Fréttablaðið - 08.12.2017, Síða 26
Kórinn hefur undirbúið sig undanfarnar vikur en stóra stundin verður í Langholts-
kirkju á sunnudaginn. „Ég ætla að
syngja inn jólin,“ sagði Birna þegar
við slógum á þráðinn til hennar.
„Við byrjuðum að æfa í september.
Ég sé um nótur fyrir kórinn og það
er algjörlega heilög stund þegar
ég tek upp möppuna sem geymir
þær,“ segir hún en Birna hefur
sungið með kórum frá því á ungl-
ingsaldri. „Ég byrjaði að syngja í kór
Menntaskólans við Hamrahlíð, hélt
síðan áfram í Hamrahlíðarkórnum
en það mótaði mig mikið að taka
þátt í kórstarfinu. Það var mikill agi
í kórnum, skemmtileg hópvinna og
maður lærði tjáningu.“
Góður stjórnandi
Eftir að hafa verið frá kórstarfi í
nokkur ár fór hugurinn aftur á stjá
og löngunin til að syngja áfram tók
yfirhöndina. „Ég hitti Hilmar Örn
Agnarsson, stjórnanda Söngfjelags-
ins, úti í búð. Sameiginleg vinkona
kynnti okkur og mér leist svo vel á
manninn að ég ákvað að ganga til
Syngja inn jólin á keltnesku
Birna Bragadóttir, garðyrkjumaður og söngkona með Söngfjelaginu, hlakkar mikið til
jólatónleika kórsins, enda segir hún keltnesku lögin sem flutt verða ótrúlega falleg.
Birna Bragadóttir er í kór Söngfjelagsins og hlakkar mikið til að vinna með keltneskum listamönnum á tónleikunum á sunnudag í Langholtskirkju. MYND/ERNIR
Elín
Albertsdóttir
elin@365.is
liðs við kórinn. Hilmar segir hluti
á svo fallegan hátt, skammar ekki
en nær fram ótrúlegum árangri
með húmor og mýkt. Það er virki-
lega gaman að vinna með honum
og maður leggur sig allan fram í
söngnum. Hilmar nær því besta
fram í fólki og allir treysta á hans
listræna innsæi,“ segir Birna.
Miklar kanónur í heimsókn
Jólatónleikar Söngfjelagsins eru
sérstakir að mörgu leyti. Sótt er í
írska og keltneska jólatónlist sem
er framandi fyrir marga. „Við sækj-
um arfinn til Skotlands, Írlands og
Wales. Með okkur verða listamenn
frá þessum slóðum sem gefa tón-
leikunum nýjan blæ fyrir okkur
Íslendinga. Tónlistin er útsett af Íra
sem er stjórnandi kammerkórs í
Dublin og hefur vakið mikla athygli
fyrir mýkt í söng. Það eru miklar
kanónur sem koma fram á tónleik-
unum sem eru þekktar í heima-
löndum sínum. Við erum að fara
langt út fyrir okkar þægindaramma
með því að fá svona flott fólk til
okkar. Ég get nefnt söngkonuna
Lisu Knapp sem syngur einsöng og
leikur á keltneska fiðlu. Hún hefur
hlotið margvíslegar viðurkenn-
ingar fyrir tónlist, meðal annars
frá dagblaðinu The Guardian.
Gerry Diver er konsertmeistari,
fiðluleikari og sérfræðingur í írskri
og keltneskri tónlist. Hann var í
hljómsveitinni The Popes en hefur
síðustu ár starfað við upptökur og
útsetningar. Sjálf ætla ég að taka á
móti sekkjapípuleikara, Colman
Connolly, sem er einn fremsti kelt-
neski sekkjapípuleikari Bretlands.
Hann mun búa heima hjá mér á
meðan á heimsókninni stendur
og ég hlakka mikið til að kynnast
honum,“ segir Birna og bætir við að
það sé svo ótrúlega skemmtilegt að
fá allt þetta fólk með kórnum.
Söngfjelagið er sex ára gamall kór
sem hefur vakið mikla athygli. Um
sjötíu manns eru skráð í kórinn.
„Það er ótrúleg vinátta í þessum
kór,“ segir hún.
Sækir jólatréð út í skóg
Þar sem Birna starfar við garðyrkju
hjá Reykjavíkurborg hlakkar hún
til að finna sitt eigið jólatré úti í
náttúrunni eftir tónleikana. „Jólin
koma til mín með trénu. Ég set það
upp á Þorláksmessu en áður er ég
búin að baða það og gera það klárt
fyrir inniveruna. Í mínum huga er
tréð táknrænt fyrir jólin, þá tekur
maður jörðina inn á heimilið. Ég
gef trénu gott pláss á miðju stofu-
gólfinu og skreyti það mikið. Mér
finnst hápunktur jólanna þegar
jólatréð er skreytt. Svo bakar
maður auðvitað laufabrauð. Það
er skemmtilegur siður en núna
hlakka ég mest til tónleikanna á
sunnudag. Þeir verða hátíðlegir og
sérstakir. Síðan mega jólin koma,“
segir Birna.
Norðmenn hafa áhyggjur af minnkandi fiskneyslu landsmanna. Grænmetisát
hefur hins vegar stóraukist. Yngra
fólk borðar mun minni fisk en
foreldrar þess gerðu. Á árunum
2015-2016 minnkaði fiskneysla
um 4% hjá yngri aldursflokkum.
Það er mjög mikilvægt að borða
fisk til að fá D-vítamín, joð og
selen, sérstaklega fyrir fólk á norð-
lægum slóðum. Neysla á grænmeti,
berjum og ávöxtum hefur aukist
stórkostlega á undanförnum árum.
Grænmeti er vissulega hollt og
gott en fiskur þarf líka að vera á
borðum.
Með heilsubylgju undanfarinna
ára hefur sykurneysla jafnframt
dregist mikið saman. Á því sviði
telja Norðmenn sig vera á réttri
leið en hvetja fólk til að borða
meiri fisk.
Borða minni fisk
Ungt fólk borðar mun minna af fiski
en foreldrarnir gerðu en neytir meira
grænmetis í staðinn.
Mozart við kertaljós
Styrkt af Tónlistarsjóði Menntamálaráðuneytisins, Reykjvíkurborg, Hafnarfjarðarbæ, Kópavogsbæ og Garðabæ
Miðasala við innganginn og á tix.is - Miðaverð kr. 2.800 / 2.000
Hafnarfjarðarkirkju þriðjudag 19. des. kl 21.00
Kópavogskirkju miðvikudag 20. des. kl 21.00
Garðakirkju fimmtudag 21. des. kl 21.00
Dómkirkjunni í Reykjavík föstudag 22. des. kl 21.00
Camerarctica
Mozart by candlelight
Kammertónlist á aðventu 2017
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 8 . D E S E M B E R 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U R
0
8
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
6
E
-6
C
D
4
1
E
6
E
-6
B
9
8
1
E
6
E
-6
A
5
C
1
E
6
E
-6
9
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
5
6
s
_
7
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K