Fréttablaðið - 08.12.2017, Page 44
Bækur
Vályndi
HHHHH
Friðrika Benónýsdóttir
Útgefandi: Sögur útgáfa
Prentun: Prentað í Lettlandi
Síðufjöldi: 256
Kápuhönnun: Kontor Reykjavík
Inni í karlaklefanum í Sundlaug
Húsavíkur finnur grúttimbruð
starfsstúlka, sér til angistar og við-
bjóðs, karlmann sem er „eins dauð-
ur og einn maður getur verið“ (13).
Og auðvitað þekkir Anna mann-
inn, þetta er nú ekki sérlega stór
bær, og hún hefur meira að segja
kysst hann. Nokkurn veginn svona
hefst nýjasta bók Friðriku Benón-
ýsdóttur, Vályndi, en um er að ræða
þriðju bók höfundar en jafnframt
hennar fyrstu glæpasögu. Hér er
um að ræða morðgátu af kunnug-
legri sort og allir sem hafa lesið
skandinavíska krimma eða horft á
notalegar breskar þorpsmorðgátur
í sjónvarpinu geta látið sig hlakka til
að lesa Vályndi.
Snemma kemur í ljós að fórnar-
lambið, Róbert, sem hefur aðeins
búið á Húsavík í nokkur ár, á sér
vafasama fortíð og margir í Reykja-
vík hugsa síður en svo hlýlega til
hans. Hið sama á raunar við um
nokkra Húsvíkinga og fólk hefur
fulla ástæðu til að vantreysta
hinum stimamjúka og tungulipra
Róberti þótt flestir virðist bráðna
eins og smér í meðförum hans.
Böndin berast fljótt að
vinaklíku Róberts sem
samanstóð af nokkrum
fínum pörum sem buðu
hvert öðru reglulega í
matarboð og reyndu að
standa uppi sem sigur-
vegarar í efnishyggju-
kapphlaupinu. Inn í
söguna flækist einn-
ig metsöluhöfund-
urinn Sóley sem, að
eigin sögn, dvelur í
bænum til að afla
sér upplýsinga
fyrir sína nýjustu
bók. Þá er ótalin
mikilvægasta per-
sóna hverrar einu og ein-
ustu almennilegu þorpsglæpasögu:
Staðarlögreglan. Lögreglumaðurinn
sem um ræðir er Reykvíkingurinn
Tómas Kristgeirsson sem er nýtek-
inn til starfa fyrir norðan og á langt
í land með að vinna hylli samstarfs-
manna sinna.
Það reynist ansi flókið að leysa
morðgátuna, ekki síst vegna þess
að sögupersónur skálda upp hverja
fjarvistarsönnunina á fætur annarri,
þær eru sífullar eða sullandi í víni og
þess utan er hjásofelsi stundað fram
og til baka sem flækir enn frekar
söguna því lesandinn – og aumingja
lögreglumaðurinn – á bágt með að
vita hverjum skuli treysta hverju
sinni. Það er engu logið þegar fullyrt
að lesandi haldist límdur við sög-
una og að endirinn
sé fremur óvana-
legur – án þess að
meira sé gefið upp
því enginn kann að
meta sagnaspilli.
Vályndi er einkar
hressilega skrifuð
saga og stíl l inn
minnir mig bæði á
bækurnar um Stellu
Blómkvist og bækur
Arnaldar Indriða -
sonar. Sviðsetningar
eru vel lukkaðar, per-
sónulýsingar ansi hreint
fyndnar og textinn
sjálfur blátt áfram og
skemmtilega hryssings-
legur. Persónurnar sjálfar eru vissu-
lega ákveðnar týpur, eins og vænta
má í bók af þessu tagi, og alla jafna
tekst Friðriku vel upp með þær.
Stundum geta samtölin orðin hálf-
stirð og persónurnar sjálfar helst til
ýkjukenndar en langoftast passar
það vel við sjálfa söguna og greinina
sem hún tilheyrir. Helga Birgisdóttir
Niðurstaða: Virkilega hressilega
skrifaður reyfari sem fer vel með
jólasmákökunum.
Vel lukkuð blanda af framhjáhaldi,
áfengisdrykkju og morði
Herra
ORTLES GTX PRO
Kr. 74.990.-
Ortles herra og dömu úlpurnar eru
hannaðar fyrir krefjandi aðstæður
eins og fjallgöngur, ísklifur og
skíða- og jöklaferðir.
VERSLUN SALEWA LAUGAVEGI 91
Dömu
ORTLES 2 GTX PRO
Kr. 74.990.-
Salewa 99,3x380 fbl.pdf 1 07/12/2017 08:47
Jólatónleikarnir okkar hafa verið í nokkuð föstum skorð-um í áratugi þó við bryddum líka upp á nýjungum hverju sinni. Nú er þemað ítölsk bar-
okktónlist,“ segir Hrafnkell
Orri Egilsson sellóleikari um
tónleika Kammersveitar Reykja-
víkur sem haldnir verða í Norður-
ljósasal Hörpu á sunnudaginn,
10. desember, og hefjast klukkan
17.
Í bland við hina hefðbundnu
jólakonserta Corellis og Man-
fredinis sem oft hafa verið á efnis-
skránni verða sjaldheyrðari ein-
leikskonsertar eftir Vivaldi og
Brescianello, þar sem hinir og
þessir úr sveitinni leika einleik, að
sögn Hrafnkels Orra sem lýsir þessu
nánar:
„Jólakonsertarnir ramma inn
prógrammið og síðan er selló-
konsert, konsert fyrir þrjár fiðlur,
og konsert fyrir fiðlu og óbó.“
Hrafnkell Orri segir ítalska bar-
okktónlist eyranu þjála. „Fólk
þekkir meistara Vivaldi og Árstíð-
irnar hans. Við erum með þrjú verk
eftir hann á tónleikunum og það
var hann sem fullkomnaði þetta
form að láta einleikara og hljóm-
sveit kallast á. En fyrirrennari hans
var Corelli, enda er jólakonsertinn
hans í því formi. Hann hafði svo
áhrif á Vivaldi og Brescianello.“
Eins og fyrr segir koma einleikar-
ar flestir úr röðum sveitarinnar en
einnig verður lútuleikarinn Arngeir
Heiðar Hauksson sérstakur gestur.
Hann hefur helgað sig uppruna-
flutningi á fornri tónlist og starfað
lengi í Bretlandi með hinum ýmsu
tónlistarhópum. Arngeir Heiðar
leikur einleik í lútukonsert Vivaldis
en aðrir einleikarar á tónleikunum
eru fiðluleikararnir Una Svein-
bjarnardóttir, Helga Þóra Björg-
vinsdóttir, Gunnhildur Daðadóttir
og Laufey Jensdóttir, sellóleikarinn
Hrafnkell Orri Egilsson og óbó-
leikarinn Matthías Birgir Nardeau.
Hrafnkell Orri segir það fastan
punkt hjá mörgum á aðventunni að
sækja tónleika Kammersveitarinn-
ar, sem árum saman voru í Áskirkju
en hafa nú verið fluttir í Hörpu.
„Þetta eru einir af fáum jólatón-
leikum sem ekki er sungið á. Það er
ákveðin sérstaða,“ segir hann glað-
lega. „Þarna fær fólk smá smakk af
ítalskri barokktónlistarhefð.“
gun@frettabladid.is
Smakk af ítalskri tónlistarhefð
Jólatónleikar Kammersveitar Reykjavíkur verða í Norðurljósasal
Hörpu á morgun, sunnudag, og eru helgaðir ítalskri barokktónlist.
Hér er Kammersveit Reykjavíkur í æfingarpásu. Hrafnkell Orri er annar frá vinstri. Mynd/SiguRðuR FReyR BjöRnSSOn
8 . d e s e m B e r 2 0 1 7 F Ö s t u d a G u r32 m e N N i N G ∙ F r É t t a B L a ð i ð
0
8
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
6
E
-5
4
2
4
1
E
6
E
-5
2
E
8
1
E
6
E
-5
1
A
C
1
E
6
E
-5
0
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
7
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K