Skátablaðið Faxi - 01.04.1992, Side 18

Skátablaðið Faxi - 01.04.1992, Side 18
0 Páll Zóphóníasson, sveitarforingi Faxa, lék á alls oddi í skíðaferðalaginu. Skíðaferðalag 1992 Föstudagurinn 13.03.92. Lagt var af stað í þessa eftirvæntinga- fullu ferð að morgni föstudags. Flutti Herjólfur okkur áleiðis til Þorlákshafnar. Þar beið okkar rútubifreið sem flutti okkur upp í Bláfjöll. Þegar þangað kom var farið að kanna aðstæður í skálanum sem gist var í og komumst við að þeirri niðurstöðu að ekkert rennandi vatn var í skálanum enda mikið frost á svæðinu. Þannig að mannskapurinn þurfti hrein- lega að gera sínar nauðsynlegu og óum- flýjanlegu „þarfir" úti fyrir. Drifið var í því að koma sér þægilega fyrir í skálan- um. Einnig þurftu þessir vösku sveinar og meyjar að ganga iangan veg til þess að sækja sér skiði og auðvitað skíðastafi (fyrir þá sem ekki voru jafn langt komnir). Sól skein í heiði og hiti mikill, enda ríkti mikil gleði yfir mannskapnum á svæðinu. Sumum gekk nú brösuglega að koma sér af stað, en allt er gott sem endar vel. Haldið var síðan aftur í skálann þar sem snæddur var matur, gekk matreiðslan greiðlega fyrir sig, þó sérstaklega hjá sveinum nokkrum sem aðeins elduðu sér eitthvað sem nefnist „flatbaka". Þeir sem nenntu að leggja það fyrir sig að ganga þennan langa gang inn á svæðið aftur eftir kvöldmáltíðina gjörðu svo og var skíðaðí þessa „bröttum" en stórkost- legu brekkum til kl. 10:00. Þá var komið að miðpunkti kvöldsins, kvöldvökunni, sem vakti mikla lukku. Sungið og trallað var til miðnættis en þá var komið að því að reka skarann í rúmið. Tókst það framar öllum vonum enda voru allir sofnaðir upp úr klukkan 4:00. Laugardagurinn 14.03.92. Mannskapurinn var vakinn klukkan 9:00 um morguninn og vöknuðu allir við mikið og fagurt hanagal. Voru alhr reknir í morgunmat og fengu nokkrir vaskir sveinar sér upphitaða flatböku frá föstudagskvöldinu. Haldið var síðan aft- ur á skíðasvæðið um klukkan 10:00 Mikill kuldi var þennan fagra laugardag og komst hann mest upp i — 24°C og þurftu margir á „föðurlandi" að halda. Nokkrir eyddu sínum aurum í kaup á svonefndum „hitapokum á tær" vegna kulda á löppum. Alltaf rakst maður á einn félaga sinn sem þá hafði tekið miklum framförum. En nokkrir héldu sig samt ennþá í „pínulitlusmábarnabrekk- unni". Flestir voru komnir inn þó nokkuð fyrir snæðing og er ekki í frásögur fær- 0 Skíðasvæðið í Bláfjöllum. 1 8 SKÁTABLAÐIÐ FAXI

x

Skátablaðið Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.