Skátablaðið Faxi - 01.12.2000, Blaðsíða 18

Skátablaðið Faxi - 01.12.2000, Blaðsíða 18
Soffía á spariskónum Þegar við vorum útí í stóru útlöndum um daginn, ákváðum við að stofna D.S Suðurlandssveit, þetta vorum við útlendindingarnir að sameinast 2 skáta- félögunum á fastalandinu, Fossbúum og Stróki en þau eru einmitt á Suðurlandinu og voru með okkur í þessar tvær „erfiðu” en skemmtilegu vikur. En nóg um það, það var kominn tími til að við hittumst öll aftur og skoðuðum myndir af ferðinni og monta sig fyrir hinum sem komu með í þessa útilegu. Þetta átti að vera vinnuútilega en endaði svo í soffíu eða sofét(a) útilegu. Það var nú bara ósköp þægilegt og notalegt. Þeir sem gistu þarna voru Faxar, Selfyssingar, Hvergerðingar svo komu nokkrir Kópar, frá Kópavogi, á laugardagskvöldinu. Við gistum í skála sem heitir Gilitrutt, hann er í eigu skátafélagsins og er í Bláfjöllum. Þetta var sú allra tækni- væddasta útilega sem ég hef nokkru sinni farið í, við vorum með tölfu, til að skoða allar myndirnar sem Armann tók af okkur útí Belgíu, en þær eru svo margar að ef maður skoðar hverja mynd Skátamót í Viðey sem Landnemar (skátafélag í Reykjavík) halda árlega var töluvert lengra en venjulega vegna þess að Landnemar eiga 50 ára afmæli í ár. Mótið var haldið um Jónsmessu en við komum þó aðeins seinna en sumir. Fyrsta deginum var eytt í Kringlunni og farið í bíó. Eftir bíó drifum við okkur niður að höfn og okkur ferjað yfir í eyna. Við reistum tjaldið okkar, við vorum öll saman í einu stóru tjaldi, og fórum að vinna í trönubyggingum og þá aðalega flaggstöng. Eftir vinnuna gril- luðum við humar og pulsur. Um kvöldið var haldin ágætis kvöldvaka og næturkeppni. Það sem einkennir Viðeyjarferðir er bryggjuballið sem er stórskemmtilegt, það var spilað eitthvað á harmonikku og dansaðir gömlu dansamir, og haldið var diskó í lokinn. Við vorum öll svo þreytt eftir fyrsta daginn og lágum inní tjaldi fram að hádegi, en þá var komið og skorað á okkur í flokkakeppni. ( sem var reyndar eini dagskráliðurinn sem við tókum þátt í) Íí henni áttum við til dæmis að fara í limbó, kasta tusku framan í einhvern, hlaupa með vatn í götóttu glasi án þess Q í 2 sek þá er maður í 2 tíma að flétta í að það kláraðist og fleira. Komumst við í undanúrslit og þau voru haldin við slitin daginn eftir. Eftir erfiða keppni vorum við orðin svo svöng að við fórum með fyrstu ferju í bæinn og fórum út að borða á æðislegu veitingarhúsi. Löbbuðum við svo niður á bryggju en þá var okkur tilkynnt að ferjan væri hætt að ganga. Okkur til mikillar lukku vorum við sótt á báti og siglt með okkur yfir. Þetta kvöld var vakað fram eftir nóttu, sungið og trallað. Runnin var upp síðasti dagurinn og loka slagnum í flokkakeppninni sem var n.k boðhlaup, þar áttum við að snúa okkur í marga hringi í kringum spýtu og hlaupa fram og til baka svo var komið að næsta manni og átti hann að gera tvö- falt meira þannig að maður var orðin töluvert ringlaður. En við Eyjamennirnir unnum þetta með glæsibrag. Komið var að slitum og heimleið. Þetta var mjög skemmtilegt mót og Við fengum frábært veður og verður án efa farið aftur á mót í Viðey. Sigga og Steinunn gegnum þetta í tölvunni! Svo vorum við með þessar líka svaka hljómfluttnings- græjur til að geta heyrt einhvað í dvd skjávarpanum sem við komum með, svo komum við einnig með stóran hvítan vegg til að geta horft á allar myndirnar. En einhvemvegin gat þetta allt klikkað. Eftir rúma tveggja og hálfstíma leiðang- ur í Reykjavík (það er alveg rosalega erfitt að finna videóleigu með góðu úrvali af dvd myndum) og dágóða stund í eldgömlu „trivial pershut“ ættluðum við að fara horfa á allar myndirnar sem við tókum, settum fyrstu myndina í og eftir rúrnan hálftíma sprakk peran í skjá- varpanum og er hann núna í viðgerð í útlöndum. En þetta gerðist á laugar- dagskvöldinu sem betur fer. Við höfðum torgað 3 myndir á föstudaginn og það finnst mér alveg nógustór skammtur af veggjarglápi. En það versta var að þá gátum við ekki skoðað tölvumyndirnar hans Armanns nema kannski 2 eða 3 í einu þannig að við ákváðum að halda myndakvöld í september hérna í Eyjum en svo var það haldið og eitthvað klikkaði með að horfa á þetta, kannski af því að myndirnar voru á Selfoss. En eftir öll þessu ósköp þá stóðum við á lappir og reyndum að byrja á því sem við komum til að gera, taka til í kringum skálan og reyna lagfæra hann eitthvað. Eftir það fórum við í hellaferð og stutta göngu. Sigga Viðeyjarferð 2000 SKÁTABLAÐIÐ FAXI

x

Skátablaðið Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.