Skátablaðið Faxi - 15.12.1967, Síða 10

Skátablaðið Faxi - 15.12.1967, Síða 10
 Ál JA ér á landi höfura við svo sem kunnugt er sameiginlegt bandalag drengja- og kvenskáta. Einnig eru hin almennu skátapróf sameiginleg fyrir drengi og stúlkur» Af þessu leioir, að lítið sem ekkert er gert af því að fræða kven- skáta um ýmsa hluti, sem aðeins snerta kvenskátahreyfinguna sem heild= Jafnvel þótt alþjóðleg kunnátta um kvenskáta sé ekki liður í skáta- prófunum ætti hver lcvenskátaforingi að bæta inn nokkrum fróðleiks- kornum, sem snerta alþjóðabandalag kvenskáta= Hér á eftir kemur grein um alþjóðafána og merki lcvenskáta, sem allir skyldu þekkja og kunna skil á. AÍþjóðafáninn er gullinn smári á bláum feldi. Hann er notaður á alþjóðaskrifstofunni, öllum alþjóðastofnunum kvenskáta, ^einnig á alþjóða- mótum. Sveitir og fólög mega nota alþjóðafánann. Alþjóðafáninn var teiknaður af Karin Aas, Noregi og tekinn upp á 6. alþjóðaráðstefnu kvenskáta 1930. Alþjóðamerkið var samþykkt 1948 á 12. alþjóðaráðstefnu kvenskáta. Hinir einstöku hlutar merkisins hafa hver um sig merkingu bvo sem hér segir: Stjörnurnar tvær í hinum gullna smára merkja leiðarstjörnur kvenskáta þ.e. skátaheitið og skátalögin. Pílan er éttavitanálin, sem ætíð mun vísa réttu leiðina í kvenskáta- starfinu. Hin lérétti hluti stilksins er tákn eldsins, sem logar í hjörtum allra sannra kvenskáta - mannkærleikans. Gullni smárinn á bláum fleti táknar sólina og bláminn himininn, sem skín yfir höfðum allra kvenskáta heimsins. /?

x

Skátablaðið Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.