Fréttablaðið - 08.12.2017, Qupperneq 24
Útsýnið úr íbúð Valgerðar í London er fallegt. Í bakgrunni má sjá háhýsin í miðborginni.
Útþráin hefur lengi blundað í Valgerði Pétursdóttur sem hélt út í heim eftir stúd
entspróf og er þar enn, tíu árum
síðar. Eftir mislöng stopp á Ítalíu, í
Svíþjóð og Skotlandi flutti hún til
London þar sem hún hefur starfað
undanfarin fjögur ár sem grafískur
upplifunarhönnuður hjá vöruþró
unarfyrirtækinu Mint Digital. Árin í
London hafa einkennst af skemmti
legum verkefnum, samferðafólki
með ólíkan bakgrunn og fjölbreytt
um viðburðum sem heimsborgin
býður upp á.
Það er ekki víst að allir átti sig á
því hvað felst í starfsheitinu upp
lifunarhönnuður. Valgerður útskýrir
betur hvað felst í starfi hennar.
„Þegar kemur að því að hanna þjón
ustu er svo margt sem spilar inn í og
m.a. þættir sem við hugsum aldrei
út í. Því er nauðsynlegt að tala við
sem flesta viðskiptavini og fá innsýn
í það hvernig umrædd þjónusta
hjálpar þeim. Ég fæst aðallega við
þjónustu og upplifunarhönnun á
netinu þar sem sinna þarf þörfum
mjög ólíkra neytenda sem hafa um
leið mjög ólíkar þarfir.“
Verkefnin eru því fjölbreytt og
viðskiptavinirnir eru ólíkir. „Í fyrra
fór ég til dæmis til New York þar
sem ég vann með útgáfurisanum
Penguin Random House sem var að
setja upp síðu fyrir unga lesendur.
Undanfarin ár höfum við sett upp
þjónustu fyrir fólk sem kaupir og
selur sjónvarpsefni en BBC og Sky
hafa stutt það verkefni. Nýlega
vorum við að klára verkefni með
20 ólíkum sprotafyrirtækjum sem
eru að keppast um að gera bönkum
kleift að bjóða upp á betri þjónustu
og í augnablikinu erum við að vinna
að þjónustu til að auðvelda fólki
lífið þegar kemur að heilbrigðisgeir
anum hér í Englandi. Þannig að það
eru alls konar verkefni í gangi og það
besta er að engin þeirra eru eins.“
Safnaði ekki í baukinn
Valgerður fór aðra leið en flestir
jafnaldrar hennar eftir útskrift úr
framhaldsskóla. Hún vildi læra
nýtt tungumál og endaði á að fara
til Ítalíu í tungumálaskóla í eitt
ár. Eftir heimkomuna skráði hún
sig í ferðamálafræði en segist hafa
klárað ákveðna áfanga til þess að
komast í skiptinám aftur til Ítalíu.
„Þegar að ég var búin með skipti
námið í Mílanó ákvað ég að skrá
mig í BAnám í grafískri hönnun
og listrænni stjórnun og fann að
ég var komin á rétta hillu í lífinu.“
Eftir námið hóf hún störf sem
lærlingur á auglýsingastofu í
Mílanó. „Við unnum með stórum
viðskiptavinum á borð við IKEA
og Disney sem var skemmtileg
reynsla. En samt áttaði ég mig á
því að það væri kominn tími til
að fara frá Ítalíu. Enda dvalið þar
í sex ár og það var klárt mál að ég
var ekki að fara að safna í baukinn
í þessari vinnu. Hálfu ári síðar var
ég komin til Stokkhólms í fram
haldsnám sem breytti lífi mínu.“
Umrætt nám var mastersnám
í gagnvirkri listrænni stjórnun
(e. Interactive Art Direction) og
háskólinn hét Hyper Island. „Þar
lærði ég að nota hönnun til þess
að gera þjónustu betri fyrir þá
sem nota hana. Um leið lærði
ég að vinna með fólki sem hefur
ekki sama bakgrunn og endi
lega sömu skoðanir og ég. Það er
nefnilega þannig að eftir því sem
meiri fjölbreytileiki er til staðar
þegar kemur að hugmyndavinnu
og vöruþróun, því betri verður
þjónustan og varan. Þar lærði ég
líka að maður hannar með fólkinu
sem er að nota þjónustuna og
þeim sem vinna við þjónustuna.
Það var eins og ég skildi loksins
allt saman.“
Fjölbreytileikinn bestur
Valgerður kann afar vel við sig í
stórborginni London sem hún
segir vera algjörlega yndislega. „Ég
hélt alltaf að Mílanó væri stórborg
en svo kom ég hingað. Auðvitað
fylgir henni oft endalaust mann
haf og sírenur en þegar maður er
búinn að venjast borginni og finna
taktinn er hún algjör draumur.“
Og fjölbreytileikinn í mann
lífinu er það besta við borgina að
hennar sögn. „Að vera í kringum
fólk alls staðar að úr heiminum
hefur gefið og kennt mér svo
Framhald af forsíðu ➛
Starri Freyr
Jónsson
starri@365.is
miklu meira en mig hefði nokk
urn tíma grunað. Borginni fylgir
líka sá lúxus að geta borðað á alls
konar stöðum og að upplifa mis
munandi hluti sem eru stöðugt í
gangi. Það vill líka svo skemmti
lega til að mikið af því fólki sem
ég hef kynnst á Ítalíu, í Svíþjóð og
Skotlandi er saman komið hér í
London. Þannig að hér eru ekki
bara góðir vinir frá Íslandi heldur
alls staðar að.“
Erum öll eins
Búseta í svo mörgum löndun
undanfarin ár hefur svo sannar
lega kennt henni margt. Fyrst og
fremst þó að þegar upp er staðið
erum við öll eins. Vissulega séu
mismunandi siðir og hefðir við
lýði en það geri bara fjölbreyti
leikann svo skemmtilegan. „Á Ítal
íu lærði ég að meta litlu hlutina
í lífinu, eins og stundina sem ég
átti alla morgna með kaffinu mínu
á barnum. Bara ég og kaffið. Eða
lyktina af góðum tómat. Guð hvað
ég sakna stundum hráefnanna á
Ítalíu. Matreiðslan var svo einföld
þar sem allt snerist um að leyfa
hráefnunum að njóta sín.“
Í Svíþjóð lærði hún hvað það er
nauðsynlegt að meta eigin tíma.
„Þar lærði ég líka hversu nauðsyn
legt það er að allir fái að segja sitt
þegar að kemur að ákvörðunum.
Vegna þess að þegar við hlustum
hvert á annað og skiljum af hverju
fólki líður eins og því líður þá
tökum við betri ákvarðanir.“
Skotland kom henni mjög á
óvart, þá helst náttúran. „Þvílík
perla sem hún er og svo eru allir
svo andskoti næs. Ég var alltaf
að lenda í skemmtilegum uppá
komum þar með innfæddum sem
voru svo töfrandi.“
Fær rjúpu um jólin
Utan vinnunnar þykir henni
ekkert betra en að eyða góðum
stundum með vinum. Hvort sem
það er að fara á tónleika, út að
borða eða í langa göngutúra. „Það
er svo mikið af fallegri náttúru
í kringum London og ég er svo
heppin að eiga góða vini sem búa
í sveitinni sem ég get þröngvað
mér upp á þegar ég er þreytt á
borginni.“
Fyrst og fremst segist hún þó
vera í mikilli sjálfsvinnu. „Það
er víst eitthvað sem gerist þegar
maður er kominn yfir þrítugt og
mikið er ég glöð yfir því. Ekkert er
að gefa mér meira í augnablikinu.
Það er ekki alltaf auðvelt en ég er
komin með æðislegan sálfræðing
sem er að opna fyrir mér nýjar
víddir. Sannarlega besta fjárfesting
lífs míns.“
En hvaða augum skyldi svo
víðförul ung heimskona líta fram
tíðina? „Ég er ekki mikið að pæla í
því hvað er fyrir framan mig nema
bara næsta skref. Ég vona bara að
ég geti haldið áfram að vera ég í
framtíðinni. Ég veit þó að ég ætla
að vera heima um jólin, sérstak
lega eftir að ég frétti að mamma
væri búin að ná í rjúpur. Ég get
ekki hugsað mér betri stað til að
vera á í heiminum yfir jólin en
með fjölskyldunni á Íslandi.“
Slakað á í haustsólinni í Stokkhólmi, gömlu heimaborginni.Í langþráðu sumarfríi í Alberobello i
Pugliu á Ítalíu síðasta sumar.
Á blautum haustdegi í London með
Helgu Ósk, góðri vinkonu sinni.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 8 . d E S E m B E R 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U R
0
8
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
6
E
-8
0
9
4
1
E
6
E
-7
F
5
8
1
E
6
E
-7
E
1
C
1
E
6
E
-7
C
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
5
6
s
_
7
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K