Fréttablaðið - 08.12.2017, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 08.12.2017, Blaðsíða 30
Pastasalat er einfalt að gera og það er mjög góður og mett-andi réttur með brauði. Hér eru nokkrar hugmyndir að ein- földum mat áður en fólk treður sig út af dýrindis jólamat. Þessa rétti er yfirleitt hægt að gera að hluta eða öllu leyti fyrirfram. Hægt er að nota margt fleira en upp er talið í uppskriftunum í salatið, til dæmis lárperu, mangó, gulrætur eða hvað sem fólki dettur í hug og er til í ísskápnum. Alls kyns afgangar af osti eru góðir í svona pastarétt. Sömuleiðis er hægt að nota mis- munandi pasta í réttina. Allar uppskriftirnar miðast við fjóra. BLT pastasalat 300 g pastaskrúfur ½ bolli mjólk 300 g beikon 3 tómatar, meðalstærð, skornir í bita 1 msk. ferskt timían, smátt skorið 1 hvítlauksrif, marið Salt og pipar ½ bolli majónes ¼ bolli sýrður rjómi 4 msk. graslaukur, niðurskorinn Blandað salat Sjóðið pasta í söltu vatni eftir leið- beiningum á umbúðum. Þerrið og blandið síðan saman við mjólk- ina. Geymið. Steikið beikonið þar til það verður stökkt. Þerrið á eldhúspappír. Bætið tómötum, timían og hvítlauk á pönnuna og bragðbætið með salti og pipar. Látið í skál. Skerið beikonið í litla bita. Setjið beikonið saman við tómatablönduna en geymið smá- vegis til skrauts. Blandan er hrærð saman við pastað. Hrærið saman majónesi og sýrðum rjóma. Blandið saman við pastað og bragðbætið með salti og pipar. Setjið því næst salatið saman við ásamt þremur msk. af graslauk. Skreytið salatið með beikoni og graslauk. Berið fram með brauði. Ítalskt kjúklingasalat 3 bollar soðnar pastaskrúfur eða annað pasta eftir smekk ½ bolli auk tveggja msk. af jóm- frúarolíu 1 bolli eldaður, niðurskorinn kjúklingur 1 bolli litlar agúrkur, smátt skornar 1 bolli kirsuberjatómatar, skornir til helminga ½ bolli steinlausar ólífur ½ bolli niðurskorin grilluð, rauð paprika ½ bolli niðurskorin ítölsk salami- pylsa eða pepperoni ½ rauðlaukur, smátt skorinn ¼ bolli niðurskorin, fersk stein- selja 100 g fetaostur eða annar eftir- lætisostur ⅓ bolli rauðvínsedik Blandað salat Kælið pastað eftir suðu með köldu vatni. Þerrið síðan mjög vel. Setjið í stóra skál og dreifið tveimur matskeiðum af olíu yfir. Bætið kjúklingi saman við auk tómata, ólífa, papriku, salami, lauks, salats og steinselju. Bragðbætið með salti og pipar. Setjið rauðvínsedik í skál ásamt hálfum bolla af ólífuolíu. Hrærið vel saman og setjið yfir salatið. Best er að leyfa salatinu að standa í minnst 30 mínútur áður en það er borið fram með brauði. Pastasalat með túnfisk 2 bollar soðnar pastaskrúfur 1 dós túnfiskur ½ rauðlaukur, niðurskorinn 6 vorlaukar, skornir í þunnar sneiðar ½ paprika, smátt skorin 1 stór tómatur, smátt skorinn Nokkrar skeiðar majónes 2 msk. ferskt dill 1 msk. sellerífræ Ferskt timían Salt og pipar Smávegis sítrónusafi 2-3 harðsoðin egg Hrærið fyrstu sex af upptalning- unni saman við majónes. Notið nægilega mikið majónes til að hræra saman salatið en þó alls ekki of mikið (ekki eins og tún- fisksalat í majónesi). Bætið krydd- inu saman við til að bragðbæta. Þá er sítrónusafa bætt út í. Kælið salatið í nokkra tíma. Þegar það er orðið kalt og hressandi hærið þá allt vel saman aftur og bætið majónesi við ef þörf reynist. Bætið eggjunum saman við í lokin. Pastasalat á annasömum degi Desember er annasamur hjá flestum. Sumir vinna lengur en venjulega á meðan aðrir reyna að komast í búðir eftir vinnu. Kvöldmaturinn þarf því að vera einfaldur en hollur þessa dagana. Pastasalat er einfalt að gera og hægt að nota í það allt mögulegt sem til er í ísskápnum. Pastasalat þarf ekki að vera dýr matur frekar en maður vill. Elín Albertsdóttir elin@365.is 20% AFSLÁTTUR AF YFIRHÖFNUM Í JÓLAPAKKANN HENNAR 8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 8 . d e S e m B e R 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U R 0 8 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :3 1 F B 0 5 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 6 E -5 E 0 4 1 E 6 E -5 C C 8 1 E 6 E -5 B 8 C 1 E 6 E -5 A 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 5 6 s _ 7 _ 1 2 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.