradag. Ensku
liðin voru með 70% vinningshlut-
fall í riðlakeppninni í ár. Til saman-
burðar var vinningshlutfall spænsku
liðanna 45,8%, ítölsku liðanna
44,4% og þeirra þýsku 38,8%.
Tottenham, sem komst ekki upp
úr sínum riðli í fyrra, fékk flest stig
allra liða í riðlakeppninni, eða 16
talsins. Spurs var í riðli með Evrópu-
meisturum Real Madrid og Borussia
Dortmund svo árangur Lundúna-
liðsins er framúrskarandi.
Ensku liðin skoruðu alls 80 mörk
í riðlakeppninni. Liverpool var
markahæsta enska liðið með 23
mörk. Aðeins Paris Saint-Germain
skoraði meira (25 mörk). Liverpool
skoraði tvisvar sinnum sjö mörk í
leik; gegn Maribor á útivelli og gegn
Spartak Moskvu á heimavelli í fyrra-
dag.
Þetta enska haust gleymist samt
fljótt ef árangurinn í útsláttarkeppn-
inni næsta vor verður ekki góður.
Það getur margt breyst á þeim rúmu
þremur mánuðum sem eru þar til
16-liða úrslitin hefjast. En frammi-
staðan í riðlakeppninni gefur alla-
vega góð fyrirheit. ingvithor@365.is
16
Tottenham fékk 16 stig í
riðlakeppni Meistaradeildar-
innar í ár, flest allra liða.
Krókháls 1 • 110 Reykjavík • Iceland • S. 567 8888 • www.pmt.is
VOGIR
fyrir fólk í öllum stærðum
VIÐ EIGUM RÉTTU VOGINA
FYRIR JANÚAR ÁTAKIÐ
Mikið úrval af bað-, fitumælinga- heimilis- og barnavogum frá Tanita, sem smell passa
í jólapakkann. Tanita er leiðandi með vogir fyrir heilsugeirann og býður einnig uppá hugbúnað
til að tengja við fitumælingavogir og skrá þannig allar mælingar í gagnagrunn.
8 . d e s e M b e r 2 0 1 7 F Ö s t U d A G U r22 s p o r t ∙ F r É t t A b l A ð i ð
0
8
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
6
E
-8
5
8
4
1
E
6
E
-8
4
4
8
1
E
6
E
-8
3
0
C
1
E
6
E
-8
1
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
5
6
s
_
7
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K