Fréttablaðið - 29.12.2017, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 29.12.2017, Blaðsíða 44
Dökkt gallaefni Gallaefni var mjög áberandi á árinu og snið á gallabuxunum breyttist úr því að vera þröngt og teygjanlegt, yfir í að vera beint, upphátt og efnið frekar stíft. Nú er hins vegar tíminn fyrir dökkt gallaefni eins og við sáum mikið af á tískuvikunum. Þetta verður enn vinsælla á næsta ári. Lakk Svart lakk, vínyl og leður er komið til að vera, og ef þú átt ekki þannig flík í fataskápnum þá er ráðlegt að tryggja sér hana sem fyrst. Lakkbuxur, kápur og jakkar var mjög vinsælt á árinu sem er að líða og mun halda áfram á næsta ári. Gucci Það er auðvelt að segja að Gucci hafi stolið senunni hvað eftir annað á árinu. Strigaskórnir, mokkasíurnar, töskurnar og stuttermabolir frá Gucci voru hvað mest áberandi frá merkinu og það verður forvitnilegt að sjá hvort æðið haldi áfram eða hvort eitthvað annað merki taki við. Köflóttur jakki Köflóttur jakki er klassísk flík, og þetta árið átti hann heima í ansi mörgum fataskápum. Hvort sem það var við köflóttar buxur eða pils í stíl, eða bara stuttermabol og gallabuxur, þá er víst að köflótti jakkinn var ein af vinsælustu flíkum ársins. Götustíllinn á árinu 2017 Að fylgjast með götustílnum gefur góða mynd af hvað er vinsælt í heimi tísk- unnar, sérstaklega hjá fólkinu sem sækir tískuvikurnar. Hér tökum við á Glamour saman götustílinn og trendin sem voru hvað mest áberandi á árinu sem er að líða. Sokkastígvél Þetta trend var meðal þess sem kom á óvart, einhvers konar sokkar með hæl. Demna Gvas­ alia, hönnuður Vetements og Balenciaga, var með þeim fyrstu að kynna þetta skótau til leiks, og varð það strax gríðarlega vinsælt, sérstaklega það blómamunstr­ aða. Önnur tískuhús og ódýrari fatamerki voru fljót að koma með sínar eigin útgáfur, sem gerði mörgum tískuunnendum kleift að eignast svona skó. Farðu inn á Glamour.is og fáðu daglegar fréttir úr heimi hönnunar, lífsstíls og tísku. l Facebook l Instagram l Twitter VERÐ FRÁ Whilst every effort is made to avoid mistakes errors can occur. Please check these carefully. Proofs that are sent back without signature is considered approved and ok. Approved and OK New proof please DATE: SIGNATURE: /Ingenjörsgatan 7-9 Box 814, 251 08 Helsingborg Tel. vx. 042-24 73 00 info@lindsflexo.se, www.lindsflexo.se 14 0 280 Linds Flexo, 1310144 Fiskikongurinn_KORR , 17-JAN-13 YTTER catarina Sogavegi 3 Höfðabakka 13.600 kr.kg SÚPUHUM A R STÓR HUM A R & 2 9 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F Ö s T U d A G U r36 l í F i ð ∙ F r É T T A b l A ð i ð Lífið 2 9 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :2 9 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 9 D -C 1 7 4 1 E 9 D -C 0 3 8 1 E 9 D -B E F C 1 E 9 D -B D C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 2 8 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.