Fréttablaðið - 08.12.2017, Side 32
Hægt verður að kúpla sig út úr amstri hversdagsins og vinda ofan af jólastressinu,
ef það er farið að gera vart við sig,
í Listasafni Íslands á morgun en
þá mun Guðrún Darshan leiða
Gong-slökun í fallegu umhverfi
safnsins. Slökunin hefst klukkan
12 og er aðgangur ókeypis.
„Gong-slökun er mjög eflandi
og nærandi upplifun sem opnar
fyrir flæðið innra með okkur.
Í annríkinu sem einkennir
nútímalíf er lífsnauðsynlegt
að kunna listina að slaka á,“
segir í lýsingu á viðburðinum á
Facebook.
„Guðrún Darshan er jógakenn-
ari, markþjálfi, Bowen-tæknir og
hómópati og hefur mikla ástríðu
fyrir jóga og hugarrækt og því
hvernig við getum skapað okkur
líf í jafnvægi þar sem allir fá að
blómstra.“
Gong-slökun í hádeginu
Sunnudaginn 10. desember klukk-
an 16, á alþjóðadegi mannréttinda,
mun fjölbreyttur hópur íslenskra
kvenna koma saman á Nýja sviði
Borgarleikhússins og lesa frá-
sagnir sem litið hafa dagsins ljós
í #metoo baráttunni hér á landi.
Konurnar sem lesa frásagnirnar
eru úr röðum sviðslistakvenna,
tónlistarkvenna, stjórnmála-
kvenna, fjölmiðlakvenna, íþrótta-
kvenna, kvikmyndagerðarkvenna,
kvenna í tæknigeiranum og svo
mætti lengi telja. Með þessum
viðburði er ætlunin að efla sam-
stöðu þeirra kvenna sem hafa deilt
sögum sínum hérlendis í kjölfarið
á hinni alþjóðlegu #metoo bylgju
þar sem konur deila frásögnum
af óviðeigandi hegðun, áreitni og
ofbeldi og vekja samfélagið allt til
umhugsunar um hið óviðunandi
ástand sem kynbundin mismunun
og ofbeldi hefur í för með sér.
Aðgangur er ókeypis en hægt
verður að nálgast miða á heima-
síðu Borgarleikhússins.
Sama dag verða haldnir svipaðir
viðburðir á Akureyri, Seyðisfirði og
Ísafirði.
#metoo í
Borgarleikhúsi
Ekki ætti að gefa litlum börnum
saltan jólamat þótt hátíð standi
yfir né heldur eiga þau að úða í sig
piparkökum. Barn sem er tíu mán-
aða eða eldra má fá möndlugraut
en gæta verður þess að mandlan
sé ekki á þeim diski. Ekki skal setja
mikinn kanil í grautinn hjá svo
ungum börnum. Of mikill kanill
getur verið slæmur fyrir lifrina.
Þess vegna er ekki heldur hollt
að láta ung börn borða mikið af
piparkökum. Sykur ætti alla jafna
að spara við börn á fyrsta ári.
Börn undir þriggja ára ættu ekki
að borða hnetur eða möndlur.
Hnetur geta staðið í börnum og
geta verið ofnæmisvaldandi. Það
má gefa barni steinlausa mandar-
ínu frá sex mánaða aldri. Byrja skal
smátt því sítrusinn í mandarín-
unni getur verið vondur í maga
barnsins. Best er að gefa barninu
mandarínubát í gegnum net.
Börn yngri en ársgömul ættu
ekki að borða hangikjöt. Það er í
lagi að gefa barni smávegis með
stöppuðum kartöflum sé það
komið á annað ár. Stappið gjarnan
soðið grænmeti með matnum, það
dregur úr saltinu í matnum. Sömu
aðferð má nota með rifjasteik en
taka skal fituna burt. Kalkúnn er
besti jólarétturinn fyrir barnið.
Kalkúnn með eplum og gulrótum
er hollur og góður.
Lítil börn og
jólamatur
10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 8 . d e s e m B e R 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U R
0
8
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
6
E
-7
1
C
4
1
E
6
E
-7
0
8
8
1
E
6
E
-6
F
4
C
1
E
6
E
-6
E
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
5
6
s
_
7
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K