Fréttablaðið - 08.12.2017, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 08.12.2017, Blaðsíða 28
Hugleiðsla gengur út á það að vingast við sjálfan sig og elska sig eins og maður er nákvæm- lega núna, burtséð frá framtíðar- plönum eða fortíð. Að þykja jafn vænt um okkur sjálf eins og okkur þykir vænt um mömmur okkar, dætur, systur eða vinkonur, en því miður er það ekki alltaf raunin. Við erum alltaf svo góð við aðra, en líka jafn góð í að dæma okkur hart,“ segir Thelma sem ætlar að mæta brýnni þörf borgarbúa til að gefa sér tíma í slökun og ró í ellefu mínútur á óvæntum stöðum um alla borg. „Á ellefu mínútum náum við að hafa áhrif á innkirtla- og taugakerfi okkar,“ segir Thelma sem vinnur með möntrur úr kundalini-jóga. „Fjölmargar vísindalegar rannsóknir styðja að hugleiðsla og slökun geta auðveldlega dregið úr daglegri streitu, fært okkur innri frið og bætt líkamlega og andlega líðan. Við förum með sömu möntruna aftur og aftur, en með því þjálfum við hugann út úr neikvæðum hugs- unum, eins og: „Ég þarf þetta“, „Af hverju er ég ekki svona?“ og „Ég er ömurleg“ yfir í: „Ég er nóg“ og „Ég er fullkomin eins og ég er“, en þó ekki yfir í: „Ég ætla að verða besta útgáfan af sjálfum mér“ eða „Ég ætla að missa fimm kíló fyrir jól“. Við ætlum að njóta þess að vera til hér og nú, nákvæmlega eins og við erum í dag.“ Hamingjan er inni i okkur Hugleiðsluferðalag Thelmu, Slökun í borg, er samstarfsverkefni hennar, Systrasamlagsins og Reykjavíkur- borgar. Það stendur yfir í heilt ár en í kvöld verður hún á Yogafood á Grensásvegi. „Það þarf ekki að stunda jóga til að geta tekið þátt í hugleiðslu með mér,“ segir Thelma. „Ég vil taka jóga og hugleiðslu út úr jógasalnum og kynna það fyrir öllum. Allir geta iðkað slökun og hugleiðslu, það er einfalt og ódýrt og krefst í raun engra sérstakra hæfileika,“ segir Thelma og er hæstánægð með samstarf sitt við borgaryfirvöld enda sé það eina sem vanti í borgarsamfélagið að fá leyfi til að slaka á og muna að anda. „Nú er sá árstími genginn í garð þegar allt gengur út á að lifa utan frá og inn, en ég vil reyna að snúa því við og lifa innan frá og út. Við leitum í sífellu að einhverju til að kaupa, borða eða drekka; og að mata okkur á einhverju sem við höldum að sé hamingja. Ég vil sýna fram á að ham- Kveikir á hamingjuhormóni Hugarfóstur Thelmu Bjarkar Jónsdóttur, jógakennara, fatahönnuðar og listkennara, næsta árið er Slökun í borg. Thelma Björk verður sýnileg á óvæntum stöðum í borginni á erilsamri aðventunni við að veita borgarbúum almenna slökun, vellíðan og ró með aðeins ellefu mínútna hugleiðslu. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@365.is ingjan sé inni í okkur. Allt sem við þurfum í lífinu er innra með okkur og með því að gefa sér tíma til að hugleiða kviknar á hamingjuhorm- ónum líkamans,“ segir Thelma, og hægt er að hugleiða alls staðar: „Við getum til dæmis hugleitt í umferðinni þegar við erum fimm, tíu mínútur að keyra heim. Það þarf ekki að gerast í hugleiðsluher- bergi heima, í réttu fötunum eða við Búddastyttuna. Bara þú með þér er nóg.“ Dýrmætt að elska sjálfan sig Thelma verður með daglega hug- leiðslu og slökun hjá Systrasam- laginu frá 11. til 19. desember. „Hver veit nema ég poppi líka upp í miðri jólaösinni á Laugaveg- inum til að hugleiða með gestum og gangandi. Ég vann sjálf í verslunum í miðbænum í tíu ár, frá klukkan 10 til 10 öll kvöld í desember og var algjörlega búin á því á lífi og sál þegar jólin loks komu. Ég er líka gömul miðbæjarrotta sem er nýflutt í Kópavoginn. Nú vil ég gefa til baka. Slökun í borg er líka óður til starfs- fólks og gesta miðborgarinnar þar sem við stoppum tímann í ellefu mínútur. Síðan heldur hver og einn út í lífið, en sama hvað hann tekur sér fyrir hendur, þá er hann búinn að leggja inn hjá sjálfum sér og hug- leiða fyrir daginn.“ Thelma hvetur fólk á öllum aldri, bæði konur, karla og börn, til að koma, hugleiða og eiga fallega stund saman. „Aðeins örfárra mínútna slökun og hugleiðsla á dag getur raðað öllu í réttar hillur, róað og fært innri frið, en það er eitt að segja frá og annað að finna. Við hugleiðsluna nota ég heilunar- og friðarmöntru sem gefur frið í hjörtun og frið út í heim. Það er svo dýrmætt að heila sjálfan sig, þykja vænt um sjálfan sig og hugsa fallega til sjálfs sín því máttur orða og hugsana er sterkari en margir gera sér grein fyrir,“ segir Thelma og hvetur til hugleiðslu á aðventunni þegar áreitið er mikið. „Nú er tíminn til að gefa sjálfum sér hugleiðslu að gjöf, bara fyrir sjálfan sig. Hún er besta gjöfin sem maður getur gefið sjálfum sér; það er tími til að anda að og anda frá.“ Jóga gaf traust til lífsins Thelma er þekktur fatahönnuður, móðir og jógakennari sem varð fyrst hugfangin af jóga og hugleiðslu á meðgöngu. Þaðan lá leiðin í kenn- aranám í kundalini-jóga hjá Auði Bjarnadóttur í Jógasetrinu. „Jóga og hugleiðsla breyttu lífi mínu í alla staði. Það gaf mér innri frið, sjálfstraust, kjark og úthald til að stíga inn í drauma mína og trúa á sjálfa mig. Ég hef náð að næra allt það bjarta og góða í sjálfri mér, og sjá það í öðrum, auk þess sem ég upplifi aukinn kjark og úthald til að takast á við áskoranir sem ég mæti í lífinu,“ segir Thelma sem umfram allt hefur öðlast traust til lífsins í gegnum jógaiðkun sína. „Ég treysti því að lífið færi mér allt sem ég þarf og allt sem ég vil.“ Thelma kennir eldri borgunum jóga og hugleiðslu í Jógasetrinu og kundalini-jóga í Hlíðasmára 14. Hún hefur einnig unnið með Systrasam- laginu og leitt jóga og hugleiðslu fyrir hið fræga sveitasamflot sam- lagsins. Nýverið lauk hún meistara- námi við Listaháskóla Íslands í listkennslufræðum þar sem hún vann og vinnur með tengsl á milli handverks og hugleiðslu. „Ég vann lengi að því að hanna hatta og spangir undir merki mínu Thelma Design, en fann að mig langaði að miðla því sem ég hafði lært og fundið í gegnum jóga. Í jóga- kennaranáminu fann ég kunnug- lega vellíðunartilfinningu sem ég í fyrstu kom ekki auga á hvaðan var sprottin. Í meistaranáminu raðaðist púslið loks saman og ég uppgötvaði hvaðan þessi vellíðan og hugarró var komin; það var þegar ég var að hekla og prjóna með ömmu,“ segir Thelma sem nú miðlar reynslu sinni í gegnum námskeið sín „Slaka&Skapa“ þar sem hún blandar saman hugleiðslu við skapandi ferli hvers nemanda. „Um leið og maður nær í þetta vellíðunarflæði, hvort sem það er í handavinnu, garðvinnu eða við elda- mennsku, tapar maður tímanum og fer í hugleiðsluástand. Ég fann loks að þetta tengdist allt. Ég hafði hug- leitt frá því ég var barn en í gegnum annan miðil; handverkið. Það þarf ekki meira en nál og tvinna til, og að anda og leyfa sér að vera.“ Hægt er að fylgjast með hug- leiðsluferðalagi Thelmu í við- burðum á Face book undir Slökun í borg, fyrir alla, á heimasíðu hennar, andadu.com, og á systrasamlagid. is. Hugleiðslan á Yoga food, Grensás- vegi 10, hefst klukkan 18.30 í kvöld. Aðgangur er ókeypis. Thelma Björk Jónsdóttir ætlar að færa kyrrð og vellíðan yfir borgarbúa með hugleiðslu á óvæntum stöðum á aðvent- unni og langt fram á næsta ár. Í kvöld verður hún með ellefu mínútna hugleiðslu á Yogafood. MYND/ANTON BRINK Falleg ljós sem lýsa upp skammdegið Veggljós svart eða hvítt kr. 7.990,- Bankalampi kr. 16.990,- Lofljós grind m.peru kr. 18.900,- Veggljós kr. 7.450,- Frostrós kr. 1.590,- Lofljós gler m.peru kr. 19.900,- Skrifborðslampi kr. 3.495,- leiðiskross kr. 3.700,- Skrifborðslampi kr. 11.900,- Skrifborðslampi kr. 3.495,- Retro ljós m.peru kr. 4.990,- 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 8 . D e s e M B e R 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U R 0 8 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :3 1 F B 0 5 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 6 E -5 9 1 4 1 E 6 E -5 7 D 8 1 E 6 E -5 6 9 C 1 E 6 E -5 5 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 5 6 s _ 7 _ 1 2 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.