Skátablaðið Faxi - 01.12.1989, Page 6

Skátablaðið Faxi - 01.12.1989, Page 6
Skíðaferðalag ‘89 • Við öll og snjótroðarinn sem kom okkur til byggða. Helgina 7. 8. og 9. apríl var haldið af stað í skíðaferðalag. Fariö var með Herjólfi á föstudagsmorguninn og þar veltust u.þ.b. 30 krakkar sem biðu spennt eftir að komast í Bláfjöll, en þangað varförinni heitið. í Þorlákshöfn beið eftir okkur rúta og auðvitaö var stoppað í sjoppu áður en það var lagt í'ann. Þegar komið var í Bláfjöll fór allur hópurinn með allt sitt hafurtask inn í Bláfjallaskála. Þar var okkur skipt í hópa og fór hver hópurinn á eftir öðrum að fá skíði, og síðan var lagt í brekkurnar. Þar vorum við eins og beljur á svelli, eins og búast mátti við, en auövitað kom þetta allt með tíman- um. Þennan dag voru allir úti að skíöa. Um kvöldið var haldin kvöldvaka undir frábærri stjórn Erlu og Emilíu. Á miðri kvöldvökunni komu til okkar gestir úr Reykjavík og ætluðu að eyða helginni með okkur. Snemma á laugardags- morguninn vöknuðu allir hressir og kátir, en ekki var ánægjan jafnmikil, þegar litið var út um gluggann, því ekkert sást annað en skafrenningur. En við létum það ekkert á okkur fá, því út ætluðum við og fórum öll á skíði. Ekkert annað fólk var en við, því ófært var uppeftir. Ein lyfta var sett í gang fyrir okkur og eyddum við degin- um þar. Þegar inn kom voru allir þreyttir og kaldir, en þrátt fyrir það var haldin kvöldvaka og aftur léku Erla og Emilía á alls oddi. Morguninn eftir hafði veðrið ekkert skánað og við fengum þær • Ei munu bræður berjast, heldur systur. gleðifréttir að við værum veðurteppt í Bláfjöllum. Ekkert var farið á skíði á sunnu deginum en allir skelltu sér út að byggja snjóhús. En svo kom að brottfarartíma, því ákveðið hafði verið að draga okkur á skíðunum af snjó- troðara niður að veg, þar sem rúta beið eftir okkur og flutti okkur til Þorláks- hafnar. Þrátt fyrir frekar slæmt veður skemmtu allir sér þræl vel og bíða spenntir eftir næstu ferð. Eyja og Björg. • Ingemar Stenmark II. 6

x

Skátablaðið Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.