Skátablaðið Faxi - 01.04.1990, Síða 7

Skátablaðið Faxi - 01.04.1990, Síða 7
Viðtöl við leiðbeinendur: Hvernig er að vera leiðbeinandi? Gunnar Kr. Björgvinsson, Ingibjörg Hrönn Jónsdóttir og Hulda Guðmunds- dóttir í viðtali. Hvernig er að verað leiðbeinandi? Það er mjög skemmtilegt, en getur líka verið erfitt og þreytandi. Þetta er mjög mikil vinna, en við fáum tækifæri til að kynnast og starfa með skátum víðs vegar um landið. Ferðalögin eru skemmtileg. Hvað þarf maður að gera til að verða leiðbeinandi? Þið þurfið að fara á öll foringjanám- skeiðin, þ.e. flokksforingja- og sveitarfor- ingjanámskeið. Síðan getið þið sótt leið- beinendamámskeið I og fengið réttindi til þess að leiðbeina. Leiðbeinendanám- skeið II gefur svo réttindi til þess að stjórna námskeiðum. Til þess að komast á leiðbeinendanámskeið II þurfið þiö að vera búin að fara á Gilwellnámskeið. Hvernig fannst ykkur námskeiðin takast? Ágætlega. Þetta eru fínir krakkar og eiga eftir að standa sig vel í skátastarfinu. Skilaðu kveðju til þeirra frá okkur. Hvernig var maturinn? Maturinn var góður. Auðvitað urðu smá mistök við matargerðina, spaghettí- ið límdist allt saman t.d. en það bragðað- ist samt ágætlega. Svona mistök tilheyra námskeiðum af þessu tagi. Hvernig finnst ykkur skátarnir í Vest- mannaeyjum? Þeir eru bestu skinn. Það er ánægju- legt að koma á staði þar sem mikið starf er í gangi. Auðvitað eru skátarnir hér misjafnir, en það er bara eins og gengur og gerist. Þeir sem voru á námskeiðun- um hjá okkur núna um helgina eru mjög efnilegir. Við höfum trú á skátum frá Vestmannaeyjum. Ætlið þið á Landsmót? Já, auðvitað. Er það ekki bara. SKÁTABLAÐIÐ FAXI T

x

Skátablaðið Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.