Skátablaðið Faxi - 01.04.1994, Qupperneq 4

Skátablaðið Faxi - 01.04.1994, Qupperneq 4
____________________________________4 Góða játningin Nú er veturinn aö baki. Kanski finnst þér hann hafa verið fjarska langur. Mér finnst hann raunar hafa liöiö sem örskot. T.d. finnst mér ótrúlegt aö heill vetur skuli vera liöinn frá því aö við hjónin fyrst hittum fermingarbörnin í haust. En svona er þaö nú samt, og m.a.s. páskarnir liðnir. Eftir páskahátíöina kemur aö því aö fermingar hefjist í Landakirkju. í allan vetur hefur stór hópur ungmenna undirbúiö sig undir þá stund aó ganga upp aö heilögu altari kirkjunnar, til þess aö játa þar trú sína fyrir Guöi sjálfum og okkur öllum um leiö. “ Viltu hafa Jesú Krist aö leiðtoga lífs þíns ? “ Verður spurt. Engin smá spurning þaö ! Og 80 krakkar í Vestmannaeyjum ætla aö svara svara þessari spurningu játandi eftir fáa daga eöa vikur. Lífs leiðtogi er einhver sem markar fyrir mann stefnuna í öllu lífinu. Leiötoginn gengur á undan og ræöur í raun feröinni. Þess vegna er fermingin merkileg tímamót í lífi hvers fermingarbarns. En hvernig á maöur nú aö standa viö svona yfirlýsingu, eins og fermingin er? Á maður aö fá sér blaö og blýant, og setja niöur á blaöið allar þær reglur um gott og sómasamt líferni sem finna má í Biblíunni, og reyna svo aö brjóta enga þeirra ? Eöa á maður aö gera þetta einfalt og sfyöjast einfaldlega viö boöoröin 10, í þeirri von aó manni takist þó allavega aö halda 10 einfaldar reglur!? Nei, ég skal segja þér aö hvorug leiðin er fær. Hér er lítil skondin saga sem útskýrir af hverju. - Siggi var 6 ára og ný búinn að fá hjól. Hann var farinn aö æfa sig aö hjóla án hjálpardekkja, og þóttist vera oröinn býsna leikinn við hjólreiðarnar. Nú ákvað hann aö hætta aö hjóla bara umhverfis húsið heima, eins og hann haföi gert fram að þessu, en reyna þess í stað fyrir sér á gangstéttinni viö götuna. Hann sveigði út á gangstéttina og hjólaöi í átt frá húsinu heima. Allt gekk vel í fyrstu , enda niður brekku aö fara. og Sigga þótti þetta vera allt hiö besta mál. En skyndilega kom hann auga á stóran stein sem stóö á miöri gangstéttinni marga metra í burtu. " Þennan stein verö ég aó foróast !" hugsaöi Siggi. Hann var staöráöinn í aö forðast aö hjóla á steininn. - Svo staóráöinn var hann aö hann einblíndi á þennan ljóta stein , horföi á hann nálgast og nálgast.. uns hann vitaskuld rann beint á steininn og hentist langar leióir. Þannig er þaö meö syndina. Viö getum ekki forðast hana meö því aö einblína stööugt á hana. Ef viö alltaf hugsum um boö og bönn, þá göngum viö ekki á Guös vegum. Listin aö lifa í trú á Jesú er einfaldlega fólgin í því aö vera meö Jesú, einblína á hann. biöja til hans, lesa í Biblíunni og njóta líka endilega félagsskapar þar sem Jesús er í hávegum hafður. Hefúr þú ekki annars tekið eftir því hve mikil áhrif góöir vinir hafa hver á annan ? Ósjálfrátt fer maður aö draga dám af vinum sínum, líkjast þeim. Þaö er nákvæmleg eins meö samfélagiö vió Guö. Því meiri tíma sem þú verð í félagsskap viö Jesú Krist , Þeim mun meiri áhrif getur hann haft á þig. Og þau áhrif eru meira viröi en nokkuð annað, og fela ekki einungis í sér fyrirheit um bjarta framtíð, heldur lofar hann þér því aó vinskapur ykkar skuli ná út yfir gröf og dauða. Þannig má segja aó sá sem lifir trúarsamfélagi viö Jesú Krist er þegar byrjaóur aö lifa að eilífu, svo undarlegt sem þaö nú er. Svo biö ég Guö aö gefa öllum fermingarbörnum í Vestmannaeyjum góóan og blessunarríkan fermingardag. Og biö þess aó um leið og þiö þroskist og stækkiö, megi trú ykkar einnig vaxa samhliöa, svo að góöa játningin á fermingardaginn fylgi ykkur og veröi aó yfirskrift lifs ykkar: “ Já , ég vil hafa Jesú Krist að leiðtoga lífs míns.” Bjarni Karlsson sóknarprestur SettcUutt öttum {enxuiuyan&ýutum oy {jjötóÁqlctcMt fieéwA o&fóéan, éeátu óe&ái í tileUté {leruHiuCfanúMWi. f VESTMANNAEYJABÆR Sectdum öilutu {fenMtiuqan&ýutum oy {jötduftcUuK þeivua, o/c&Áan, éeáiu óááúi í tite{ut {enuducfaníuua/i. Ueriólfur h$.

x

Skátablaðið Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.