Fréttablaðið - 29.12.2017, Blaðsíða 18
Þú færð Gunnar á næsta
flugeldamarkaði björgunarsveitanna
Gunnar á Hlíðarenda er einn af
mestu hetjum Íslandssögunnar.
Bláar kúlur skjótast upp og
springa með braki og brestum
í silfraða pálma og rauðar
stjörnur sem dreifast um
himininn. Sannkallaður kappi.
skot
24
SEK
2
4
6
36
kg
Hin 25 ára Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, er íþróttamaður ársins 2017 á stórbrotnu ári í sögu íslenskra íþrótta. FRéttablaðið/eRniR
Fannst ég vera fyrir þeim stóru
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir var í gær kjörin íþróttamaður ársins af Samtökum íþróttafréttamanna. Hún er
fyrsti kylfingurinn sem verður fyrir valinu í 62 ára sögu kjörsins og sjötta konan sem hampar titlinum.
Íþróttamaður ársins Blað var
brotið í 62 ára sögu Íþróttamanns
ársins þegar kylfingur varð í fyrsta
sinn fyrir valinu í kjörinu, sem Sam-
tök íþróttafréttamanna standa að.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir fékk
flest atkvæði í kjörinu, 422 stig af
540 mögulegum. Knattspyrnu-
mennirnir Aron Einar Gunnars-
son og Gylfi Þór Sigurðsson voru
skammt undan en þessi þrjú voru
í nokkrum sérflokki.
„Þetta er búið að vera stórkostlegt
ár, eins og allir eru búnir að segja,
hjá öllu íþróttarfólkinu okkar og
það er mikill heiður að vera valin úr
þessum hópi,“ sagði Ólafía Þórunn
þegar valið var kunngjört.
Ólafía var sannkallaður braut-
ryðjandi fyrir íslenska kylfinga á
árinu sem er að líða. Hún varð fyrsti
Íslendingurinn sem keppir á banda-
rísku atvinnumótaröðinni í golfi og
varð einnig fyrsti Íslendingurinn til
að keppa á risamóti í íþróttinni en
alls keppti hún á þremur slíkum
mótum á árinu.
Stærsta afrekið var þó líklega
að endurnýja þátttökurétt sinn á
LPGA-mótaröðinni sem er ekki
sjálfgefið fyrir nýliða. Ólafía vann
sig jafnt og þétt upp peninga-
lista mótaraðarinnar en efstu 80
kylfingar hennar í lok árs komust í
efsta forgangsflokk næsta tímabils.
Ólafía hafnaði í 73. sæti listans með
23,5 milljónir.
„Þetta er vonum framar að vera í
toppbaráttunni. Fyrst langaði mig
bara að halda kortinu mínu, en svo
fékk ég reynslu og lærði af árinu og
það fleytti mér áfram,“ sagði Ólafía,
en hún náði best fjórða sæti á árinu
á móti í Bandaríkjunum. Hún spilar
við marga af bestu kvenkylfingum
heims og sagðist hafa verið smeyk
við þær í fyrstu, en í dag séu þær
orðnir vinir. „Í fyrstu mótunum þá
var það mjög skrítið [að mæta stóru
nöfnunum] og mér fannst ég alltaf
vera fyrir þeim, ég var bara einhver
lítill Íslendingur, en núna þá eru
þær jafningjar mínir og við erum
bara vinkonur.“
Ólafía spilaði mikið á árinu og
sagði það hafa tekið sinn toll. „Þetta
er búið að vera ótrúlega stíft ár. Ég
fann það í lok ársins að ég hefði
mátt taka mér aðeins meiri pásur,
mig langaði bara að spila í öllu.“
Nýtt keppnistímabil hefst í lok
janúar á Bahamaeyjum en það er
margt spennandi fram undan hjá
Ólafíu, sem er nú þegar örugg með
keppnisrétt á fyrstu risamótum
ársins. Ólafía ætlar sér að gera enn
betur á næsta ári en í ár. „Stefnan er
sett ennþá hærra. Ég er ekki alveg
búin að setja mér markmið fyrir
árið, annað en bara að vinna hörð-
um höndum og sjá hversu langt
maður kemst. Maður stefnir alltaf
á sigur, ég á ennþá eftir að brjóta
þann múr á Evrópumótaröðinni
eða LPGA, svo það er næsta mark-
mið,“ sagði Ólafía.
Mikil ferðalög fylgja golfíþrótt-
inni, en mót LPGA mótaraðarinnar
fara fram í Bandaríkjunum, Evrópu
og Asíu. Ólafía sagði ferðalögin vera
erfið og hún viti oft á tíðum ekki
hvar hún er hverju sinni. Hún hefur
verið í fríi eftir að Drottningarmót-
inu í Japan lauk nú fyrr í mánuð-
inum og nýtir þann tíma vel. Hún
segir þó að tíminn hverfi frá henni í
hina ýmsu hluti, hún sé alltaf í við-
tölum eða myndatökum og viti ekk-
ert hvert tíminn fari.
„Ég er ekki búin að snerta golf-
kylfu frá því ég kom frá Japan. Það
er sagt að það sé mjög gott að taka
sér alveg frí og vera alveg andlega frá
golfinu. Svo fer ég til Flórída í janúar
og þá byrja ég aftur með trompi,“
sagði Ólafía, en hún segist njóta
þess að vinna í andlegu hliðinni.
„Ég er smá svona nörd þar og finnst
ógeðslega gaman að vinna í því,“
sagði íþróttamaður ársins 2017,
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
astrosyr@365.is
1. Heimir Hallgrímsson,
knattspyrna ....................................135
2. Þórir Hergeirsson,
handbolti .......................................... 63
3. Elísabet Gunnarsdóttir,
knattspyrna ...................................... 12
Íþróttamaður ársins
mest 540 stig
Aron Einar Gunnars-
son varð í öðru sæti
í kjörinu með 379
stig. Aron Einar hefur
verið fyrirliði íslenska
landsliðsins um árabil
og fór fyrir liðinu þegar það
tryggði sér sæti á HM í knattspyrnu.
Aron Einar var fastamaður með Car-
diff í ensku B-deildinni á árinu.
Í þriðja sæti varð
Gylfi Þór Sigurðsson,
leikmaður íslenska
landsliðsins og Ever-
ton. Gylfi Þór var lykil-
maður með landsliðinu
og þótti einn besti leikmaður ensku
úrvalsdeildarinnar á vormánuðum,
er Swansea bjargaði sér frá falli.
Gylfi var svo seldur til Everton í
sumar fyrir metupphæð.
Lið ársins
Karlalandsliðið í knatt-
spyrnu fékk fullt hús
stiga í kjörinu um lið
ársins þriðja árið í röð.
Ísland tryggði sér sæti í lokakeppni
HM í fyrsta sinn í sögunni og varð
um leið fámennasta þjóð heims til
að afreka það. Ísland vann sinn riðil í
undankeppni stórmóts í fyrsta sinn.
Þjálfari ársins
Heimir Hallgrímsson
hlaut einnig fullt
hús stiga í kjörinu og
er því þjálfari ársins í
annað sinn. Undir stjórn
Heimis náði karlalandsliðið í knatt-
spyrnu sögulegum árangri og mun
hann stýra því á HM í Rússlandi
næsta sumar.
Niðurstaða kjörsins
1. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir,
golf .......................................................... 422
2. Aron Einar Gunnarsson,
knattspyrna ......................................... 379
3. Gylfi Þór Sigurðsson,
knattspyrna ........................................ 344
4. Aníta Hinriksdóttir,
frjálsar .................................................... 172
5. Sara Björk Gunnarsdóttir,
knattspyrna ......................................... 125
6. Guðjón Valur Sigurðsson,
handbolti ............................................... 94
7. Jóhann Berg Guðmundsson,
knattspyrna ............................................ 88
8. Hrafnhildur Lúthersdóttir,
sund ...........................................................76
9. Valdís Þóra Jónsdóttir,
golf .............................................................72
10. Helgi Sveinsson,
íþróttir fatlaðra .....................................47
11. Ásdís Hjálmsdóttir,
frjálsar ........................................................41
12. Júlían J. K. Jóhannsson,
kraftlyftingar ..........................................37
13. Alfreð Finnbogason,
knattspyrna .............................................18
14. Birgir Leifur Hafþórsson,
golf .............................................................17
15. Martin Hermannsson,
körfubolti ................................................16
16. Fanney Hauksdóttir,
kraftlyftingar ..........................................15
17. Þuríður Erla Helgadóttir,
lyftingar .......................................................4
18. Snorri Einarsson,
skíðaganga ..............................................2
19. Hannes Þór Halldórsson,
knattspyrna .............................................. 1
20. Dagný Brynjarsdóttir,
knattspyrna .............................................. 1
1. A-landslið karla, knattspyrna .. 135
2. Þór/KA, knattspyrna ..................... 27
3. Valur, handbolti .............................. 22
2 9 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F Ö s t u d a G u r18 s p o r t ∙ F r É t t a b L a ð i ð
sport
2
9
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
9
D
-D
0
4
4
1
E
9
D
-C
F
0
8
1
E
9
D
-C
D
C
C
1
E
9
D
-C
C
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
2
8
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K