Fréttablaðið - 29.12.2017, Page 4
SlyS Að minnsta kosti tvö banaslys
hafa orðið síðustu fimm árin í Eld-
hrauni, nærri Kirkjubæjarklaustri,
þar sem rútuslysið varð í fyrradag.
Í báðum tilfellum létust ferðamenn.
Hinn 23. apríl 2012 missti öku-
maður bílaleigubíls bifreiðina út
á vegöxlina þegar hann teygði sig
eftir snakki frá farþega í framsæti.
Við það missti hann stjórn á bif-
reiðinni sem fór út af veginum og
valt. Farþegi í aftursæti bifreiðar-
innar, 25 ára gamall karlmaður, var
ekki spenntur í öryggisbelti. Hann
kastaðist út úr bílnum og lést.
Að morgni 27. mars 2015 missti
ökumaður stjórn á bílaleigubíl í
krapa skammt vestan við Kirkju-
bæjarklaustur og fór út af vinstra
megin. Í slysinu lést tvítug kona,
sem var farþegi í framsæti. Í skýrslu
rannsóknarnefndar samgöngu-
slysa vegna slyssins kemur fram að
vegna aukins fjölda ferðamanna
megi vegakerfið þola aukið álag
allt árið um kring. Fjárveitingar til
vegagerðar, vetrarþjónustu og við-
halds vegakerfisins almennt hafi
ekki aukist samhliða fjölgun ferða-
manna. Stjórnvöld þurfi að bæta
úr í þessum efnum og veita meira
fé til viðhalds vegakerfisins, bættra
merkinga og nýframkvæmda.
Það er kannski til marks um
aukið álag á vegakerfið að útgáfa
hópferðaleyfa hefur næstum tvö-
faldast frá árinu 2013. Það ár voru
348 leyfi gefin út, en í ár eru þau
orðin 634. Nýskráningum hópbíla
hefur líka fjölgað.
Ágúst Mogensen, sérfræðingur í
forvörnum hjá VÍS og fyrrverandi
rannsóknarstjóri rannsóknar-
nefndar samgönguslysa, segir að
það verði að bæta veginn um Eld-
hraun og auka þjónustu. Þá verði
líka að skýra betur reglur um bíl-
beltanotkun í hópbifreiðum og
strætisvögnum.
„Við erum ekki að sjá neitt nýtt
þarna. Það hafa því miður orðið
mörg slys þar sem sömu þættir eru
líklegast að koma fyrir og í þessu
slysi,“ segir Ágúst. Það sé krafa fólks
að reglur um bílbeltanotkun verði
skýrari. „Við fáum mörg símtöl um
þetta frá foreldrum,“ segir Ágúst,
sem tekur þó fram að hann byggi
Þriðja banaslysið á sex árum í Eldhrauni
Rútan ók út af og valt eftir að hafa lent á fólksbíl. Þrír þeirra sem fluttir voru á Landspítalann eru enn á gjörgæsludeild, minnst einn þeirra í lífshættu. Sjö eru á
bráðalegudeild og tveir hafa verið útskrifaðir af spítalanum. Lögð er áhersla á að reglur um notkun bílbelta verði gerðar skýrari. FRéttabLaðið/ViLheLm
is- og verndarbúnað í ökutækjum er
undanþáguákvæði þar sem segir að
ekki sé skylt að nota öryggisbelti í
strætó. Í drögum að breytingum á
reglugerðinni, sem enn hafa ekki
verið samþykkt, er hnykkt á því að
akstur í dreifbýli, þar sem margir
kílómetrar eru á milli stoppistöðva
og hámarkshraði sá hæsti sem
leyfður er á Íslandi, geti ekki fallið
undir undanþáguákvæði reglu-
gerðarinnar. jonhakon@frettabladid.is
Vinnan gekk samkvæmt björtustu vonum
„Þetta var auðvitað kaótískt
til að byrja með eins og
eðlilegt er. En stjórnin
gekk vel og ég myndi
segja að vinnan á vett-
vangi hafi gengið sam-
kvæmt björtustu vonum
eftir að viðbragðsaðilar voru
komnir,“ segir Auðbjörg B.
Bjarnadóttir, hjúkrunarstjóri
hjá Heilsugæslunni á Kirkju-
bæjarklaustri. Hún var fyrst
á vettvang slyssins eftir að
kallað var á aðstoð.
Auðbjörg segir að fyrsta verkefni
hennar hafi verið að draga upp
mynd af vettvangi og bráðaflokka
hina slösuðu til að tryggja að allar
bjargir væru til staðar sem fyrst.
Þegar búið var að bráðaflokka var
sent allsherjarútkall.
„Fæst orð hafa nú
minnsta ábyrgð,“ segir Auð-
björg spurð um það hvernig
við séum búin undir slys af
þessu tagi. „En ég held að
alls staðar á litlum stöðum
á landinu sé viðbragð tak-
markað. Þó að við hefðum
verið einn eða tveir til
viðbótar þá er svona slys af
þessari stærðargráðu alltaf
katastrófa.“
Við svona slys séu allar
bjargir komnar að þolmörkum og
ekkert annað hefði mátt út af bera
á Suðurlandi.
Auðbjörg segir að líðan hennar
sjálfrar eftir atburðina sé eins og við
megi búast. „Hópurinn vann sem
einn og það var ómetanleg aðstoð
frá vegfarendum til að byrja með.“
auðbjörg b.
bjarnadóttir,
hjúkrunarstjóri
hjá heilsugæsl-
unni á Kirkju-
bæjarklaustri.
300
250
200
150
100
50
0
*Fyrir bifreiðar sem eru meira en 5 tonn
Nýskráningum hópbifreiða hefur fjölgað verulega
n hópbifreið l
n hópbifreið ll*
2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017
Slysið í fyrradag var
þriðja banaslysið á ör-
fáum árum í Eldhrauni.
Álag á vegakerfið hefur
stóraukist. Sérfræðingur
í forvörnum segir mikil-
vægt að bæta veginn
þar. Einnig þurfi að
skýra betur reglur um
bílbeltanotkun.
þessar fullyrðingar á upplýsingum
úr fjölmiðlum, en sé ekki að orsaka-
greina umrætt slys.
Viðbragðsaðilar sem komu á vett-
vang rútuslyssins í fyrradag hafa
sagt að það hefði breytt miklu ef
allir farþegar hefðu notað bílbelti.
Í núgildandi reglugerð um örygg-
Það hafa því miður
orðið mörg slys þar
sem sömu þættir eru lík-
legast að koma
fyrir og í þessu
slysi.
Ágúst Mogensen,
fyrrverandi rann-
sóknarstjóri
13
45
72
47
62
95
141
120
54
36
69 76
87 90
282
155
Kjaramál Leigan sem Agnesi M. Sig-
urðardóttur, biskupi Íslands, er gert
að greiða fyrir að búa í embættis-
bústað biskups í Bergstaðastræti 75
er lægri en háskólanemendur þurfa
að greiða fyrir 44 fermetra, tveggja
herbergja fjölskylduíbúð á Hjóna-
görðunum.
Agnes sagði í Fréttablaðinu í gær
að leigan væri tæpar 90 þúsund
krónur en nákvæm upphæð er sam-
kvæmt framkvæmdastjóra kirkju-
ráðs 86.270 krónur á mánuði með
hita og rafmagni.
Heildarstærð biskupsbústaðarins
er 487 fermetrar og því ljóst að leigan
er umtalsvert lægri en gengur og ger-
ist á leigumarkaðinum í Reykjavík.
Fyrir sömu upphæð, 86 þúsund
krónur, fá háskólanemar 29 fermetra
stúdíóíbúð á Stúdentagörðunum,
nánar tiltekið í Skerjagarði, með hita
og rafmagni.
44 fermetra, tveggja herbergja
fjölskylduíbúð á Hjónagörðunum
leigist hins vegar á alls rúmlega 97
þúsund krónur. Ríflega tíu þúsund
krónum meira en biskup greiðir fyrir
bústaðinn.
Þessu til viðbótar má sjá á
tölfræði frá Þjóðskrá Íslands að
meðalleiga á mánuði fyrir eign-
ir 160 fermetrar eða stærri, í
miðbæ Reykjavíkur, var
um 290 þúsund krónur
árið 2017.
Líkt og fram kom í
Fréttablaðinu í gær
var þessi tæplega 90
þúsund króna leigugreiðsla einn
þeirra þátta sem biskup tilgreindi
sérstaklega í bréfi sínu til kjararáðs
í aðdraganda 18 prósenta aftur-
virkrar launahækkunar á dögunum.
Hún þyrfti nú að greiða húsaleigu af
embættisbústaðnum, nokkuð sem
forverar hennar hafi ekki þurft að
gera. Hafið var að rukka biskup og
vígslubiskupa um leigugreiðslu árið
2012.
Spurningar hafa vaknað um hvort
lágt leiguverð biskups kunni að vera
skilgreint sem skattskyld hús-
næðishlunnindi. Oddur Einars-
son, framkvæmdastjóri kirkju-
ráðs, segir í svari við fyrirspurn
Fréttablaðsins að ekki sé litið
á búsetufyrirkomulag bisk-
ups sem hlunnindi.
„Almennt er það álit
presta og biskups að slík
kvöð sé frekar íþyngj-
andi.“ – smj
Biskup greiðir lægri leigu en stúdentar
97
þúsund krónur greiða stúd-
entar fyrir leigu á hjónaíbúð.
GRAN CANARIA
2. janúar í 14 nætur
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r. H
eim
sfe
rð
ir á
ski
lja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra.
2FYRIR1
Flugsæti til
2. janúar
í 14 nætur
ÁÐUR KR.
79.900
NÚ KR.
39.950FL
UG
SÆ
TI
2 9 . d e S e m b e r 2 0 1 7 F Ö S T U d a G U r4 F r é T T i r ∙ F r é T T a b l a ð i ð
2
9
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
9
D
-B
2
A
4
1
E
9
D
-B
1
6
8
1
E
9
D
-B
0
2
C
1
E
9
D
-A
E
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
2
8
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K