Skátablaðið Faxi - 01.12.2000, Side 17
Akureyrarferðin mikla!
Um daginn fórum við 3 Vestmanna-
eyjasnótir: Sigga, Steinunn og Herdís
alla leið til Akureyrar á námskeið. Það
ríkti mikil spenna meðal okkar því þetta
var í fyrsta skiptið sem við fórum á
námskeið fyrir utan Suðurlandið og í
annað umhverfi.
Það var tekið mjög vel á móti okkur en
við komum aðeins fyrr heldur en hinir.
Þegar allir voru mættir var skipt niður í
hópa og herbergi. Hvert herbergi bjó til
lag sem átti að flytja við herbergis-
skoðun.
Við gistum í skóla rétt fyrir utan
Akureyri og var mjög fjölmennt því 3
námskeið voru í gangi og svo vorum við
eginlega svona sér á dróttskátaforing-
janámskeiði. Af því að við vorum svo
fáar hélt hann Helgi Gríms góðan fyrir-
lestur fyrir okkur og gaf okkur mikil-
væga leiðsögn á laugardeginum. En að
mestu leiti vorum við á sveitarforing-
janámskeiði sem var reyndar bara
nokkuð gott því ágætt var að rifja upp
punkta sem sveitaforingjar eiga að hafa
í huga. Svo héldum við líka fyrirlestur
yfir dróttskátunum og leibeindum þeim
með dróttskátabókina sína.
Svo heppilega henti til að það var
sundlaug fyrir utan skólann svo hægt
Gellurnar sem fóru til Akureyrar
var að skemmta sér í sundi eða leika sér
í íþróttasalnum í frítímum. Föstudegin-
um lauk með kakói og kexi líkt og laug-
ardeginum.
Báða dagana var ræs, morgunmatur,
fáni og morgunleikfimi. Einnig var her-
bergisskoðun sem við unnum, að sjálf-
sögðu, báða daganna. Maturinn á
námskeiðinu var mjög góður og eiga
þau hrós fyrir það.
Fyrirlestrar voru rnjög áberandi á laug-
ardeginum og svo var líka einhver
markferð (hike) sem foringjarnir fóru
með flokkana sína í, úr flokksforingja-
námskeiðinu. Á meðan því stóð
leiðbeindum við dróttskátunum og
hjálpuðum þeim við grunnsmíðar að
góðum næturleik.
Eftir ljúffengan kvöldmat var haldin
stór stór kvöldvaka í íþróttasalnum og
veittar voru orður til eldri skáta. Einnig
var aðstoðarskátahöfðingi íslands á
henni. Eftir kvöldvökuna hófst svo
næturleikur sem dróttskátarnir höfðu
búið til og var hann vel heppnaður og
skemmtilegur næturleikur. Þegar það
var búið að koma yngri krökkunum í
kyrrð sem var á ábyrgð okkar eldri,
glömruðum við og spjölluðum saman
einhvað fram eftir kveldi. Svo vöknuðu
allir súrir morguninn eftir fyrir seinasta
fyrirlesturinn og grillaðar voru pulsur.
Við tókum svo okkar dót saman og
tókum svo ærlega til en við misstum að
slitunum því annars hefðum við misst af
flugvélinni.
Gaman var að fara norður og kynnast
nýju fólki og hugmyndum. Siðir og
hefðir eru allt öðruvísi þar heldur en við
erum vanar. Gott var að deila hugmynd-
um með öðru fólki og komast nær lykl-
inum að góðu skátastarfi.
Við viljum þakka skátafélaginu fyrir að
hafa sent okkur norður því þetta
námskeið mun seint gleymast.
Sigga og Steinunn
Óskum 6æjarBúum gCeðíCegrajóCa
og farsæCs nýs árs
Brímnes Fiamíngó
Bókabúðín Eyjablíkk
Eyjablóm Veísluþjónusta Gríms
FOTO Skýlíð
Gullsmíðurínn Magnúsarbakarí
Bæjarveítur Vm. Lundínn/Prófasturínn
ísfélag Vm. Metró
Verkalýðsfélagíð/Snót Náttúrustofa Suðurlands
TM tryggíngar Húsey, byggíngavöruversl.
Eyjaradíó Bergur-Hugínn
Apótek Vestmannaeyja OIís - Olíuversl. íslands
Café María Klettur
Do Re Mi Esso
Lanterna Haukur Guðjónsson
SKÁTABLADIÐ FAXI ®