Skátablaðið Faxi - 01.04.1992, Page 11
Skátar á léttu nótunum
Fullt nafn: Halldór Örn Engilbertsson.
(Jóhannes Kjarval).
Hæð: 1,83.
Skemmtir þú þér vel á skíðum: Já,
nema þegar ég datt.
Hvernig líst þér á sameininguna hjá
HSV og BV: Mjög vel.
Hver er staða þín í skátunum: Skála-
vörður, Dróttskáti, (Flokksforingi).
Stundar þú mikil heimilisstörf: Nei,
alltof lítið.
Áttu einhverja uppáhalds blómateg-
und: Já, fífil.
Ætlar þú á Landsmót skáta 1993: Já,
það getur verið.
Fórstu á Landsmót skáta 1990: Bara tvo
fyrstu dagana.
Hvað ertu búinn að vera lengi í skátun-
um: Frá því árið 1987.
Færðu páskaegg - nr. hvað - hvaða
tegund: Já mörg, nr. 4-6, bæði Mónu og
Nóa Síríus.
Getur þú sagt okkur brandara að
lokum: Vitið þið ensku þýðinguna á
Sláturfélagi Suðurlands? Svar: The south
coast killing company.
Halldór Örn Engilbertsson
(Jóhannes Kjarvalj
Hrefna Jónsdóttir
Fullt nafn: Hrefna Jónsdóttir.
Hæð: 1,60 (ha, ha, ha).
Hvernig skemmtir þú þér í skíða-
ferðalaginu: Meiriháttar vel.
Fékkstu einhverja sól á þig í skíða-
ferðalaginu: Já, mjög mikla.
Fékkstu einhverjar freknur: Já, 45
(nei, ekki segja það).
Hver er staða þín í skátunum: Flokks-
foringi í Skuggunum og Dróttskátum.
Eru þetta skemmtilegir krakkar hjá
þér: Alveg æðislegir.
Hvað ertu búinn að vera lengi í
skátunum: 4 ár.
Ætlar þú á Landsmót skáta 1993:
Örugglega, ef ég verð í skátunum.
Fórstu á Landsmót skáta 1990: Nei.
Kanntu ritningarversin þrjú: Eru þau
þrjú? (Hún fermdist í fyrra).
Færðu páskaegg - nr. hvað - hvaða
tegund: Nei og ég er öfga fúl út í
ömmu. (Ekki segja það).
Getur þú sagt okkur hvaða blómateg-
und er í uppáhaldi hjá þér: Kaktus.
Segðu okkur nú einn góðan brandara:
Nei, ég kann engan.
1 1
SKÁTABLAÐIÐ FAXI