Skátablaðið Faxi - 01.04.1990, Qupperneq 16
Fyrsta gangan
Ganga var hjá skátaflokknum „Máfar."
25. apríl 1943. var mætt viö Faxafell kl. 9
f.h. og var ákveðið að halda suður á
Heimaey. Var nú lagt af stað og gekk
ferðin mjög vel. Hvílst var þegar komið
var á móts við Lyngfell. Síðan var tekin
stefnan niður að sjó. Þar fundum við
dauða veiðibjöllu og var henni varpað í
vota gröf, á hátíðlegan hátt. Síðan var
tekin stefna norð-vestur með Hamrinum
og gekk það mjög vel. Var rætt um hitt og
þetta. Einnig var ákveðið að safna ýms-
um hlutum er finndust á göngum og var
Gísli Sigurðsson útnefndur safnvörður.
Þegar komið var á móts við háhraunið,
var tekin stefna þangað og var stoppað
þar dálitla stund. Síðan var ákveðið að
skoða skátabústaðinn og var nú tekin
stefna á hann. Þegar við komum í stykkið
sýndi flokksforinginn okkur ýmislegt þar,
svo sem tré og fl. Einnig hvernig hlaðið er
í kringum trén. Síðan var haldið til
skátanna, sem þarna voru. Þegar þang-
að var komið angaði allt af óvenju mikilli
bjúgnalykt. Fyrst í stað urðum við hissa,
en þegar við komum inn í skálann sáum
við hverskyns var, þar voru tveir skáta-
•flokkar í útilegu og var verið að sjóða
matinn. Flokksforinginn sýndi okkurskál-
ann og þegar því var lokið var haldið
heim.
Komum heim kl. 12 á hádegi. Átta voru
mættir.
Sigurður Guðmundsson
ritari
Guðjón Tómasson
flokksforingi
Vetraráætlun Flugleiða
Brottfarartími frá REK. - Mæting á sama tíma í VEY.
Farþega- og pakkaafgreiðsla opin alla daga vikunnar,
líka matartíma, mánudaga til föstudaga
frá kl. 07:00-18:30, laugardaga kl. 08:00-18:30,
sunnudaga kl. 10:30-18:30.
Mánud Þriðjud Miðv.d. Fimmtud. Föstud. Laugard. Sunnud.
Tímabil 2/2-20/5 1990 08:15 08:15 08:15 08:15 08:15 09:15 11:15 13:15
14:15 14:15
17:10 17:10 17:10 17:10 17:10 17:10 17:10
FUJGLEIÐIR
afgreiðsla Vestmannaeyjaflugvelli símar 11520 og 11521
1 6
SKÁTABLAÐIÐ FAXI