Skátablaðið Faxi - 01.12.2000, Qupperneq 13
Ævintýraferð til Belgíu
Fyrstu dagarnir
Að kvöldi fimmtudagsins 3.ágúst
(HÚKKARABALL) hittist hress hópur
skáta frá Eyjum, Selfossi og Hveragerði
í Leifsstöð. Leiðin lá að sjálfsögðu beint
í fríhöfnina og var mikið verslað. Við
komumst nokkurn vegin slysalaust í
gegnum flugvöllinn (vantaði aðeins eitt
vegabréf og einn týndur ilugmiði). Þá
tók við þriggja tíma flug og fengum við
ógeðslegan mat í vélinni, svona eftir á
var sá matur algjör hátíð miðað við það
sem við áttum eftir að fá úti. Svo lentum
við á flugvellinum í Frankfurt og við tók
langt lestarferðalag sem lauk svo í
Brussel daginn eftir. I Brussel hittum
við svo belgíska skáta og gistum við svo
hjá þeim og fjölskyldum þeirra. Svo
fórum við með fjölskyldunni okkar
heim og gerðum eitthvað sniðugt með
þeim, en öll fengum við að hreinsa á
okkur kroppinn og borða eitthvað
(loksins!). Um kvöldið fórum við eitt-
hvað með fjölskyldunum okkar, skoða
bæinn, í partý eða á bar. Næsta dag
fótum við svo að skoða geðveikan
kastala. Þaðan lá svo leiðin með lest inn
í BRUSSEL-CENTRUM, verslunar-
glöðum eyjapæjum til ómældrar ánægju
og yndisauka. Þar eyddum við svo
restinni af deginum. Tíminn sem við
höfðum þar var þó ansi naumur því að
korteri eftir að lestin okkar var farin
mættu aðlalgellurnar í hópnum móðar
og másandi með troðfulla HM-poka og
gáfu þá trúverðugu útskýringu að þær
hefðu villst!
Meðal þeirra ríkti þó djúp sorg yfir að
hafa misst af fjórðu hæðinni í HM.
Um kvöldið fórum við svo aftur til
fjölskyldunnar okkar.
Tjaldbúðirnar
Daginn eftir var svo haldið niður á
lestarstöð. Þaðan tókum við svo lest í
einhvern bæ. Þaðan áttum við svo að
rölta í búðirnar. Þangað voru aðeins 20
km. Til að vita hvert við ættum að fara
áttum við að fara í einhvern
tungumálapóstaleik með Belgunum, við
byrjuðum á því að villast á fyrsta
póstinum og urðum að kalla í foringjana
til að fá hjálp. Okkur tókst þó að komast
stórslysalaust í gegnum leikinn. Svo
mættu dauðþreyttir og svangir Islend-
ingar í búðirnar, enda ekki vanir svona
þrældómi! Þá byrjuðu Belgarnir að elda
handa okkur. Þakklátir Islendingar litu
ekki við matnum sem var óætur og tók
Belgana ekki nema tvo tíma að elda
handa okkur. Eftir mat lá leiðin beint í
lækinn sem átti svo eftir að vera hreins-
unaraðstaða okkar næstu tvær vikurnar.
Um kvöldið enduðum við svo í svefn-
pokunum okkar. Morguninn eftir vorum
við svo vakin klukkan 8:20. Tíu mínút-
um síðar áttum við svo að vera klædd og
mætt að fánastönginni. Þar fengum við
þær fréttir að klukkutíma síðar ættum
við að vera búin að borða, bursta tenn-
urnar, taka til og ganga frá matnum.
Svona fyrsta daginn tókum við þessu
frekar rólega enda vön íslenskri tjald-
búðaskoðun þar sem notað er punktak-
erfi. Svo mættum við í tjaldbúðaskoðun
og áttum að gjöra svo vel að gera tíu
armbeygjur fyrir hvert pappírssnitti sem
fannst. Vorum við með afbrigðum
hneyksluð og fórum að pæla hvað við
værum að gera í svona þrælabúðum.
Strax eftir tjaldbúða-skoðun var hafist
handa við að elda hádegismat. Við byrj-
uðum á því að reyna að bjóða fram hjálp
okkar. Það gekk ekkert allt of vel að
gera eitthvað því að vitlausir íslendingar
komu að fjöllum þegar þeir áttu að
kveikja elda og að sjálfsögðu byrjuðum
við á að gera allt vitlaust og flest okkar
enduðum inni í tjaldi þar sem við gátum
ekkert aðstoðað. Eftir mat var svo hafið
við tjaldbúðastörf og reyndum við eftir
bestu getu að sýna getu okkar í súrr-
ingum en sáum fljótlega að Belgunum
gekk miklu betur að gera þetta sjálfir því
að þeirra mati gerðum við allt vitlaust.
Við gáfumst upp á að reyna að hjálpa og
einu sinni sem áður enduðum við inni í
tjaldi eða úti í sólbaði.
Svangir íslendingar biðu svo spenntir
eftir kvöldmatnum því eins og áður kom
fram fengum við engan hádegismat. í
kvöldmat gátum við svo valið um að fá
okkur: brauð með súkkulaðismjöri,
brauð með skinku, brauð með osti,
brauð með marmelaði eða brauð með
sultu. Svona fyrsta daginn þótti okkur
þetta ágætt en þó frekar matarlítill
kvöldmatur. Svo byrjuðum við á að fara
að spila á gítar og syngja íslenska tónlist
og hópuðust Belgarnir í kringum okkur
og enduðum við með að sitjast í
kringum lítinn varðeld og enduðum
þannig daginn. Næsti dagur var mjög
svipaður og sá fyrri, tjaldbúðaskoðun,
armbeygjur, ógeðslegur hádegismatur,
Belgar að þræla fyrir okkur, íslendingar
inni í tjaldi eða í sólbaði, brauð í kvöld-
mat. Um kvöldið fengum við reyndar að
samkka sér belgískar vöfflur í tilefni
þess að það væri belgískur dagur. Þær
voru algert æði.
Aðalgellurnar á fyrsta farrými.
SKÁTABLAÐIÐ FAXI