Skátablaðið Faxi - 01.04.1992, Síða 6

Skátablaðið Faxi - 01.04.1992, Síða 6
Sameinincj björcfunarsveita • Bjarni Sighvatsson, nýkjörinn formadur Björgunarfélags Vestmannaeyja. Þann 21. mars síðastliðinn voru sam- einaðar í eina björgunarsveit, Hjálpar- sveit skáta í Vestmannaeyjum og Björg- unarfélag Vestmannaeyja. Nafn hinnar sameinuðu sveitar er Björgunarfélag Vestmannaeyja. Merki félagsins er gamla merki Hjálparsveitarinnar, grænn kross á appelsínugulum fleti með nafni Björgunarfélagsins. Aðdragandinn að þessari sameiningu var nokkuð langur því menn vildu hafa allt á hreinu og þar með tryggja að sameiningin heppnaðist sem best. Hjálparsveit skáta var stofnuð árið 1965 og er því á tuttugasta og sjöunda aldursári á þessu ári. Hún var upphaf- lega stofnuð til að sinna sjúkragæslu á Þjóðhátíð og hefur það alla tíð, að tveim- ur árum undanteknum, verið eitt aðal- verkefni sveitarinnar á hverju ári. Fljót- lega jukust þó verkefnin og varð sveitin fljótt alhliða björgunarsveit og hefur gegnum árin verið kölluð út í flest þau verkefni sem ein sveit getur fengið. Björgunarfélag Vestmannaeyja var stofnað árið 1918 og er elsta björgunar- sveit landsins. Björgunarfélagið varupp- haflega stofnað til kaupa og reksturs björgunar og varðskipsins Þórs. Seinna varð sjóbjörgun aðalverkefni félagsins og hefur verið það alla tíð, þar til að síðari árin tók félagið að sér almenn björgunar- störf til sjós og lands. Starfsemi þessara björgunarsveita beggja hefur verið þannig seinustu árin að oft hafa þær starfað saman, hlið við hlið. Því var eðlilegt að þær raddir fóru að heyrast að þær voru betur komnar í eitt félag. Undir niðri voru margir þeirrar skoðun- ar án þess að nokkuð gerðist. Var það í raun ekkert óeðlilegt því auðvitað vita menn hvað þeir hafa en ekki hvað þeir fá. Svo heldur auðvitað í menn tryggð og tilfinningar í garð síns félags, sögu þess, sá tími sem menn hafa fórnað af tíma sínum til þess og sá ímyndaði ótti við það að menn séu að missa eitthvað frá sér sem ekki verður aftur tekið. En undanfarin ár hefur samstarf hinna þriggja landssamtaka björgunarsveita, sem starfað hafa á landinu undanfarna áratugi, stóraukist og þar með umræður um að enn nánara samstarf væri af hinu góða. Leiddu þessar umræður loks til þess að Landssamband hjálparsveita skáta og Landssamband flugbjörgunar- sveita voru sameinuð í eitt landssam- band sem hlaut nafnið Landsbjörg. Því miður tókst ekki í þessari atrennu að sameina öll samtökin en varla er vafi á því að heildarsameining er ekki langt undan. Það má segja að nánara samstarf landssamtakanna og miklar umræður um þessi mál hafi verið hvatning sem þurfti til að hrinda sameiningu sveitanna hérna í framkvæmd. Undanfarin tvö ár hafði samvinna sveitanna hérna aukist verulega. Sam- eiginlegri leitarstjórn var komið á og skipst var á að halda samæfingar. Á aðalfundum beggja fyrir ári síðan var svo formlega samþykkt að vinna markvisst að sameiningu sem svo varð að veruleika svo sem áður er getið. Það má auðvitað velta vöngum yfir kostum og göllum þessarar sameiningar. Gallana höfum við enga fundið, aðeins smá erfiðleika sem auðvelt var að yfir- stíga. Kostirnir eru hinsvegar fjölmargir. Öflugri sveit, samnýting tækja, kostir sem leiða til sparnaðar í framtíðinni, betri nýting húsnæðis, betri nýting fjár og auðveldari fjáröflun. Og kannski núm- er eitt, það sem flestir eru sammála um, nefnilega skynsemin réði. Hvað framtíðin ber í skauti sér er auðvitað erfitt að sjá fyrir. Nú er unnið að endurskipulagningu starfsins og auðvit- að tekur það sinn tíma. En stefnt er að því sem meginmáli skiptir, þ.e. að Björg- unarfélag Vestmannaeyja verði öflugt björgunarfélag með vel þjálfuðum mönn- um og með góðan tækjakost. En ekkert félag verður betra en mennirnir sem í því starfa. Því lít ég björtum augum til Faxa, þvi betri efnivið en vel þjálfaðan ungling sem kemur úr skátastarfinu er erfitt að finna. Því vona ég að starfið innan Faxa megi vera sem öflugast og að samstarfið aukist á kom- andi árum, báðum félögunum til gc ða. Með skátakveðju. Bjarni Sighvatsson 6 SKÁTABLAÐIÐ FAXI

x

Skátablaðið Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.