Skátablaðið Faxi - 01.04.1994, Qupperneq 2

Skátablaðið Faxi - 01.04.1994, Qupperneq 2
Alheimsskátamótið í Hollandi 1995 Alheimsmót skáta Hápunkturinn á ferli hvers skáta er aö taka þátt í alheimsmóti ( Jamboree). í hreyfingu sem telur ríflega 26.000.000 félaga getur nærri aö þeir eigi ekki gott meö því aö koma allir saman á einum staö. Því hefur veriö gripið til þess ráös aö takmarka fjölda frá hverri þjóð og afmarka aldur þátttakenda. Alheimsmótiö er fyrir skáta á aldrinum 14- til 18 ára og eru haldin á fjögurra ára fresti. Þaö liggur því í augum uppi aö hver skáti hefur aöeins eitt tækifæri til aö taka þátt í mótinu. Flevoland Mótiö veröur aö þessu sinni haldið í Hollandi, nánar tiltekið á svæði sem heitir Flevoland en þaö svæói er unnið land og er rétt undir sjávarmáli, en svæöiö var áöur hafsbotn. 30.000 Þátttakendur Gert er ráö fyrir 30.000 þátttakendum frá meira en 110 löndum á mótiö. Ötullega hefur verið unniö aö kynningu hér á landi og er þaö stefna stjórnar Bandalags íslenskra skáta að sem allra flestir íslenskir skátar taki þátt. Búist er viö aö 200 skátar fari á þetta mót frá íslandi. Tími Mótiö verður haldió dagana l.-ll. ágúst. Gert er ráð fyrir því aó fariö veröi frá íslandi 28.júlí og komiö heim 16. ágúst. Eins og sjá má á þessu er gert ráö fyrir dvöl erlendis bæði fyrir og eftir mótiö. Gert er ráö fyrir aö dvelja í heimagistingu hjá skátafjölskyldu fyrir og eftir mót. Kostnaöur Ferðin kostar 108.000,-kr fyrir almenna þátttakendur. Innifaliö í því veröi eru allar ferðir, mótsgjald, uppihald í Hollandi, kostnaður viö fararstjórn, sameiginlegur kostnaöur og fl.. Undirbúningur Nú i sumar mun undirbúningur þátttakenda hefjast af fúllum krafti. Þátttakendum veróur skipt í flokka og sveitir eftir landshlutum. í hverri sveit munu starfa 36 skátar og verður sveitinni stjórnaö af fjórum sveitarforingjum og sex flokksforingjum þar aö auki verður einn fararstjóri á hverja 15 þátttakendur. Undirbunings starfiö mun í meginatriöum byggja á þrennu : fjáröflunum til aö ná kostnaði sem mest niður, “móralskri " uppbyggingu á meóal þátttakenda ásamt fræöslu um alþjóðastarf og skátastarf í öörum löndum. Þeir sem áhuga h;:fa á því aö taka þátt í Jamboree 1995 er bent á tala viö sveitarforingja eða stjórnamenn í skátafélaginu Faxa Á MÓTI STORMI —FAXI Fermingarblað útgefið í apríl 1994 Útgefendur: K.F.U.M & K Landakirkju og Skátafélagió Faxi. Abyrgdarmenn : Hreiöar Orn Stcfánsson Marinó Sigursteinsson Eftirtaldir aóilar unnu aó geró þessa fermingarblaós: Dróttskátasveitin 100 kall í strætó Daói Þorkellsson Hijrður S Friöriksson Stefán H Fannbergsson Fríöa H Halldórsdóttir Skátaflokkurinn STRUMPAR Magni Freyr Ingason Gunnar Geir Stefánsson Sonja Andrésdóttir Lóa Baldursdóttir Uppsetning / tölvuvinnsla Hreióar Örn Stefánsson æskulvösfulltrúi Landakirkju 369.405 Ská 1994 12(1) Átthagi Skátablaðið Faxi. Átthagadeild 14205121 Bókasafn Vestmannaeyja

x

Skátablaðið Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.