Skátablaðið Faxi - 01.12.2000, Page 15
íslensku strákarnir tóku auðvitað ekki
þátt til þess að Belgarnir ættu einhverja
möguleika. Svo kenndum við Belgunum
líka íslenska söngva og leyfðum þeim
að smakka íslenskan mat, s.s. harðfisk,
slátur og lýsi. Voru Belgarnir misjafn-
lega hrifnir af íslenska matnum. Við
Islendingarnir réðumst hins vegar á
Ármann þegar hann birtist með harð-
fiskinn því að við vorum ekkert búin að
borða nema brauð alla ferðina. Eftir að
búið var að klára íslenska matinn héld-
um við svo kraftakeppni sem gaman var
að fylgjast með, þó að að mati okkar
stelpnanna hafi íslensku karlmennirnir
okkar ekki verið nógu duglegir að taka
þátt. Þó héldu þeir Ármann og Mummi
uppi heiðri okkar íslenginganna og
stóðu sig ágætlega. Það var þó hraustur
Belgi sem vann keppnina. Svo topp-
uðum við daginn með íslenskri kvöld-
vöku sem heppnaðist með afbrigðum
vel. Svo liðu nokkrir dagar þar sem
frekar lítið var gert. Á Sunnudeginum
fengum við að prófa að fara í kaþólska
messu þar sem presturinn talaði frönsku.
Þegar þarna var komið vorum við
Islendingarnir farnir að sakna fóstur-
jarðarinnar og söknuðurinn jókst með
hverjum deginum. Loks rann upp síðasti
dagurinn í búðunum. Hlutverk stelpn-
anna var að taka niður tjaldbúðimar á
meðan strákarnir áttu að safna eldiviði í
stóran varðeld sem átti að vera um
kvöldið. En eins og áður gátum við
ekkert hjálpað til því að við gerðum allt
vitlaust svo að við gáfumst fljótlega
upp. Þá ákváðum við að fara út í skóg og
„safna eldiviði” Það tók rúmlega tvo
tíma að fylla eina litla kerru því að
auðvitað notuðum við tækifærið og
skmppum aðeins í bæinn til að pissa og
svoleiðis. Svo sáum við að einhver fjöl-
skylda hafði tæmt úr innbúinu sínu inni
í skógi. Töldum við það ágætis efni í
eldivið og fundum meðal annars: grind
úr barnakerru, gluggakarm og ónýtan
stól með gormana út í loftið. Svo birt-
umst við þama mjög ánægð með góssið,
en húmorslausir Belgar hristu bara
hausinn yfir vitlausum íslendingum.
Nú var kominn matur og fengum við
kalt hlaðborð með einhverju gumsi.
Stuttu eftir mat hófst svo stóri varðeld-
urinn og voru fyrst einhverjar viðurken-
ningar veittar og gjafir gefnar og
svoleiðis. Svo var sungið af hjartans list.
Það er hefð hjá Belgunum að halda
svona varðeld síðasta kvöldið og þá eru
þeir vanir að fá sér aðeins í glas, en
okkur að þakka var þeim bannað það
þetta árið. Svo urðum við að gjöra svo
vel að halda okkur vakandi því að þeir
sem sofnuðu vöknuðu svo aftur með
raksápu eða eitthvað álíka girnilegt í
hárinu eða andlitinu. Eftir skemmtilega
en erfiða nótt héldum við svo af stað til
Brussel. í þetta skiptið fengum við bílfar
að lestarstöðinni.
Brussel og heimferðin
Þegar við svo komum til Brussel
fórum við aftur í heimagistingu. Við
fengum að fara í bað og svoleiðis og svo
gerðum við eitthvað sniðugt með fjöl-
skyldunum, t.d. versla. Daginn eftir hitt-
ist svo hópurinn í Brussel og fengum við
frjálsan tíma þar. Þessir þrír tímar sem
við fengum dugðu sko alveg til að tæma
budduna og rúmlega það svo að ekki
komum við tómhent heim á frónið. Eftir
verslunarleiðangurinn var svo haldið af
stað með lestum til Frankfurt og þaðan
svo flogið heim. I háloftunum var svo
stofnuð ný dróttskátasveit, Ds. Suður-
land. Svo tvístraðist hópurinn á
Keflavíkurflugvelli og allir héldu til síns
heima. Ákveðið var þó að hittast helg-
ina eftir í Gilitruttsskálanum til að rifja
upp yndislegar stundir.
Fyrir hönd Belgíufaranna:
Anna Jóna Kristjánsdóttir
Óskum öllum bæjarbúum Óskum öilum bæjarbúum
gleðilep jóla gleðilejjra jóla
með þökk fyrir með þökk fyrir
viðskiptin á árinu samskiptin á árinu
Starfsfóíb ojj eijjendur ^tjó&
jgæjífjíjWW
rllj il rl y 1 ' f il [_ r ~. 481 3338 <fn,854 5510,A %A
SKÁTABLAÐIÐ FAXI 0