Skátablaðið Faxi - 01.04.1992, Side 7

Skátablaðið Faxi - 01.04.1992, Side 7
Séra Bjarni Karlsson, sóknarprestur: Fljótráður og Spakráður Smásaga byggð á Matteusi 7:24-27 # Séra Bjarni Karlsson. Einu sinni voru tveir bræður sem ætl- uðu sér að byggja hús, hvor fyrir sig. Fljótráður hét annar en Spakráður hét hinn. Fljótráður rauk af stað til að huga að fýsilegri byggingalóð. Fór hann með ströndum og hugðist finna sem sléttast- an völl og aðgengilegastan, því þar taldi hann að auðvelt yrði að byggja hús. Því var hann fjarska glaður, þegar hann loks kom auga á slétta og grösuga grund, sem lá aflíðandi í slakka, uns við tóku sandar í sjó fram. „Hér skal ég byggja!" sagði Fljótráður. Og hann sat ekki við orðin tóm, heldur hófst þegar handa við að flytja byggingarefnið, timbur, sement, möl og hvað annað sem þarf til húsbygginga. Á meðan þessu fór fram var Spakráður á ferð um tún og engi. Leit hánn ekki til sjávar, heldur upp til hlíða. Hann vildi finna húsi sínu skjólsælan stað með útsýni til hafs og lands. Loks, eftir ýtar- legan samanburð, tók hann einn stað fram yfir hina. Þar var skógi vaxin hlíð og í henni miðri mátti greina klett mikinn. Á þessum kletti ætlaði hann að reisa hús sitt. Að vísu yrði það þrautin þyngri að flytja byggingarefnið í gegnum skóginn og upp á klettinn. En Spakráður taldi erfiðið ekki eftir sér, þvi þetta hús skyldi verða heimili hans um langan aldur. Tók nú við sleitulaust erfiði við flutninga upp bratta hlíðina og í gegnum þykkan skóg. Við hvert fótmál sá Spakráður fyrir sér húsið, sem rísa átti. Og þegar hann var við það að bugast undan þungum byrð- um á leið upp þröngt einstigið í klettin- um, þá lét hann sig dreyma, að hann sæti við hægan eld inni í hlýrri stofunni í húsi sínu og horfði á hvítfyssandi sjóinn bál- ast upp í hávaðaroki úti á flóanum. Um það leiti, er Spakráður hafði komið öllum efnivið sínum upp á klettinn, var Fljótráður var búinn að fullgera hús sitt, utan sem innan. Enda hafði allt hjálpað til að gera honum bygginguna sem auð- veldasta. Ekki var landslagið til trafala og meira að segja hafði hann rekist á töluvert magn af allrahanda nýtilegu timbri og drasli sem lá í óhirðu skammt ofan við byggingarflötina, rétt eins og því hefði verið fleygt þarna einmitt handa honum. Gat Fljótráður vart varist brosi, er hann leit upp í hlíðina þar sem greina mátti óskipulega þúst uppi á kleíti. Þetta átti víst að verða að húsi hjá honum Spakráði blessuðum. „Dæma- laust hvað sumt fólk gerir sér hlutina erfiða, “ sagði hann við sjálfan sig um leið og hann vatt sér inn um dyrnar á glæsOegri nýbyggingunni. Nú var hann orðinn húseigandi. Og það á met-tíma. En tíminn leið, og loks var húsið á klettinum einnig tilbúið. Spakráður sat gjarnan við glugga sinn, þegar bjart var, og naut útsýnis í góðu skjóli fyrir veðrum og vindum. Hann var sannfærður um að erfiðið hafði borgað sig. Fljótráður var einnig hæstánægður með sína húseign og sitt staðarval. Hér var svo gott og auðvelt að ganga út með ströndinni og sjávarloftið var svo frísk- andi. Allt var létt og auðvelt á þessum góða stað við ströndina. Hann var stoltur af eigin útsjónarsemi. Og brimið, það var stórkostlegt! Á kvöldin, er hann lagðist í hvílu, heyrði hann seyðandi brimhljóðið svo nærri sér að honum þótti sjálfum sem hann væri tluti af hinu mikla og sterka iiafi. Já Fljótráður var sáttur við sjálfan sig og sáttur við allt. En þá gerðist. það. í tvo sólarhringa hafði allhvass vindur staðið af hafi og öldurótið við ströndina var magnað. Nú hafði bætt í vind. Fljót- ráður lá i rúmi sínu og hlustaði á beljand- ann á þakinu og ágang sjávarins á ströndinni. Þá heyrði hann skyndilega ógurlegt brothljóð samfara snöggum hnykk og fyrr en varði flæddi ólgandi sjórinn um gættir og ganga. f ofboði hentist Fljótráður frá rimi sínu í átt til dyra. Hafði hann enga viðstöðu, heldur ruddist út í miklu fáti og tók til fótanna ofar og hærra upp á kambinn. Andartaki siðar heyrðmt miklir skruðningar. Hús Fljótráðs var fallið. Daginn eftir gerði logn. Þá bar svo við "að Fljótráður fann timbur ht ss síns og ýmsa muni hggjandi í óhirou einmitt á þeim sama stað ofan við byggingarflöt- ina hvar hann áður hafði fundið og tínt til sitt af hverju í hús sitt. Þarna lá það rétt eins og því hefði verið fleygt þarna einmitt handa honum. SKÁTABLAÐIÐ FAXI 7

x

Skátablaðið Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.